Færsluflokkur: Bloggar

Rétt hjá Ólafi- hann er að gera það sem stjórnvöld ættu að vera að gera...

og fyrri ríkisstjórn líka.  Ólafur Ragnar segir það sem við vitum en stjórnvöld þora ekki að segja.

Samfylkingin er á tánum í kringum þetta til að þess að styggja ekki Evrópuríkin því þeirra stefna er eins og allir ættu að vita- Að komast í ESB.

Það þarf að tala máli Íslands erlendis, gera öðrum þjóðum grein fyrir stöðunni og í fyrsta lagi, láta ekki kúga okkur.


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýrslan á bara að birtast þegar hún er tilbúin...

.... þingmenn og formenn flokkanna eiga ekkert að hafa með það. Það er rannsóknarnefndin sem kemur með hana fram.

Icesave kosningarnar eiga ekkert að hafa með það að gera hvenær hún birtist.


mbl.is Til í að fresta skýrslunni fram yfir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart:)

Enda auðvitað bestirCool
mbl.is Flestir halda með Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Björn Valur félagi minn ekki með stefnuna á hreinu???

http://eyjan.is/blog/2010/01/03/vg-fyrir-kosningar-15-20-gaetu-knuid-fram-thjodaratkvaedi-nu-flestir-andvigir-eigin-stefnu/

 þessi punktur var ein af ástæðum þess að ég starfaði fyrir Vg í síðustu kosningum. Því miður er eins og sú góða stefnuskrá sem Vg var með hafi öll verið mokað undir stól fyrir stóla......


mbl.is Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

InDefence að vinna gott starf, en hví er engin kona í viðræðuhópnum?

Ég skrifaði undir þennan lista til forseta vors og veit að slíkt hið sama gerðu um 60.000 Íslendingar.

Hópurinn sem kallar sig InDefence er að gera mjög góða hluti og ég vona svo sannarlega að forsetinn horfi á það starf og sjái hversu margir Íslendingar eru á móti þessu frumvarpi óbreyttu.

Forsetinn tók á móti þessum fulltrúum sem er af hinu góða og eflaust eru fulltrúarnir allir mjög góðir og gegnir fulltrúar þessa málstaðar en það sem stakk mig þegar ég sá þessa mynd er það að það er engin kona fulltrúi þessa hóps. Konur er samt eflaust um 30.000 af þeim sem skrifuðu undir þessa áskorun.....

Veit einhver hvers vegna það er?

 Burt séð frá því, (sem ég er reyndar mjög skúffuð yfir) þá vona ég svo sannarlega að forsetinn skrifi ekki undir þessi lög


mbl.is Skriða eftir afgreiðslu Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraftaverk

Já þarna er svo sannarlega kraftaverk á ferð.

Þetta er önnur frétt á stuttum tíma um kraftaverk Guðs.

 


mbl.is Kraftaverk á jólum: móðir og barn lifnuðu við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svik, ofbeldi og kúgun.

Þetta eru einkunnarorð ríkisstjórnar Íslands sem nú í þessu hefur náð með kúgun og valdníðslu að samþykkja einn hræðilegasta samning Íslandsögunnar.

Vissulega er orsök þessa máls komin frá auðvaldinu og fyrri ríkisstjórnum.

Hvers vegna eiga börn þessa lands og ófædd börn að gjalda fyrir skuldir og sukk óreiðumanna og einkafyrirtækja.

Hefði Icesave grætt á tá og fingri til frambúðar, hefði hagnaðurinn verið lagður inn á reikning hjá almenningi? Nei það er ég sannfærð um að svo hefði ekki farið.

Ég er verulega svekkt yfir því að þeir þingmenn Vg sem ég hafði trú á að myndu segja nei við þessum samningi, hafi samþykkt hann.


mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð tillaga sem ég trúi ekki öðru en að Vg samþykki

þeir tveir flokkar sem mynda ríkisstjórn hafa haft það að markmiði að stór og veigamikil mál skulu fara fyrir  þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ef þetta mál er ekki eitt af því stærsta sem Alþingi hefur þurft að fást við þá veit ég ekki hvað.

VG liðar ég trúi ekki öðru en að þið styðjið þetta, Vg hefur barist fyrir því að fá mál í þjóðaratkvæði. Nú er ykkar tími kominn- STANDIÐ ykkur núna.

Þjóðin á rétt á að fá að kjósa um þetta STÓRA mál.


mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjörlega magnað

Maður fær gæsahúð við að lesa þetta, magnaður vitnisburður.

Vegir Guðs eru órannsakanlegir.

Guð blessi þessa fjölskyldu.


mbl.is „Þá skaltu líka lifa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega jólahátíð:)

Megi Guð gefa ykkur öllum gleði og gæfurík jól.

 Minnumst fæðingu frelsarans og hvers vegna hann var sendur okkur.

Verið góð hvort við annað

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband