Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Það er nú gott....

.... að þeir eru heilir á húfi og á leið niður.

Mig hefur alltaf langað að ganga á Esjuna og stefni að því að láta verða að því í sumarCool Þarf að fá einhvern vanan fjallagöngugarp til að leiðbeina mér,annars væri mér trúandi til að lenda í sjálfheldu þarna uppiShocking.  Annars ákvað ég fyrir tveimur árum að gerast fjallageit og keypti mér þvííkan búnað að það hálfa hefði verið nóg.  Nú átti að taka á því og öll helstu fjöll og firrnindi skildu klifinShocking Humm það fór ekki alveg svo vel, ég náði að fara í þrjár fjallgöngur annað árið en ekkert hið síðara, jú reyndar líka tvær ferðir í Þórsmörk.   En markmiðið í sumar er að fara á nokkur fjöll og helst að fara Fimmvörðuháls og jafnvel Laugaveginn líka.  Það er ekkert eins skemmtilegt og að vera úti í fallegri náttúru okkar og ganga um hana og njóta hennar.  Þess vegna skiptir svo miklu máli að hún fái að vera ósnortin, en það er efni í langa langa bloggfærsluDevil.

En allavega hefur samt þessi búnaður minn komð sér að góðum notum bara í vetrarhörku og annarri útivist s.s göngu á jafnsléttu og fl.

Ég sá slóð af góðri síðu hér áðan sem er með fjallgöngur:
http://www.toppfarar.is/ auk þess sem að útivist og ferðafélagið skipuleggja margar góðar göngur.

 


mbl.is Á leið niður heilir á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ber ábyrgðina????

Þetta mál er orðið ansi teygt og togað, hver sagði hvað? hvenær? við hvern? hvers vegna? og þar fram eftir götunum.  Sjálfstæðismenn þvo hendur sínar og segjast alsaklausir, borgarstjórinn fyrrverandi og eins og staðan er þessa stundina einnig tilvonandi segir eitt og annað.  Þetta mál þarf að komast til lausnar, menn þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum.  Vera menn til að koma fram og viðurkenna þau mistök sem menn hugsanlega hafa gert, einnig að ef menn hafa ekki gert mistök og það sé sýnt og sannað að þá fái þeir uppreisn æru.  Þetta snýst um að mínu mati að menn geri hreint fyrir sínum dyrum og standi við orð og gjörðir sínar, hvort sem það sé sárt eður ei.


mbl.is Forstjóri OR álitsgjafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrumur og eldingar

Það var svo sannarlega upplýstur himinninn i kvöld.  Skemmtilegt og fallegt að fylgjast með þessum glæringum út um gluggann.

 Krafturinn sem býr í þessum eldingum og þrumum er mikill.  Veðrið er enn frekar ofsafengið og gerir það að verkum að mörg plön breytast.  Ég ætlaði að eyða helginni í bústað með krökkunum mínum í slökun og heitum potti en máttur veðursins þá Guðs er meiri en máttur okkar mannanna og því varð ég að lúffa og fá að færa ferðina þar til síðar.  Sem reyndar var mjög gott því mér sýnist mér hafa verið ætlað annað hlutverk þessa helgi en að liggja í heitum potti í kennarabústað á Flúðum.  Þannig að ég er bara nokkuð sátt við þettaCool  Ég fór í smá bíltúr niður að "bryggju" fyrr í kvöld til að sjá hvort það væri nokkuð farið að flæða yfir garðana en það var ekki komið svo langt en hver veit hvað gerist síðar í nótt.

Björgunarsveitarmenn eru enn að vinna mikla vinnu og eru alltaf jafn skjótir og duglegir að sinna útköllum.  Það hefur mætt mikið á þessum óeigingjörnu mönnum síðustu mánuði, desember var eins og flestir muna erfiður veðurfarslega og mikið um útköll þá þannig að þetta er búið að vera mjög mikið sl. mánuði.  Þeir eiga svo sannarlega hrós skilið.

 


mbl.is Björgunarsveitarmenn á Selfossi hafa staðið í ströngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottastir...

Þeir eiga þetta svo sannarlega skiliðTounge 

 Bara langflottastir....


mbl.is Tvöfalt hjá Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp er runninn öskudagur....

...ákaflega skýr og fagur. Einn með poka ekki ragur. Úti vappar heims um ból.  Góðan daginn og gleðileg jólLoL 

Já hann var afar skýr og fagur þessi öskudagur í dag.  Veðrið var alveg frábært og langði mig bara að fara í göngu upp á fjall eða út í skóg.   Það var voða gaman i vinnunni, krakkarnir komu í hinum ýmsustu búningum og við fórum og slógum köttinn úr tunninni, dönsuðum og fl. 

Heima-karoke-furdufatadagur%20i%20skola%20115Ég skellti mér í hippajúniform frá hippahátiðinni í Eyjum í hitteðfyrra, nennti ekki í Silvíu búninginn. Það komu samt upp ljúfar minningar í dag frá þeim tíma, bæði Silvíu búningnum og hippahátíðinni.  Það var eitthvað svo mikið að gerast á þessum tíma.  Breyttir tímar núna en góðir samt sem áðurCool

Jæja nú er að skella sér á fund og svo mtarboð og svo annan fund og svo ætlum við systur að funda um ferðamál sumarsinsCool

Guð blessi ykkur

knús Sædís


Mikilvægt að vel til takist

Það er mikilvægt að mínu mati að vel til takist í kjarasamningum sem verið er að gera og vinna að þessa dagana og vikurnar.  Á næstunni verða enn fleiri samningar lausir og fram á vor eru fleiri og fleiri samningar að losna. 

Launamismunur í þjóðfélaginu er orðinn sorglega mikill.  Vissulega er ánægjulegt að margir eru að fá góð laun fyrir sína vinnu.  En þegar lægstu launin rétt skríða yfir 100.þús þá er eitthvað mikið að.  Einnig eru meðallaun lika að dragast aftur úr.  Það að vera með rúm 200.000 á mánuði fyrir skatta teljast líklega ekki há laun.  Það er leitt að ríkisvaldið skuli ekki hafa viljað koma að þessum málum með einhverjum hætti. 

Lágmarkslaun verða að hækka talsvert.


mbl.is Kjaraviðræðum miðar hægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ Æ Æ

Það er ekki að standa sig nógu vel karlalandsliðið í knattspyrnu núna þessa dagana frekar en oft áður.  Er ekki eitthvað að????  Þar ekki einhverja endurnýjun í hópnum?  Kvennalandsliðið aftur á móti hefur verið að gera rosa flotta hluti, það er spurning hvort maður hefði náð að enda þar hefði maður gefið þessu meir séns hér á árum áðurLoL
mbl.is Annað tap á Möltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu sjálfhverfir geta sumir menn verið.....

.... já það á ekki af einni vinkonu minni að ganga.  Hún eins og svo margar konur í okkar sporum hefur ekki verið sú heppnasta í ástarlífinuShocking.  Hún var nú samt búin að eiga koddafélaga eða vin ( eftir því hvað ber að kalla þetta sambandsleysi þeirra)  í þrjú ár eða um það bil.  Hún bjó í sínu húsi með sínum tveimur sonum, myndarleg kona sem á allt það besta skilið og fékk að heyra það hjá okkur vinkonunum að hún ætti nú að losa sig við þennan "kærasta" þar sem að hann var ekki mikið að hugsa um hennar hagi, heldur frekar að okkar mati að hugsa um sig sjálfanGetLost.  Nóg um það, ekki hlustaði hún á ráð okkar vinkvennana en aðstæður breyttust samt þannig að hún sleit þessu "sambandi" okkur og henni síðar til mikils léttis.  Núna nýlega sagði hún mér frá því að þessi svo kallaði kærasti hafi farið fram á að hún greiddi bensínkostnað með honum þar sem hann þurfti að keyra rúma 30 km fram og til baka til að koma til hennar í heimsókn.  Ég átti ekki til orðPinch, hvar er stolt sumra manna.  Þarna er maður um 40 ára að koma að heimsækja vinkonu, kærustu sína eða hvað sem ber að kalla þetta.  Honum fannst of mikils til þess ætlast að hann yrði einn að standa undir kostnaði við að koma sér á milli staða.  Ekki var hann samt að bjóða henni að heimsækja sig, líklega þar sem hann bjó í foreldrahúsum og hafði því ekki aðstöðu til að bjóða dömunni "sinni" heim.  Úff segi ég bara, hvað er eiginlega að verða um menn í dagWoundering En ég er voða stolt af þessari vinkonu minni í dag þvi hún hefur svo sannarlega staðið sig vel í því sem hún er að taka sér fyrir hendur, ein og óstudd með sín börn. 

 


Bolludagur...

Úff það er ekki vænlegur dagur í dag í öllu þessu bolluátiCrying ég hugsa að ég líti ekkert á vigtina í dag... á morgun er svo sprengidagur og þá treður maður í sig saltketi og baunum eins og maður fái borgað fyrir þaðSick Þannig að á miðvikudaginn er best að taka á því á ný og hefja föstu bara.  Reyndar er furðufatadagur í skólanum þá, kannski maður taki bara fram Silvíu Nætur búninginn á ný eða hippajúníformið frá því á hippahátíðinni hér um áriðTounge

Annars er ég veik þessa dagana að skoða sólarlandsferðir fyrir sumariðCool Kannski best að fara að finna sér betur launaðari vinnu svo maður hafi efni á að gera eitthvað skemmtilegt. 

Stjörnuspáin er ansi skondin í dag:  Vertu varkár þegar þú segir að eitthvað muni aldrei gerast. Í dag gerast hlutinir sem vanalega gerast aldrei. Einstæðir finna ástina með því að leyfa henni að koma.  Já svona hljómar krabbinn í dag.  Já hver veit nema maður leyfi ástinni bara að koma, það er bara að finna hana fyrst ekki sattCool  En ég hef fulla trú á að það gerist fljótt.  Jamm ég er þess fullviss að allt sé á uppleið hjá mér, hvort sem það er tekjulega (veraldlega) tilfinnignalega og líkamlega, finn það baraCool

Já það er best að vera jákvæður og fullviss að Hann muni fyrir mér sjá

Guð blessi ykkur

knús Sædís


Pressan, lokaþáttur

Snökt snökt, það var lokaþátturinn af Pressunni í kvöld, ég er nú svolítið döpur yfir því að þessir frábæru þættir séu búinir, gaman reyndar að sjá endirinn.  Ég var voða glöð að sjá Láru og Halldór ná saman, passa svo vel saman eitthvað.  Finnst Halldór alveg rosa sætur ( humm hvaða leikari er þetta annarsCool) En endirinn kom smá á óvart. 

Gaman að sjá hveru íslensk þáttagerð er að blómstra, það eru margir góðir þættir búnir að vera s.s. næturvaktin og pressan.  Haldið endilega áfram þessari framleiðslu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband