6.1.2008 | 00:19
Bara flottastir og bestir:)

![]() |
Ronaldo og Rooney tryggðu United sigur á Aston Villa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.1.2008 | 23:30
Sveitarpía í borgarferð....
Mín þurfti að skreppa í höfðuborgina í dag með frumburðinn. Þegar því var lokið sem við vorum að sinna saman setti ég hann í hendur föður sins og ætlaði svo sannarlega að notfæra mér það að vera í borginni og börnin hja pabba sínum
.
Mér hafði nefnilega skilist að það væru hafnar útsölur í borginniþ Mín brunaði niðri i Kringlu og þegar ég kom þangað hélt ég að ég væri hreinlega að missa af einhverju, eitthvað stórfenglegt hlyti að hafa farið framhjá mér því slík var traffíkin, þarna og bíll við bíl og hvergi stæði að sjá við alla Kringluna. Litla sveitarhjartað lagði nú ekki i þetta og ákvað ég þá bara að kíkja í Smáralind í staðinn. Oh nei þarna var það sama upp á teningnum. Var síðasti dagur verslanna í dag? Átti að fara að loka öllu endanlega og allir að flýta sér að ná einhverju??? úff ég bara skildi þetta ekki, enda ekki vön slíkum mannfjölda hérna á bakkanum, nema ef skildi verða á Jónsmessu
.
En stæði fann ég við Smáralind og þar sem ég var nú í alvöru erindagjörðum, annað en allir hinir ákvað ég að skella mér inn, setti mig í stellingar og inn í mannþröngina fór ég. Ég lauk við að skila þessu sem ég var að skila og ákvað þá að láta aðeins freistast og kíkja smá á útsölur
Haldið að mín hafi ekki bara séð þessi agalega lekker stígvel á 50 prosent off.... humm allt of gott til að láta það fram hjá sér fara
En þá kom nú babb í bátinn, mín hafði gleymt kortinu einhver staðar á Eyrarbakka (líklega Guðsvilji þar á ferð til að bjarga mér) og þá voru nú góð ráð dýr
En þá mundi ég eftir því sem var sérhannað fyrir okkur konurnar, Krítarkortið, það var ný kolnað eftir desember og þá var bara að velgja því aðeins
Nú þar sem mín er líka búin að minnka smá, varð ég hreinlega að fá mér nýjar gallabuxur og fann svaka fínar buxur í vero moda og top shop
Þegar þarna var komið við sögu áttaði ég mig á því að ég var að verða of sein á fund hjá danska, því nú var ekki nein miskunn í gangi, sá danski skyldi aftur í gang eftir mikið át og sukk yfir blessuð jólin
Klukkan að verða 6 og ég átti að mæta klukkan 6. Það er nú ekki langt að fara úr Smáralind niður á Garðatorg. En þegar ég er annars vegar getur það verið mjög langt. Mín brunaði út í myrkrið og rigninguna, tók stefnuna í þá átt sem ég taldi vera rétta og ég get svarið það, ég hef líklega fundið eina malarveginn og ólýsta veginn í Kópavogi. Allt í einu var ég komin á einhvern hestastíg eða ég veti ekki hvert þannig að ég varð að snúa við og finna réttu leiðina til baka. Verst að þarna var ekki riddarinn á hvíta hestinum (bílnum) að leiðbeina mér
Allt tókst þetta á endanum og mín náði á vigtina og viti menn það voru farin 1.7 kg. til viðbótar og í alls eru þá farin 14.9 kg.
En þetta er nú ekki allt, ég skellti mér síðan á samkomu hjá Samhjálp, þegar ég loks fann það húsnæði fann ég líka þetta fina bílastæði og ég voða glöð, lagði bílnum og gekk inn. Svolítlu seinna heyrði ég sagt í kallkerfið að það væri grár skódi sem væri lagt ólöglega fyrir innkeyrslu humm mín ekki alveg að fatta leikreglur borgarinnar, læddist út og færði bílinn svo litið bæri á. En samkoman var yndisleg og mikill kraftur þar á ferð og gaman að hitta svona mikið af vinum sínum.
Já ég hugsa að ég leggi ekki í aðra borgarferð á næstunni eða ekki í brá að minnsta kosti nema kannski þá aðgengilegar leiðir.
Guð gefi ykkur góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.1.2008 | 22:32
Frí að baki, janúar og þorrinn framundan
Jamms allt tekur enda um síðir. Á morgun hefst skólstarf á ný, réttara sagt er starfsdagur á morgun og svo koma krakkarnir hinn daginn. Þetta jólafrí leið mjög hratt en var á sama tíma afar kærkomið og mjög notalegt í alla staði nema ef til vill hefði heilsan mátt vera betri á minni.
Nú er bara kaldur janúar framundan og litið við því að gera nema að taka honum með opnum örumum yfirleitt hafa janúar og febrúar og líka mars verið þeir mánuðir sem mér hafa fundist erfiðastir og þyngstir.
En núna ætla ég að taka þeim með opnum örmum, gera eitthvað dásamlegt á hverjum degi, kannski einhverjum detti nú í hug að bjóða mér í leikhús eða út að borða, hver veit Ég gæti vel hugsað mér að nota gjafakortið sem ég fékk í jólagjöf og fara á snyrtistofu i smá dekur, láta nudda á mér táslurnar og lakka þær voða fínt og fá smá andiltsbað og nudd
ég fer að byrja í bootcampinu aftur og nú skal tekið á því eftir jólin Auk þess sem ég veit að það á að vera jesúkonuhelgi, stórmót í kotinu aftur og svo kannski kemst ég vonandi inn í Þórsmörk á þorra eins og undanfarin tvö ár
Núna hef ég Guð, kirkjuna mína og það samfélag til að stunda, auk alls annars sem ég er í. Það er svo sem nóg að gera í bæjarpólitíkinni alltaf og svo hefst námið mitt á ný á mánudaginn auk þess sem ég er í fullu starfi sem kennari og líka sem móðir 3. barna sem eru í sínum tómstundum og fl. þannig að það er ekki eins og ég hafi ekkert að gera
Ég hef fulla trú á þvi að þessir þrír mánuðir verði bara vel bærilegir og fullt af spennandi hlutum eftir að gerast Hann hefur ákveðnar áætlanir fyrir mig og ég er bara væntandi og spennt fyrir því hvað það er.
Já lífið er bara yndislegt er það ekki
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.1.2008 | 21:44
Mótvægisaðgerðir???????
Þetta er hið versta máli og það sorglega er að víða um land er ástandið mjög slæmt, bara í mínu nágrannasveitarfélagi Ölfusi var eitt fyrirtækið að segja upp nýlega langflestu starfsfólki sínu. Viða um land eru sjávarútvegsfyrirtæki i rekstrarerfiðleikum.
Mótvægisaðgerðir eru að skila afar litlu, virðist vera misheppnuð tilraun við að klóra aðeins yfir þessi mistök að skera kvótann svo mikið niður. Ríkisstjórnin verður að koma með betri aðgerðir til að styðja við bakið á sjávarútveginum þar sem þeir skáru kvótann eins mikið niður sl. haust eins og raun ber vitni.
![]() |
Uppsagnir á Dalvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.1.2008 | 12:41
Þá vantar bara eiginmanninn.....eða...
Eða hvað... hvers vegna á hamingja og vellíðan kvenna að byggjast á því hvort þær séu hamingjusamlega giftar? Eða í sambandi yfir höfuð? Sem fráskilin ung kona líður mér bara yfirhöfuð nokkuð vel og tel að til að maður geti verið hamingjusamur, þurfi maður líka að geta verið hamingjusamur einn. Vissulega eykur það oft ánægju að vera í góðu sambandi. Þarna er lika talað um hjálplegan eiginmann, vissulega er oft gott að fá aðstoð ef maður getur ekki gert hlutinn sjálf, en aðstoðin getur líka komið frá örðum, konur eiga oft góða að s.s mága, feður, vini og fl. sem oft eru tilbúin að rétta hjálparhönd.
Gott vitundarsamband við Guð eins og kemur fram í þessari rannsókn hefur mjög góð áhrif á líðan og góð trúariðkun getur komið í stað svo margs, þess vegna er greinilega mikilvægara skv. þessari könnun að vera í góðu andlegu vitundarsambandi við Guð en í veraldlegu sambandi.
Vissulega er gott samband það sem flestir þrá, eiga félaga sem hægt er að eyða ævinni með, eiga sálufélaga til að gera marga skemmtilega hluti með. Við manneskjurnar erum skapaðar félgasverur þannig að eðlilega sækjum við í félagsskap hjá hvort öðru. En við megum ekki hengja okkur svo á aðra manneskju að það valdi þunglyndi eða hvað eina sé sú manneskja ekki til staðar.
![]() |
Trúariðkun og hjálplegur eiginmaður draga úr streitu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.1.2008 | 13:09
Hjartanlega sammála honum.
Þetta eru orð að sönnu á hjá biskup okkar Íslendinga. Við verðum að standa vörð um þjóðararfinn okkar. Við höfum verið mikil bókmenntaþjóð í gegnum árin en það er að breytast, lestrarvenjur eru að breytast til muna og það er ekki bara skólans að halda uppi lestri, heldur þurfa heimilin einnig að taka þátt í þessu líka. Lesskilningur skv. PISA er ábótavant hjá okkur Íslendingum og það þarf að bæta það. Það gerist ekki nema með auknum lestri á margvíslegu efni og bókmenntum.
![]() |
Alvarlegt ef börn rofna úr tengslum við þjóðararfinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.12.2007 | 18:44
Enda frábær kona þarna á ferð.
![]() |
Svandís maður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 15:21
Áramót....
- Nú árið er liðið í aldanna skaut
- og aldrei það kemur til baka,
- nú gengin er sérhver þess gleði og þraut,
- það gjörvallt er runnið á eilífðar braut,
- en minning þess víst skal þó vaka.
Já enn og aftur eru komin áramót, ég held svei mér að tíminn líði hraðar núna en nokkru sinni fyrr. Það þýðir að ég eldist hraðar en nokkru sinni fyrr en aukinn aldur þýðir aukinn þroski ekki satt
og um áramót tilheyrir það að líta yfir árið og stæra sig af þvi sem vel eg gert, reyna að bæta fyrir það sem fór miður og læra af öllu saman. Horfa fram á veginn, á ókomið ár með mikla eftirvæntingu í huga. Horfa björtum augum fram á veginn. Því lífið hefur upp á svo mikið að bjóða og ef við erum móttækileg þá öðlumst við það sem við þráum. Guð sér um sína svo sannarlega.
En það er svo stutt síðan að ég var að gera upp árið 2006 og nú er komið að því að gera upp þetta blessaða ár sem nú er að hverfa á braut.
En það var nú bara ansi margt sem ég baukaði á árinu, ég og mín börn. Við áttum að minnsta kosti gott ár saman.
- Ég seldi Avensinn í janúar og keypti mér suparo impresu, rosa kúúl pæjubíl sem síðar reyndist aðeins of lítill fyrir mig og minn endalausa farangur þannig að ég seldi hann með vorinu og fékk mér skoda oktavía.
- Ég náði að mála gluggana að mestu í sumar, þ.e. kláraði það frá sumrinu áður. Keypti reyndar þakmálningu sem vonandi fer á í sumar bara í staðinn.
- Djammaði mun minna á þessu ári en því síðasta, aukinn þroski væntanlega...
- Leitaði að ástinni, fann hana af og til en týndi henni jafnóðum.
- Ég fór í árlega ferð inn í Þórsmörk á þorra með frábæru fólki og naut þess að vera í náttúruundrunum þar. ÉG ELSKA að ferðast eins og allir vita
- Ég ferðaðist því sem aldrei fyrr á árinu, fór með Ingu vinkonu og Guðnýju til kóngsins Köben þar sem við áttum saman fráæbara helgi sem seint gleymist og ég sló svo rækilega í gegn á Samsbar í kareoki.
- Ég fór nokkru síðar til Belgíu með BES í skólaheimsóknir í Brussel, þetta var frábær ferð og það kom mér á óvart hvað Brussel er falleg borg.
- í lok sumars fór ég með börnum mínum og 2 systrum og fjölskyldum þeirra til Portugal í tvær vikur, frábær tími og ég naut þess í botn að vera í sólinni með frábæru fólki.
- Ég ferðaðist líka mikið innanlands, keypti mér tjaldvagn til að geta ferðast enn meira. Fór í nokkrar stuttar útilegur og fór síðan í eina reisu um austfirði og að sjálfum Kárahnjúkum með góðum vini mínum. Ég þarf samt að læra að bakka með vagninn næsta sumar, ekki alltaf hægt að finna nógu breið svæði til að keyra með hann í hring.
- Ég skipti um vinnustað, þ.e ég tók mér ársleyfi í Sunnulækjarskóla og kom aftur heim í heimahagana og fór að kenna við Barnaskólann.
- Agnes Halla byrjaði í skóla og er svo dugleg og farin að lesa á fullu, komin með margar fullorðins tennur og er bara svo frábær stelpa.
- Jóhannes hóf að ganga til prests þar sem á að frema kallinn í vor, flottur strákur sem er búinn að vera að læra á trommur í vetur líka.
- Hörður ákvað að fara aftur í Sunnulækjarskóla í haust, honum líkar það stórvel. Hann er alltaf jafn duglegur að læra á píanóið og er bara rosa flottur á því.
- Krakkarnir mínir eignuðust hálfsystur á árinu.
- Kosningar voru í vor og eignaðsit VG þinmann hér í suðurkjördæmi, og var kosningabaráttan mjög skemmtileg og gefandi.
- Ég tók við formennsku i leikskólanefnd í mars þegar urðu breytingar á fólki hjá okkur í VG, einnig varafomaður í ÍTÁ
- Ég varð 35 ára á árinu, Alla systir varð 40, Hjöddý, Unnar og Steindi urðu 45 ára, mamma varð 65, Bjarki fermdist, Lilja Dögg varð skýrð, Eva Björg varð skýrð þannig að það voru endalaus boð og veislur.
- Ég náði að bæta á mig slatta af aukakílóum fyrri hluta ársins og um sumarið, en í haust hóf ég átak bæði líkamlega og andlega þar sem ég hef síðan í september náð af mér 14 kílóum. Búin að vera í bootcamp sem er bara frábært.
- Ég komst í gegnum 12 sporin í al-anon og hef verið nokkuð dugleg í að vinna í þeim málum.
- Ég eignaðist litla systurdóttir hana Lilju Dögg.
- Ég fann trúna og frelsaðist og tók skírn á árinu og tel ég það vera mikið gæfuspor fyrir mig og mína. Fór á frábær mót og Alfanámskeið og margt fleira því tengt.
Þetta er það svona helsta sem ég man í augnablikinu eftir í persónulega lífinu mínu. í daglega lífinu var heilmikið að gerast og standa þá stjornmálin upp úr. En ég ætla ekki að fara út í þá sálma núna.
Ég veit að árið 2008 mun vera mjög gæfuríkt, hef miklar væntingar til þess og það er mjög margt sem ég ætla mér að gera á komandi ári.
Elsku vinir og þið sem eruð lesa þetta blogg mitt. Megi Guð gefa ykkur gleði- og gæfuríkt ár og færa blessun inn í líf ykkra allra á komandi ári.
Takk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða, fyrir vináttu og hlýhug.
Finnst einstaklega vænt um ykkur
knús Sædís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2007 | 21:24
Tónlist....
Merkilegt hvað tónlist spilar mikinn þátt í lifi fólks. Tónlist tengist tilfinningum, minningum, ýmsum gjörðum og margt fleira. Oft á tíðum tengist tónlist sérstaklega ást og þeim þáttum sem henni fylgir, hvort sem það er gleði eða sorg. Ákveðin lög tengjast oft ákvðnum minningum sem stundum er ljúft að heyra en stundum er það óbærilegt. Þegar maður er ástfanginn þá vill maður helst bara hlusta á ljúfa rómantíska tónlist, í ástarsorg getur maður ekki hugsað sér að hlutsta á slíka tónlist, þegar maður er að þrífa þá er það rokkið sem gildir eða önnur stuðtónlist, í ræktinni er það stuðið sem gildir, þegar maður er íhuga og soaka þá er það lofgjörð sem gildir og þannig mætti lengi telja.
Tónlist inniheldur oft texta. Textar eru oft misinnihaldsmiklir og snerta mismikið við manni. Margir eru mjög fallegir og segja mjög margt. Ég er þessa dagana heltekin af disknum með Katie Melua, vissi fyrst ekkert hver þessi söngkona væri en svo heyrði ég ákveðið lag og það snart mig svo sannarlega. Textinn í því lagi er mjög svo réttur eitthvað og grípur mann. Eins og segir í textanum: "I took the change of loving you" Vissulega erum við alltaf að taka ákveðinn séns ef við ákveðum að elska einhvern. Taka séns á því að ástin verði endurgoldin, taka séns á að fá ekki höfnum, taka sénsinn á svo mörgu. Vissulega er ein ást sem við gefum sem alltaf er endurgoldin en það er ást okkar til Guðs, hann svo sannarlega elskar okkur skilyrðislaust og það er gott að lifa i þeirri fullvissu. En veraldlega ástin er hverful, fólk verður ástfangið sí og æ, í mismunandi ástandi, aðstæðum og fl. Endilega hlustið á lagið og sérstaklega á textann http://www.youtube.com/watch?v=x25F3-sR2Yo
love Sædís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.12.2007 | 22:02
Í blúndudressi að skjóta upp flugeldum....
Í snjó, frosti og roki.... nei held ekki. Hvað þá að arka á brennu, í snjó eða hvernig sem veðrið verður, æða yfir tún og moldarhauga í pallíettupilsi og pinnahælum og sokkabuxur auðvitað í stíl.......
Hvers vegna að vera að koma með svona yfirlýsingar. Eins og segir í textanum: Við eigum allar að vera ofboðslega elegant, kvenlegar og fallegar á gamlárskvöld. Vera fallegar á gamlárskvöld??? kemur fegurðin með klæðnaðinum??? Konur geta verið fallegar í kuldagalla frá 66, í sundfötum og bara hverju sem er. Kallar lika nota bene.
Má fólk ekki bara klæðast hverju sem það vill. Ef ég vil vera í gallabuxum og háskólabol þá geri ég það bara og ef ég vil vera í galakjól og pinnahælum þá geri ég það bara. Ég skil ekki tilganginn i þvi að vera segja fólki hvað sé endilega inn um áramótin. Og hvernig eiga konur að fara að því að skjóta upp flugeldum í pallíettukjólum, ofurfágaðar á 20 cm pinnahælum.
Hvers vegna er ekkert sagt um það að karlar eigi að vera fágaðir... æi þetta er svolítið oldtimes að mínu mati.
Ég ætla að fara í þau föt sem henta mér best á gamlárs, eða bara hvernig liggur á mér þá
![]() |
Kvenlegar og fágaðar um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)