Þvottur og læknisþjónustuleysi

tvotturVá hvað þvottur getur orðið að stóru vandamáli, kannast einhver við þetta???? það er ekkert mál að setja í vél og svo úr henni í þurkarann.  En að ganga síðan frá þessu, það er bara erfitt oft á tíðum.  En þetta er vissulega bara hugarfarið en ég er því miður á þeim stað að finnast þetta bara eitt af a því leiðinlegasta sem ég geri.  En svo er svo skondið að þegar ég byrja þá er þetta bara nokkuð okShocking

Annars á ég tíma hjá lækni/sérfræðingi á morgun sem er ekki frásögu færandi nema af því leiti að hann talar ekki íslensku, ég get valið að tala við hann á pólsku eða ensku. Hum ég tala nú alveg ensku en er ekki alveg kannski með svona fræðiheiti í læknisfræði á hreinu.  Kannski ég taki með mér orðabók eða við notum bara tákn með tali, bendum og potumTounge  Ef ég hefði ætlað að fá tíma hjá mínum lækni sem er íslenskur hefði ég orðið að bíða í tvo mánuði.  Þannig að maður verður bara að láta sig hafa það, ekki það að erlendir læknar séu eitthvað slæmir, heldur er kannski svolidð vont að skilja ekki hvort annað.  Sé fyrir mér: Hello mæ neim is Sædís end æm fíling very bed her( og benda staðinn) kan jú dú somting for mí???? þá fæ ég lílklega fræðilegt svar sem getur þýtt hvað sem erCrying og ég enda kannski með kolranga greiningu og vitlaus lyf..... humm kannski ég ætti að bíða í tvo mánuði??????

Well bootcamp bíður

knús Sædís


6.9 að baki og engin eftirsjá

myndJamm nú eru farin í burtu 6,9 kíló og ekki minnsta eftirsjá að neinu þeirra.  Ég væri samt til í að þau væru miklu fleiri sem væru farin en á fimm vikum er þetta kannski ok.  En ég hlakka samt til eftir tvær vikur þegar það verður mæling í bootcampinu.  Segir ekki á góðum stað að góðir hlutir gerist hægt. En að minnsta kosti stefni ég á að vera komin í ásættanlegt ástand undir vorið.  Ætla mér að fara nokkur fjöll næsta sumar þannig að þá er víst betra að vera í þokkalegu formi, ekki satt.....

Annars er ég að fara á rosa spennandi námskeið næstu helgi sem stendur frá föstudagskvöldi til sunnudagskvöld.  Reyndar mun laugardagurinn verða tileinkaður ömmu heitinni en hún hefði orðið 100 ára ef hún væri á lífi þann 15. okt nk. Þannig að það verður heiljarinnar fjölskyldumót hjá okkur, hlakka rosa til að hitta ættingja sem maður hefur ekki hitt í langan tíma svo og hina líkaSmile

Annars er maður nú frekar orðlaus þessa dagana vegna þess sukk sem viðgengst í stjórnkerfi borgarinnar.  Það að skuli farið svona með eign borgarbúa og fl. er ótrúlegt en kannski er það ekki svo ótrúlegt þegar þessir menn eru við stjórn.....

jæja best að fara að fara yfir danska stílaCool

vi ses

 


Loks aftur þar sem þeir eiga heima

Já þetta er allt að koma hjá þeim snillingunum í UnitedCool  þeir eru og verða bara flottastir
mbl.is Manchester United efst eftir stórsigur á Wigan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakannanir....og launamál á ný

símiHa ha ha það kom að því að ég lenti í þessum slemiúrtökum hjá Gallúp.  Til mín hringdi áðan örugglega voðalega myndarlegur maður því röddin hljómaði þannigTounge  Hann var að spyrja um þjónustu Vínbúðanna.... úff hann hefði átt að hringja í aðra en mig því ég fer svo sjaldan í þessar búðir að ég er kannski ekki alveg sú marktækasta.  En samt gat ég sagt honum frá því að síðast þegar ég verslaði í þessum búðum var það í Smáralind, fyrir xx tíma. Svo var spurt um gæði búðanna... humm gæði vínbúða, eru það einhver gæði??? æi veit ekki.  Síðan átti ég að segja til um hvað það væri sem skipti mig mestu máli í þjónustu Vínbúðanna, þá voru nokkrir möguleikar þ.e nálægð við matvöruverslun.. humm þá sá ég spottið í þessu, það er auðviðtað verið að reyna koma þessu fáranlega frumvarpi í gegn enn og aftur að selja vín í matvöruverslunumDevil ohh nei ég skildi ekki ganga í þessa gildru heldur sagði ég mína meiningu að ef búðin væri snyrtileg og hefði til sölu baylis þá væri ég ánægð.

Næst var spurt um aldur, tekjur og póstnúmer... humm já ég sagði að ég væri fædd 1972 og byggi í póstnúmeri 820 og þá er nú auðvelt að rekja það við erum líklega ekki nema tvær kvenkyns manneskjur sem búum hér sem erum fæddar þetta eðal ár.  Þegar hann spurði um tekjur þá fékk ég nokkra valmöguleika.... og fyrsti var undir 250.000 og svo hélt hann áfram í þvílíkar tölur sem ég láglaunakennari myndi ekki einu sinni geta látið mig dreyma umSick ég hló nú bara og sagði: "heyrðu vinur ég er kennari og reiknaðu núShocking undir 250.000 og langt fyrir neðan það

Þá sagði þessi yndæli maður mér, sem núna veit ansi mikið um mína hagi þ.e aldur, búsetu, laun og drykkjuvenjur og mikið að hann hafi ekki bara spurt um ummál og fl,  mér að hann væri líka kennari og væri í þessu  í aukavinnu til að hækka aðeins tekjur sínar.... arrrrggg er þetta hægt að kennarar sem vinna fulla vinnu og oft rúmlega það þurfi að vinna aukavinnu til að geta framfleitt sér og sínum.  ÉG er til dæmis núna að fara að taka vakt í sjoppunni  til að hugsanlega geta átt fyrir næstu mánaðarmótum.  Maður verður svo pirraður en pirringur leysir svo sannarlega ekki þennan djúpstæða vanda.  Við verðum kannski bara að biðja fyrir þessu að það komi lausn sem verði ásættanleg.

jæja en það var að minnsta kosti ánægjulegt að fá að vera virkur þjóðfélagsþegn og svara spurningum hjá svona yndælum manniCool


Laun kennara verða að hækka

Það er mjög augljóst má að ef ekki á að verða mikill flótti úr kennarastéttinni eftir áramót svo ég tali nú ekki um næsta haust, verða laun kennara að hækka verulega.  Tökum dæmi eins og með mig, 35 ára kennari búin að kenna í að verða 10 ár, grunnlaun  eru 218.222 kr. á mánuði.  Af þessu á svo eftir að taka skatta og önnur launatengd gjöld.  Eftir 3 ára háskólanám og jafnvel meira nám því þó svo að kennarar fari í framhaldsnám hækka launin ekki nema um einn launaflokk sem gera tæpar 6000 kr.

Þetta eru ekki einu sinni hlægilegar tölur, þetta eru sorglegar tölur.  Verulega úrbóta er þörf ef halda á úti góðu skólastarfi áfram, því ef kennarar hætta og leita í önnur störf þá verður það erfitt.

Börnin eru auður okkar þjóðarinnar og það er til háborinna skammar að ráðamenn landsins skulu ekki meta það meira en raun ber vitni.  Það að ekki skuli vera borguð mannsæmandi laun til leikskóla- og grunnskólakennara sýnir að það er annað en börn framtíðarinnar sem skiptir máli í þessu þjóðfélagi.  Auðhyggjan og veraldlegur auður hefur verið í forgangi allt of lengi hjá þeim sem stjórna, það er kominn tími til að breyta um stefnu og setja mannauð og manngildi í fyrirrúm.


mbl.is Kjörin verði stórbætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spádómur dagsins.....

sambandHeillastjörnurnar segja margt skemmtilegt um krabbann í dag.

KrabbiKrabbi: Þú þráir krefjandi samband, æsing og flugelda. Erfiðasta hliðin á að viðhalda svo ástríðufullu sambandi, er að týna ekki sjálfum sér í því.

Já þetta hljómar nú ansi skemmtilega þar sem maður er nú í þessari "einstöku" stöðu..... nema ég er ekkert mikið fyrir flugelda, nema í fjarska....

En ég held að málið með sambönd sé svoldið mikið svona, það er gríðarlega mikilvægt að rækta sambandið og viðhalda ástríðunni í því.  Einnig er mikilvægt að konur jú og menn líka týni ekki sjálfum sér í makanum.  Hætti að vera maður sjálfur og fari algjörlega inn í hausinn á makanum og taki sér bólfestu þar.  Því öll erum við einstaklingar og þurfum á ákveðnu frelsi að halda og það þarf að virða í samböndum.  Báðir aðilar eiga að fá að blómstra á sínum eigin forsendum, ekki sattInLove

Annars má líka tengja þetta við samband  okkar við Guð, við þurfum að viðhalda því sambandi til að missa ekki fótfestuna í lífinu... 

Ohh ég er svo spekingsleg í dag.  Maður kann þetta svo sannarlega allt en oft verður þetta erfiðara í practice

 


Hafðu það einfalt.

,,Kemst þó hægt fari"    (Hoagy Carmichael) 

slowÞetta slagorð er eitt af mínum uppáhalds slagorðum.  En þrátt fyrir hversu mikið mér finnst vænt um þetta slagorð og reyni að fara eftir því, gengur það hálf illa.  Sem betur fer er það að lagast upp á síðkastið en oj og boj hvað það getur tekið á.  Meira að segja að hafa bílinn minn einfaldan er erfitt.   Hlutir sem eru skildir eftir þar inni verða stundum ansi lengi þar.  Skipulagið á heimilinu er langt frá því að vera einfalt.  Stundum tek ég mig til og ætla að einfalda alla hluti hjá mér og fyrr en varir er ég búin að flækja allt til mikilla muna.  En svona getur þetta verið

Annars var ég á mjög góðum fundi með félögum mínum í VG í kvöld og margt skemmtilegt að gerast.  Reyndar missti ég af heimahóp í staðinn þannig að ég var frekar svekkt yfir því en eins og einhverstaðar stendur þá getur maður ekki verið á öllum stöðum.

Jæja nóg að sinni

kv. Sædís


Konur yfir fertugt.

Já maður getur greinilega haft mikið til að hlakka til þegar maður verður 40 ára, en það er nú svo langt í það hjá mérLoL

Eftir því sem ég eldist (sagt af karlmönnum), met ég mest konur yfir fertugt og hér eru
nokkrar ástæður hversvegna:


Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig
"hvað ertu að hugsa?"
Hún kærir sig kollótta um hvað þú ert að hugsa. Ef kona yfir fertugt
vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir
eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en
leikurinn
.

Konur yfir 40 eru virðulegar. Þær fara sjaldan í
öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Auðvitað
gera þær það ef þú átt það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig
ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á
hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að
verðleikum.


Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að
viðurkenna misbresti þína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá
einni eða tveimur hrukkum, er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en
yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja
þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft
aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær. Já, við dásömum
konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki
gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu
yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum
gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.



Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna
þegar þú getur fengið mjólkina frítt" hér eru nýjar upplýsingar;


Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum Hversvegna?


Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pulsu!


Andy Rooney


Bleikur er litur októbers

kerti Í október er bleiki liturinn allsráðandi, það er ekki af ástæðu lausu, heldur er það til minningar um þá sem hafa greinst með brjóstakrabbamein.  Fjölmargar konur greinast á ári hverju með þennan hræðlega sjúkdóm, margar ná sem betur fer bata en baráttan við þennan illvíga sjúkdóm er hræðileg.  Því miður deyja allt of margar konur af völdum brjóstakrabbameini.    Í októbermánuði 2007 verður lögð áhersla á að selja bleikar slaufur og verður afraksturinn notaður til að kaupa nýtt ómtæki fyrir Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Ómtækið verður notað til nánari greiningar eftir brjóstamyndatökur og við frumrannsókn á brjóstum hjá ungum konum með einkenni.  Voandi kaupa sem flestir slaufuna til að styðja við bakið á leitarstöðinni.

Mánudagur til mæðu

ÉG skil ekki alveg þetta mæðuhugtak, þótt dagurinn í dag hafi verið að svo komnu ansi mæðulegurCrying En samt skárri en dagurinn í gær, því þá var maður ansi svefnvana eftir FRÁBÆRA Gyðjuhelgi. Umm þetta var bara draumur í dós..... say no more.  Við áttum sem sagt saman þarna frábæra helgi þar sem við brölluðum margt skemmtilegt saman vinkonurnar.  Takk stelpur fyrir allt.

Þannig að eftir sukksama helgi er bara að taka á því aftur, en ég var nú samt bara voða dugleg, borðaði ekkert nammi og passaði mig í mataræðinu.  Þannig að það er bara bootcamp núna á efitr og svo er það Alfa í kvöldTounge hvers getur kona óskað meira.

Alþingi var sett í dag að ný, vonandi eiga eftir að gerast góðir hlutir þar í vetur, ég hef trú á að þingmenn VG eiga eftir að standa sig vel þrátt fyrir að vera í stjórnarandstöðu.

Dugar að sinn

knús Sædís


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband