Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Vilji kjósenda.....

Já það er nokkuð ljóst samkvæmt þessum tölum að vilji kjósenda er að breyta til í stjórnarráðinu.  VG er samkvæmt þessu næst stærsti flokkur landsins. 
mbl.is Íslandshreyfingin mælist með með 5,2% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkanir í Árborg

Meirihlutinn í Árborg  lagði fram bókun á bæjarráðsfundi í dag þar sem fram kemur að hafin er endurskoðun til lækkunar á gjaldskrá leikskóla þar sem m.a. verður fjallað um lækkun á grunngjaldi og svo systkynaafslætti.
Niðurstöða þessarar athugunar verður tilkynnt síðari hluta aprílmánaðar.  Þetta eru mjög jákvæðar fréttir auk þess sem búið er að ákveða að lækka mat í grunn- og leikskólum um 5.5% frá 1. mars sl.  Fulltrúi VG í bæjarstjórn og formaður bæjarráðs hefur talað fyrir gjaldfrjálsum leikskóla og má segja að þetta sé fyrsta skrefið í þá áttina. 

Furðulegur dómur

Ja hérna hér, ekki er öll vitleysan eins.  Hvað er þessi dómari að hugsa? Eða hugsar hann yfir höfuð.  Þarna er ákært fyrir ákveðið brot skv. 209. gr. hegingarlaga.  En að mati dómsins er óumdeilt að háttsemi ákærða var til þess fallin að særa blygðunarsemi komnunnar en til þess að unnt sé að sakfella ákærða fyrir brot á 209. grein almennra hegningarlaga, eins og ákært var fyrir, þurfi háttsemin að vera lostug af hans hálfu og veita honum einhverja kynferðislega fullnægju. Ekkert bendi til þess að svo hafi verið í þessu tilfelli. Var maðurinn því sýknaður af ákærunni.

Maðurinn er sýknaður, er þetta ekki nógu sjúklegt að taka mynd af konunni óforspurðri og þar sem hún veit ekki af því að það er verið að taka af henni mynd nakinni.  Hvað með eignarrétt konunnar yfir hennar líkama?  Enn og aftur brýtur ísl.réttarkerfi á kynfrelsi. 


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir að taka mynd af naktri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig ölum við upp börnin okkar?

Þessi spurning er mér ansi hugleikin.  Ég á þrjú börn, tvo stráka og eina stelpu.  Frá fæðingu hef ég verið föst í þessum stöðluðu kynjaímyndum t.d varðandi klæðaburð, sem einhvern veginn hafa náð fótfestu í þjóðfélaginu.  Ég byrjaði á að kaupa blátt og "strákaliti" á strákana og bleikt og "stelpuliti" á stelpuna.  Ég lenti í því í haust þegar ég var að kaupa úlpu á stelpuna að ég vildi að hún fengi rauða eða bleika úlpu en hún vildi bláa úlpu.  Þarna stóð ég í stappi við 5 ára dóttur mína um liti, ég fattaði skyndilega hvað ég var að gera og ákvað að leyfa henni að fá þann lit sem hún valdi.  Þarna áttaði ég mig á því hvað maður getur verið fastur  í þessari litahugmyndafræði.    Varðandi dót og leikföng fyrir börn þá var það þannig að  þegar krakkarnir voru litlir þá fengu  stákarnir  bíla og slíkt dót og stelpan fékk dúkkur og þess háttar leikföng og reyndar pleymó líka.  Ég held þetta sé rosa algengt og eigi langt í land með að lagst. 

 ÉG er jafnréttissinni að líf og sál og vill jafnrétti ofar öllu, þá á ég við launajafnrétti, jafnrétti til náms, til atvinnuþátttöku beggja kynja og jafnrétti til að ala upp börnin okkar.  Síðast en ekki síst vil ég afnema þann mismun sem kominn er upp í þjóðfélaginu á hinum ýmsu stöðum.

Áðan rétti ég 13 ára syni mínum kúst og bað hann um að sópa forstofuna hjá okkur, hann horfði á mig stórum augum og sagði blákalt: ,,Það eru bara konur sem eiga að sópa"  Þetta sló mig því ég hef hingað til talað þannig við syni mína að það sé ekki til nein sérstök kvennaverk eða nein sérstök karlaverk.  Alið þá upp í að þeir eigi þegar þeir fara að búa og líka hér á þeirra heimili að taka jafn mikinn þátt í öllum heimilisstörfum.  Mér er því spurn, hvaðan fá börn þessar hugmyndir um að það sé "kvennaverk" að sópa og halda húsinu hreinu.  Eru þetta skilaboð frá umhverfinu? Eða hvað?  Gaman væri að heyra hvað þið lesara góðir segði um þettaErrm


Stendur aldrei á hækkunum

Þetta er alveg ótrúlegt með þessi olíufélög, um leið og verðið hækkar eitthvað aðeins erlendis er hækkað um hæl hér á landi.  Ef um lækkanir erlendis er að ræða þá er það yfirleitt þannig að ekki sé grundvöllur til lækkunar, of mikill lager til eða aðrar afsakanir notaðar. 
mbl.is Olís hækkar verð á eldsneyti um 2 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vorar að sjálfsögðu snemma á Eyarbakka.

Félagi minn hann Jóhann Óli hefur að sjálfsögðu fundið vorið í okkar yndislegu fjöru hér á Eyrarbakka.  Lóan hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds fuglum.   Ég tel fugladýrðina hér einn af mörgum kostum við Eyrarbakka.

Ég lít á þetta sem tákn frá æðri mætti, tákn um grænt og fagurt vor.  VG vorSmile


mbl.is Lóa í fjörunni á Eyrarbakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rok og rigning

Er hægt að hugsa sér fúlla veðurShocking Ég ætlaði til Vestmannaeyja í dag til að fara á hippahátíð þar.  Búin að hlakka til síðan ég fór í fyrra.  Oh nei, viti menn veðrið er búið að vera með ólíkindum.  Seinni ferð Herjólfs felld niður.  Ohh frekar fúlt og leiðinlegt.  Þannig að ég hef bara leyft mér að vera fúl og örg í dag, þótt það bæti nú ekki neitt.  En þetta segir okkur samt það að það verður að koma samgöngum til Vestmannaeyja í betra lag.  Flugferðir falla mjög oft niður og upp á síðkastið hafa ferðir Herjólfs fallið frekar oft niður.  En þið vinir mínir í Eyjum verðið bara að skemmta ykkur fyrir mig líka, ég kem þá bara að áriCool

Langar í lokin að koma hér að smá spakmælum til að létta mér og öðrum lund í þessu veðri

Hvað sem þig kann að henda, þá láttu þér aldrei gleymast, 
að þú ert ekki bundinn við að fara yfir götuna sem þú valdir. 
Þér er frjálst að leita uppi aðra leið, ef þú finnur að þú ert að villast.
Stig Dagerman

Veröldin er full af undrum, en vér erum svo vön þeim, 
að vér köllum þá hversdagslega hluti.
H. C. Andersen

Í byrði lífsins eru það ekki alltaf steinarnir sem þyngja mest, 
heldur visnað gras og gulnað lauf.
Veikko Koskiniemi

Það þarf tvo til að segja sannleikann - annan til að tala, hinn til að hlusta

Eigið góða helgi

knús knús Sædís


VG enn á uppleið

Þetta er mjög góð könnun fyrir okkur í VG og þá þjóðina alla.  Það er greinilegt hvað fólk vill.  Það vill breytingar og með þessum niðurstöðum mun það fá þærWink   Þetta er ekki góð niðurstða fyrir framsókn sem ekki virðist ætla að ná sér á flug.  Reyndar er þessi könnun gerð áður en óánægjulisti Ómars og Margrétar kom fram þannig að umhverfissinnar í Sjálfstæðisflokknum eiga kannski eftir að færa sig aðeins til.   En þetta er sannarlega góð könnun fyrir VG.
mbl.is VG áfram í mikilli sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnalán

Já við eigum sannkölluðu barnaláni að fagna við Íslendingar.  Ég er greinilega samt yfir meðaltali því ég á 3 börnCool Ekki slæmt það.  Samt alltaf gaman að sjá þessar tölur um meðalfjölda barna á konur eins og þetta 2,07 börn. 

En ég er samt á því að það þurfi að gera betur við barnafjölskyldur í landinu.  Barnabætur hafa lækkað töluvert á síðustu 10 árum.  Láglaunafólk hefur ekki sama færi á að veita börnum sínum sama munað og hálaunafólk. það er þetta misrétti sem ber að afnema.  Það verður að búa þannig í haginn fyrir fjölskyldur að öll börn sitji við sama borð hvað varðar tónlistarnám, íþróttaiðkun og aðrar tómstundir, tannlækningar og margt fleira er viðkemur heilbrigði og hollustu.  Fátækt verður að útrýma þvi við getum ekki látið það líðast í landi sem telst vera vel stætt þjóðfélag að fleiri tugir barna búi við fátækt.  Aðgerða er þörf og brýnt að taka á þessu nú þegar.  Það er tækifæri núna 12. maí þegar gengið verður til kosninga.  Með því að kjósa VG gefum við íslensku þjóðinni tækifæri, tækifæri til að útrýma misrétti, tækifæri til að koma á jafnrétti og velferð.


mbl.is Íslendingar næstfrjósamasta Evrópuþjóðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlit á netinu

Þetta er meðal annars ástæða fyrir því að mikilvægt sé að koma á skilvirku eftirliti í netheimum.  Eins og allir vita er netheimurinn sífellt að stækka og það sem fer þar fram er margt mjög slæmt.  Eins og netið getur verið góður kostur og komið mörgu góðu til leiða þá er hræðilegt hversu mikið ofbeldi þrífst þar.  Með góðu og virku eftirliti væri vonandi hægt að koma í veg fyrir hluta af þessum brotum sem þar fer fram.  Ef hægt er að koma í veg fyrir þótt ekki væri nema eitt ofbeldi (ef þannig má að orði komast) tel ég þetta réttlætanlegt.
mbl.is Um 30-40% ábendinga barnaklám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband