Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Hvaða voða viðkvæmni er þetta í fólkinu....

Þolir það kannski ekki að heyra staðreyndir eða lesa staðreyndir. 

Ræðan hennar Katrínar var virkilega góð og svo sönn.

 


mbl.is Óánægð með ræðu á heimasíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ooooggh....

Svo maður segi nú eins og unglingarnir......

Mér er slétt sama hvort kostnaðurinn er 25 milljónir eða 50 milljónir.  Það á ekki að fá Breta hingað til að halda uppi loftrýmiseftirliti.

Við erum að taka svo niður fyrir okkur að fá þá hingað til landsins að verja okkur (fyrir hverjum svo sem?)

Líka eins og fram kemur í frétt á visir.is en þar segir Ingibjörg að við eigum að leggja það í "hendurnar á Bretum sjálfum" hvort þeir komi hingað.  Mér finnst þetta afar lágt lagst hjá henni þarna, hún er að gera lítið úr okkar sjálfsvirðingu.  Við erum sjálfstæð þjóð!


mbl.is Kostnaðurinn 25 milljónir - ekki 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frétt vekur upp gamla minningu....

...frá því í denn þegar ég var að flýta mér í vinnuna í GJÁNNA og sá eitthvað á veginum sem ég taldi vera kindErrm, sem var svo þegar betur var að gáð í myrkrinu,  túnþakaShocking.  Endaði á hitaveituröri út í skurði eftir tvær veltur.  Slapp sjálf nokkuð vel nema hvað bíllinn skaðaðist frekar mikið.

þannig að það er vissara að gæta sín á kindunum, í hvaða formi sem þær leynast á þjóðveginumWhistling


mbl.is Sveigði frá sauðfé og valt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kaupa hlutabréf.....

hefur alltaf verið talin áhætta.

 Að taka lán eða að koma sér í skuldbindingar vegna kaupa á hlutbréfum, sama í hvað formi þau eru er líka áhætta. 

Þegar maður tekur áhættu á maður að standa við hana alla leið ekki satt????

Hvers vegna gat stjórn Kaupþings ekki tekið aðra ákvörðun  en að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna bankans?

Gunnar formaður verkalýðsfélags segir:

Sem stjórnarmaður í Kaupþingi var það skylda mín að verja hagsmuni hluthafanna. Þegar fjallað var um það á stjórnarfundi bankans að heimila forstjóranum að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna var mér efst í huga sú skylda að tryggja hag bankans og umbjóðenda minna.

Hann talar um að verja hagsmuni hluthafanna???? já ok, hvað um hagsmuni hins almenna borgara sem núna mun verða mun skuldsettari en áður vegna þessa alls sem á undan er gengið. 

Getum við þá hinn venjulegi "ALLMÚGI" þessa lands farið fram á að þær ábyrgðir sem við gengum í þegar við keyptum húsin okkar, þ.e þak yfir höfuðið á okkur og börnum okkar, að þær ábyrgðir yrðu gerðar að engu þar sem að mörg hús standa ekki lengur undir veði lánanna, greiðslubyrgði hefur hækkað gríðarlega vegna verðbólgu?

Hvað með stjórnarskrá okkar, að ekki megi mismuna þegnum þessa lands.

Þessu þarf að fara að linna, við megum ekki láta traðka svona á okkur lengur.  Þetta sukk og svínarí sem hefur viðgengist allan þennan tíma verður að stöðva og það STRAX


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband