Konur yfir fertugt.

Já maður getur greinilega haft mikið til að hlakka til þegar maður verður 40 ára, en það er nú svo langt í það hjá mérLoL

Eftir því sem ég eldist (sagt af karlmönnum), met ég mest konur yfir fertugt og hér eru
nokkrar ástæður hversvegna:


Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig
"hvað ertu að hugsa?"
Hún kærir sig kollótta um hvað þú ert að hugsa. Ef kona yfir fertugt
vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir því. Hún gerir
eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en
leikurinn
.

Konur yfir 40 eru virðulegar. Þær fara sjaldan í
öskurkeppni við þig í óperunni eða á fínum veitingastað. Auðvitað
gera þær það ef þú átt það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig
ef þær halda að þær komist upp með það. Eldri konur eru örlátar á
hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að vera ekki metin að
verðleikum.


Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að
viðurkenna misbresti þína fyrir þeim. Þegar þú getur litið framhjá
einni eða tveimur hrukkum, er kona yfir 40 langtum kynþokkafyllri en
yngri kynsystur hennar. Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja
þér eins og skot að þú sért asni ef þú hagar þér sem slíkur. Þú þarft
aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær. Já, við dásömum
konur yfir fertugt af mörgum ástæðum. Því miður er það ekki
gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel greidda konu
yfir fertugt, er sköllóttur, vambmikill forngripur í gulum buxum
gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.



Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna
þegar þú getur fengið mjólkina frítt" hér eru nýjar upplýsingar;


Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum Hversvegna?


Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa heilt svín þótt þær langi í smá pulsu!


Andy Rooney


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Þetta er yndislegt... gott að maður er ekki 25 lengur

Linda Lea Bogadóttir, 3.10.2007 kl. 13:09

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sædís

Þetta er ljótt, einn góðan veðurdag verður kvennaremba jafnt sem karlremba litin sömu augum og rasismi.

Og það eru jafn oft kjánalegar konur að eltast við smástráka sem karlar við smástelpur.

En þetta með eldri konur er sumt samt satt, þær eru miklu skemmtilegri.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 3.10.2007 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband