Upp er runninn öskudagur....

...ákaflega skýr og fagur. Einn með poka ekki ragur. Úti vappar heims um ból.  Góðan daginn og gleðileg jólLoL 

Já hann var afar skýr og fagur þessi öskudagur í dag.  Veðrið var alveg frábært og langði mig bara að fara í göngu upp á fjall eða út í skóg.   Það var voða gaman i vinnunni, krakkarnir komu í hinum ýmsustu búningum og við fórum og slógum köttinn úr tunninni, dönsuðum og fl. 

Heima-karoke-furdufatadagur%20i%20skola%20115Ég skellti mér í hippajúniform frá hippahátiðinni í Eyjum í hitteðfyrra, nennti ekki í Silvíu búninginn. Það komu samt upp ljúfar minningar í dag frá þeim tíma, bæði Silvíu búningnum og hippahátíðinni.  Það var eitthvað svo mikið að gerast á þessum tíma.  Breyttir tímar núna en góðir samt sem áðurCool

Jæja nú er að skella sér á fund og svo mtarboð og svo annan fund og svo ætlum við systur að funda um ferðamál sumarsinsCool

Guð blessi ykkur

knús Sædís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

 flott mynd 

Gulli Dóri 

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 6.2.2008 kl. 19:25

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðisleg skvísa.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.2.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þú ert flott! Ég var voðalegur hálfgerður seinnitíma hippi á mínum unglingsárum.

Öskudagurinn var asnalegur í ár þar sem krakkarnir fengu ekki frí. Það kom ekki einn einasti að dyrum mínum í nammileit

Rúna Guðfinnsdóttir, 8.2.2008 kl. 14:04

4 Smámynd:  Íris Ásdísardóttir

Muniði eftir öskupokunum sem voru hengdir á fólk ?? Hvað varð eiginlega af þeim og fyrir hvað stóðu þeir ?? Veit það einhver ??

Íris Ásdísardóttir, 8.2.2008 kl. 23:40

5 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já man eftir þeim, það var setið við og saumað og saumað fyrir öskudaginn og svo var maður að drepast í puttunum við að beygja títiprjónana til að hengja á fólkið.

Við vorum að ræða þetta í vinnunni og þá kom ein meðþá skýringu að prjónarnir sem voru notaðir fengust ekki lengur og það væri ekki hægt að beygja þessa í dag.  sel það ekki dýrara en ég keypti það...

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.2.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband