Það er nú gott....

.... að þeir eru heilir á húfi og á leið niður.

Mig hefur alltaf langað að ganga á Esjuna og stefni að því að láta verða að því í sumarCool Þarf að fá einhvern vanan fjallagöngugarp til að leiðbeina mér,annars væri mér trúandi til að lenda í sjálfheldu þarna uppiShocking.  Annars ákvað ég fyrir tveimur árum að gerast fjallageit og keypti mér þvííkan búnað að það hálfa hefði verið nóg.  Nú átti að taka á því og öll helstu fjöll og firrnindi skildu klifinShocking Humm það fór ekki alveg svo vel, ég náði að fara í þrjár fjallgöngur annað árið en ekkert hið síðara, jú reyndar líka tvær ferðir í Þórsmörk.   En markmiðið í sumar er að fara á nokkur fjöll og helst að fara Fimmvörðuháls og jafnvel Laugaveginn líka.  Það er ekkert eins skemmtilegt og að vera úti í fallegri náttúru okkar og ganga um hana og njóta hennar.  Þess vegna skiptir svo miklu máli að hún fái að vera ósnortin, en það er efni í langa langa bloggfærsluDevil.

En allavega hefur samt þessi búnaður minn komð sér að góðum notum bara í vetrarhörku og annarri útivist s.s göngu á jafnsléttu og fl.

Ég sá slóð af góðri síðu hér áðan sem er með fjallgöngur:
http://www.toppfarar.is/ auk þess sem að útivist og ferðafélagið skipuleggja margar góðar göngur.

 


mbl.is Á leið niður heilir á húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Oh frábært... ég elska að ganga á fjöll. Á 9 tinda að baki.
Förum kannski saman í sumar

Linda Lea Bogadóttir, 10.2.2008 kl. 20:40

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Vona bara Sædís mín að þú bíðir eftir sumrinu með að klífa fjöll

Guðrún Sæmundsdóttir, 10.2.2008 kl. 22:20

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Já við ættum að gera það Linda sé þú hefur reynslu.  Það verður bara gaman.

 Já Guðrún mín, held ég láti það bíða hækkandi sól.

Sædís Ósk Harðardóttir, 10.2.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband