Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Skór, danski kúrinn og tiltekt....

tiltekt 

úff það er eins og það taki hvert við af öðru.  Ég hafði mig í það í gærkvöldi að taka herbergið hans Jóhannesar í gegn, eða réttara sagt henda út úr því sem hægt varCrying og svo í dag fór ég og keypti málningu og nú skal herbergið tekið í gegn þannig að það verði varið gegn drasli og sóðaskapGasp

Annars tók ég stóra ákvörðun á þriðjudaginn, ég ákvað að hefja mína danska kúrsgöngu á nýCool minnug þess að fyrir þremur árum byrjaði ég þarna og á hálfu ári náði ég af mér 20 kílóum en þau komu aftur þegar ég fór að svindla smá og smá og svo alltaf meira og meira og svo enn meira og enn enn meiraCrying NEI nú sé ég að þetta er ekki að gera sig, ég er búin að vera í ár að sannfæra sjálfa mig um að ég geti þetta alveg ein og óstudd.... en ó nei það er öðru nær, ég þarf stuðning og agaGasp en það er bara svona og þá er bara að viðurkenna þaðLoL Og í dag og í gær er ég búin að vera eins og kanína, étandi kál og gulrætur i öll málTounge en mikið er þetta samt gaman að byrja á einhverju svona hollu og góðu og ég er svo sannarlega búin að missa ein 10 kíló bara í andaCool

images

En annað sem ég var að spá, hvað þetta er með mig og skó.  Á miðvikudaginn þegar ég var í bænum skellti ég mér í Kringluna og ég mátti ekki ganga fram hjá einni einustu skóbúð án þess að sogast inn í hanaErrm ekki það að mig bráð bráð vanti skó, en kona getur nú alltaf á sig blómum bættTounge Síðan datt ég í geisladiska og bækur og keypti handa strákunum nýja diskinn með Magna og mér nokkrar góðar handbækur um lífið og tilverunaCool

Jæja best að fara að koma sér í að mála, ekki seinna að vænna þar sem ég er nú komin með málningunaShocking

knús Sædís


ADHD

WinkJá þetta er einn af þessum dögum sem ég ætla að taka allt með trompi og redda öllum þvottinum, ísskápnum, sópa gólfin og bara name it á nokkrum klukkutímum.  Ég kom heim galvösk úr vinnunni og sá fram á að enda á hæli eða fara að reyna að gera eitthvað i þessum málum sem ég hef sífellt verið að slá á frest í nokkrar vikurWoundering Mín byrjaði á að taka til við eldhúsvaskinn og á leið minni í að setja ost og fl. í ísskápinn sá ég að farið var að þykkna ansi mikið upp í honumCrying sótti ruslapoka og henti slatta þaðan sem einhverja hluta vegna höfðu endað þar inni og fengið að daga þar uppi.  Alltí einu var ég búin að tæma úr honum á eldhúsborðið og farin að sækja mér tusku til að þrífa hann á meðan ég ætlaði bara að setja ristavélina inn í skáp og smjörið þar innGasp Þegar ég sótti tuskuna sá ég að þar var hlutur sem átti að vera inni í herbergi og fór ég með það þangaði inn.  Þar inni var hrúga af þvotti sem ég átti eftir að brjóta saman, úfffffff ég fór þá að brjóta hann saman og þegar ég var að fara fram með handklæði inn á bað, sá ég að synir mínur höfðu ekki sett tannkremið og það allt inn í skáp í morgun þannig að ég gerði það og sá þá þar inni hlut sem átti heima í öðrum skáp.  Úfff er það von að maður sé hálf steiktur.  Þegar ég fór með þann hlut fram sá ég að ég yrði nú að sópa gólfið í forstofunni því þar var allt út um allt frá því i gærkveldi eftir strákanaErrm Þegar ég var búin að sópa gólfið og var að fara að tæma fægiskófluna i ruslið sá ég að á eldhúsborðinu var allt sem ég hafði tekið úr ísskápnum og hann enn þá meira að segja opinnGasp

Já þetta er stundum svona og ég var einmitt á fínum fyrirlestri um daginn hjá sálfræðing hjá skólaskrifstofunni fyrir okkur kennarana í skólanum sem höfðaði ansi vel til mín og marft sem þar koma fram sem ég gat tekið til mín í sambandi við adhdTounge En svona er ég bara og breyti mér ansi lítið þótt ég vildi.  Ég var meira að segja búin að ákveða að fara í Ikea um helgina að kaupa skipulagskassa og fl. snilldarefni til að hjálpa svona fólki eins og mér.  En svo það virki fyrir mig verð ég eiginlega að fá manneskju með kössunum til að skipuleggja í þá fyrir mig.

En ég ætla núna að kasta hinum miklu húsmæðrahæfileikum mínum á glæ og fara að ná í pizzu fyrir mig og dúllurnar mínar til að fagna að við séum komin í fyrsta helgarfrí vetrarinsCool

see you later

knús Sædís


Volgur bjór- minni læti.....

Er þetta ekki einum of mikið...... hverju breytir því hvort bjórinn sé kaldur eða volgur hvort fólk fremji ofbeldisverk.  Ok ég veit að það er vissulega betra að fá sér kaldan drykk, en eru ekki einhver önnur úrræði sem þurfa til, til þess að sporna við auknu ofbeldi í borginni heldur en að taka kælirinn í burtu. 
mbl.is Kælirinn fjarlægður úr vínbúðinni í Austurstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður veturinn......

Já þá er bara allt að gerastCool mín byrjuð í kennslunni aftur og allt á fúlll sving þar á bæ.  Ég er komin aftur á gamlar slóðir, þ.e farin að kenna aftur í BESSmile voða notalegt.  Ég verð með 2. bekk í umsjón og mun að auki kenna DÖNSKULoL so vi skal snakke dansk... annars hefur mér alltaf fundist danska voða skemmtileg og er orðin eitthvað svo dönsk í mér þessa dagana, meira að segja farin að láta mig dreyma um að fara þangað í nám einhvern tímann og strákarnir mínir eru sko meira en litið til í það.

Annars er eg að vonha að þetta verði veturinn sem allt á að ganga uppCool veturinn sem þessi föstu djö... kíló yfirgefa mig forever.  Ég er búin að sjá að það að nota hugarorkuna virkar skammt, þannig að nú er það orðin virkilega alvarleg hugsun að fara að nota kortið sem ég keypti í Styrk í veturBlush þvi ég veit að ég get þetta alveg ef ég ætla mér þar sem eg hef svo oft sýnt það og sannað. Þetta er alltaf spurning um þetta úthald að halda út að vera GRÖNN..... kannski verður þetta veturinn sem ég næ að vinna á athyglisbrestinni og ofvikninni og læra að skipuleggja mig og halda húsinu alltaf í röð og regluLoL humm nei kannski ekki. Kannski verður þetta veturinn sem ég geng út á nýTounge og kannski verður þetta veturinn sem ég kaupi mér jeppa og fer í jeppaleiðangraLoL 

já það er að nógu að taka svo sem fyrir veturinn því ekki má ég gleyma því að ég er víst líka að reyna að halda áfram í þessu mastersnámi þannig að það er kannski vissara að halda sér að verki. því ég er líka núna komin með ÞRJÚ grunnskólabörn, því litla prinsessan er að byrja í skóla á morgunSmile og ég er víst líka að fara að ferma frumburðinn í vor, úff það er fyrsta merkið um að maður sé að eldastCool 

Well well best að halda áfram að undirbúa morgundaginn, hlakka ekkert smá til að byrja og hitta krakkana á ný

knús Sædís


what a wonderful life

oh ja tad er sannarlega ljuft lifid tessa daganaCool min ordin voda brun og saelleg. krakkarnri voda brunir svo og restin af family.  tetta er buid ad vera frabaer ferd so far.  vid forum a strondina i gaer og vorum adan ad borda a voda godum veitingastadShocking vedrid alveg fabulus og engir kakkalakkar og engnar engisprettur bunar ad angra mig ad svo stoddu. 

well well nog ad sinni

knus saedis


Prinsessur í Portugal

Jamm það er sko ljúft lífið hér á PortugalCool mín skellti sér á bleika vindsæng og það er legið á henni öllum stundum í lauginni.  Addý á eftir að fá sér en Hjöddý fékk sér líka og nú erum við eins og prímadonnur á sveimi í lauginni.  Veðrið er alveg yndislegt og bara allt alveg frábært.  Krakkarnir skemmta sér rosa vel.  Við látum dekra við okkkur hér á hotelinu eins og okkur einum er lagið.  Juan og Salvos stjana við okkur, bera á okkur sólarvörn, rétta okkur vatn, og hvítvín og við erum algjörar prinsessur.

meira síðar, þarf að hafa mig til fyrir dinnerinn

knús Sædís


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband