Færsluflokkur: Bloggar

Alvöru aðgerðir strax

Það er löngu orðið ljóst að það þarf að koma til verulega breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfi okkar Íslendinga.  Hver byggðin á fætur öðrum hrópar á aðstoð, það er eitthvað mikið að og því þarf að bregaðst strax við og með álvöru aðgerðum.  Margt gott sem bæjarstjórn Vestmannaeyja bendir á

Ríkisstjórnin þarf að fara að huga betur að landsbyggðinni, byggðarþróunin er því miður þannig að fólk streymir til höfuðborgarsvæðisins og byggðir landsins tæmast.  Það þarf að sporna við þessu.  Það að stöðva loðnuveiðar hefur djúpstæð áhrif á fiskverkunarfyrirtæki, kvótaverð á þorski og öðrum fisktegundum hefur hækka mjög svo þannig að það reynist erfitt mörgum að festa kaup á fiskafurðum til veiða, hvað þá að leigja allt þetta hefur margföldunaráhrif á hag fiskverkunarfyrirtækja.  Fyrirtæki þurfa að leggja niður laupana oft á tíðum. Fólk missir atvinnu sína.

Hvernig ætlar sjávarútvegsráðherra að bregðast við hörmungarástandi sem ríkir  í sjávarútveginum??????


mbl.is Stjórnvöld grípi til aðgerða tafarlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg vinnubrögð minnihlutans D lista manna í Árborg

Fyrir nokkrum mánuðum var samþykkt í íþrótta- og tómstundarnefnd að gera heildar endurskoðun á íþrótta og tómstundarmálum í Árborg.  Ákveðið var að ganga til liðs við Rækt ehf um að taka út þessi mál í sveitarfélgainu. Tillagan var samþykkt með atkvæðum meirhluta V, S og B lista, gegn atkvæðum D lista.

Núna nokkrum mánuðum síðar þegar mikil vinna hefur verið lögð í skýrsluna og hún tilbúin til kynnigar þá boðar minnihlutinn til blaðamannafundar þar sem þeir kynna skýrsluna, skrýtið þar sem að þeir voru á móti þessu í upphafi.  Og enn skrýtnari vinnubrögð eru það að fara með skýrslu i umfjöllun sem ekki hefur fengið stjórnsýslulega umfjöllun og afgreiðslu.

í bæjarráði í morgun var eftirfarandi bókað:  "Bæjarfulltrúar B, S og V harma þau vinnubrögð fulltrúa D lista að taka skýrsluna til opinberrar kynningar á eigin spýtur áður en hún hefur hlotið stjórnsýslulega afgreiðslu í bæjarráði. Fulltrúar D lista boðuðu til fjölmiðlafundar fyrr í vikunni til að, að því er virðist, kynna niðurstöður skýrslunnar. Skýrsla þessi er niðurstaða vinnu sem bæjarráð samþykkti á 60. fundi þann 13. september 2007 að ráðist skyldi í, gegn atkvæði fulltrúa D lista. Skýrslan liggur nú fyrir til afgreiðslu samhliða afgreiðslu á fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 11. febrúar s.l.,, (www.arborg.is)


Ohh ég lenti í þessu sama um daginn....

kampabínHvað ég skil hana vel að vilja fá að vita hver sendi henni þessa flösku.  Ég lenti í þessu fyrir stuttu að ég var vakin af sendli hraðsendingarþjónustu með þessa líka dýrindis kampavínsflösku og blómvönd og sendandinn var merktur no name, secret admierCool   þannig að ég bíð enn spennt að sá hinn sami gefi sig fram.
mbl.is Hver sendi kampavínið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi manngerðir

mensÞað er skemmtileg dægradvöl að mínu mati að skoða mismunandi manngerðir.  Öll erum við ólík sem betur fer, við erum með ólíka persónuleika, ólík í útliti og hegðun.  Það er líka skemmtilegt að spá í hvernig týpur fólk laðast að.  Sumir leita eingöngu eftir útlitslegum eiginleikum á meðan aðrir vilja frekar horfa á hinn innri mann.

Ég er svo heppin að eiga margar vinkonur og systur sem eru hamingjusamlegar fráteknar og svo er ég líka heppin að eiga vinkonur sem eru hamingjusamlega á lausu.  Þær sem eru fráteknar eiga allar menn sem eru flestir afar ólíkir þótt vissulega eigi margir ýmsa hluti sameignlegt.  Þær sem eru á laus þ.m. t undirrituð eigum það sameignlegt að hrífast flestar af afar ólíkum manngerðum.

  Það fær mig oft til að hugsa hvað það sé í fari hvers og eins sem fær konu til að laðast að honum og svo gagnstætt.  Núna ætla ég að horfa á það hvað í fari karlmanna geri það að verkum að konur laðist að þeim.  Ein vinkona mín, róleg og hæg kona, alltaf verið voða varfærin og lifað einföldu lifi, hún heillast mest að mönnum sem eru í ábyrgðarstöðum, rólegum mönnum sem ekki bregða of mikið út af vananum, útlitslega séð setur hún engar sérstakar kröfur. 

 Á meðan önnur góð vinkona mín vill hafa þá frekar grófa og karlmannslega í útliti en persónuleikinn ekki neitt aðal mál nema hann þarf að vera skemmtilegur og ,frekar viltur.  

Önnur góð vinkona mín heillast afar mikið af mönnum sem eru smá þéttir, stundum sköllóttir og smá skegg og þá helst svo kallaðan "kleinuhring" um munninn.  Oftast eru þeir þá líka frekar léttir á því ýmist á leið úr eða í meðferð eða ekki tilbúnir að sjá vandann.  Fastir í þroska og misábyrgir.  Hún virðist sogast í þessar týpur eins og fluga að hunangsblómi og ég og hinar vinkonur hennar erum alltaf að segja henni að hún eigi mun betra skilið og margir góðir menn búnir að biðla til henar en hún telur þá of rólega, eða of þetta eða hitt, það vanti alla spennu og neista.   

 Ein önnur vinkona mín heillast af íþróttamannslegum mönnum helst ljósum yfirlitum og með allt pottþétt, enda er hún mög pottþétt sjálf og því hef ég ekki áhyggjur af hennar vali.   Svona eru hugmyndir margra og mun fleiri en ég ætla ekki að telja þær allar hér upp. 

Vissulega verður spenna, hrifning og neisti að vera til staðar, sameiginleg áhugamál og fl.  Annað sem við verðum aðhafa í huga og ég sjálf er að reyna að temja mér er að fara ekki fram úr okkur, slaka á og hlusta á hvað er verið að segja okkur.

Hvernig manngerð heillast þú af?????


Lög eru lög

Hvort sem að þingmanninum líkar það vel eða verr þá eru lög lög og þeim ber að fylgja hvort maður sé sammála þeim eður ei.

Vissulega er maður ekkert alltaf sáttur við það sem manni er uppálagt að hlýta en löggjafavaldið setur lög og reglugerðir okkur þegnum til að fylgja.  Lög eru sett landsmönnum til auðveldunar um að búa saman í samfélagi við aðra.  Ef engin lög væru og allir færu sínu fram væri nú eflaust mikið kaos og skipulagsleysi í gangi.  Svo má alltaf deila um það hvort lögin séu öll réttmæt og hvort þau standist nútímalegar hugsanir.  Það er svo alltaf matsatriði hvað er nútímalegt og hvað sé gamaldags.  En á meðan lögin gilda ber að fylgja þeim.  Sama þótt lögbrot sé stórt eða stórt þá er lögbrot lögbrot.

 


mbl.is Tvískinnungur að aðrar reglur gildi um póker
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framkvæmdir og framtíð

Það er virkilega gaman að sjá að það séu hafnar framkvæmdir við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri.  Það var svo sannarlega kominn tími til að eitthvað gerðist í húsnæðismálum við ströndina.  Byrjað er að grafa og vinna undirvinnu á Stokkseyri.  Byggingin sem þar mun rísa verður mjög skemmtileg og fá nemendur og starfsmenn þar fína vinnuaðstöðu.  Framkvæmdir á Eyrarbakka munu síðan hefjast síðar þ.e árið 2009.  Það eru því spennandi tímar framundan á Eyrarbakka og Stokkseyri.
mbl.is Elsti skóli landsins fær andlitslyftingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáin í dag..

KrabbiKrabbi: Eitthver er þess virði að elst sé við hann, sem er frábært fyrir þig sem ert í veiðiskapi. Taktu eftir persónunni sem glóir í návist þinni - og taktu eitt skref í áttina til hennar.

Jamms svona hljómar krabbinn í dag.  Ég tek reyndar ekki mikið mark af þessum spám en það er samt stundum gaman að skoða þær og ég tala nú ekki um þegar þær eru svona góðarCool  Humm einhver sem er frábær fyrir migTounge og ég í veiðiskapiWhistling já þetta er spennandi.....


Rétt hjá honum

ÉG hef einmitt verið að undra mig á því að enginn skuli setja neitt út á þett.  Vissulega er gott að það sé búið að semja og að ríkisstjórnin hafi lagt smá af mörkunum.  En það hefði verið hægt að ganga mun lengra til að koma til móts við þá lægst launuðu.  Fátækt hefur aukist gríðarlega mikið hér á Íslandi sl. árin og þarf að grípa til alvöru aðgerða til að koma sem mest í veg fyrir hana.  Ríkisstjórnin hefði getað komið með áætlun og aðgerðir um að lækka enn meira skatta af lægstu laununum.

það verður fróðlegt að sjá þegar Kjardómur hækkar næst kjör þeirra hálaunuðu hvort það verði líka í þessum stíl.


mbl.is Steingrímur segir laun enn langt undir framfærslukostnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð....

Í öllum þáttum lífsins myndi ég telja að hver og einn beri ábyrgð á sínum gjörðum.  Foreldrar eru vissulega ábyrgir vegna gjörða barna sinna þegar þau eru ekki komin á sjálfræðisaldur og bera ábyrgð á hugsa um heilsu og velferð þeirra.

Þegar kemur að fullorðnum einstakling tel ég það nú lámark að menn axli sína ábyrgð sjálfir og þá með öðrum ef aðrir hafa komið að hlutnum með þeim.

Frjálslyndi flokkurinn var ekki við meirihlutann þegar REI málið kom upp, þeir bera ekkí ábyrgð af gjörðum fyrrum borgarstjóra þ.e fyrrum fyrrum og tilvonandi borgarstjóra,  Vilhjálmi.  Það er orðið tímabært og ég tek undir orð forsætisráðherra að hann verður að gera upp við sig fyrr en seinna hvað hann ætli sér að gera.

Vissulega er samt Ólafur F fulltrúi Frjálslynda og hlýtur hann að vera talsmaður þeirra er snýr að stefnumálum þannig að því leiti er flokkurinn á bak við hann geri ég ráð fyrir. 

 


mbl.is Neita að bera ábyrgð á borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annríki og aftur annríki.

Stundum eru sumir dagar þess eðlis að þeir eru búnir áður en þeir byrja jafnvel, svo stíft er prógrammið stundum.  Þessi vika var sannarlega þess eðlis.  Samt var hún alveg frábær í alla staði.  ÉG fór á skólaball með unglingadeildina í Aratungu sl. miðvkudag.  Það var nú voða gaman að koma þangað því það vöknuðu sjálfkrafa upp margar minningar þaðan frá sveitarböllunum hér í dennCool Vá hvað maður gat skemmt sér vel þarna.  Síðan var sálfur Valentínus á fimmtudaginn og mín bara fór út að borða í frábærum félagsskap og svo á samkomu á eftir  Cool Í gær fór ég á frábæra samkomu upp í Kærleika með Elínu vinkonu og fleiru góðu fólki.  Var síðan á rosa fínum fundi í kvöld og eftir hann skelltum við Sigrún okkur á Kaffi krús í einn latte og spjallCool  Er í fríi á morgun sem verður voða notalegt, geta verið að dúlla sér, þarf reyndar að læra eitthvað og svo er víst kominn tími á eitthvað sem heita "heimilisstörf"ég er alltaf að komast betur og betur að því að þau gera sig ekki sjálf eins og ég svo gjarnan vildi.  Ég er nefnilega á þeirri skoðun að það er svo margt annað sem er svo holt og gott að gera, sem ég vil frekar eyða tímanum í. En það dugir ekki að síta það, láta sig bara hafa það og vaða í verkið.

Annars sé ég fram á mjög annríka viku í næstu viku aftur, námsmat og starfsdagur og foreldraviðöl í vinnunni, fundir, samkomur og svo fyrst og fremst börnin mín og sá elsti meira að segja að verða 14 ára næstu helgiWizard sem reyndar gerir það að verkum að ég hlýt að vera að eldast líka, en það er líka nu bara gott ekki satt, aukinn aldur, aukinn þroski Tounge 

Jæja ætti maður ekki að fara að sofa svo maður vakni fersk í fyrramálið

Guð blessi ykkur  og gefi ykkur draumfagra nótt


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband