InDefence að vinna gott starf, en hví er engin kona í viðræðuhópnum?

Ég skrifaði undir þennan lista til forseta vors og veit að slíkt hið sama gerðu um 60.000 Íslendingar.

Hópurinn sem kallar sig InDefence er að gera mjög góða hluti og ég vona svo sannarlega að forsetinn horfi á það starf og sjái hversu margir Íslendingar eru á móti þessu frumvarpi óbreyttu.

Forsetinn tók á móti þessum fulltrúum sem er af hinu góða og eflaust eru fulltrúarnir allir mjög góðir og gegnir fulltrúar þessa málstaðar en það sem stakk mig þegar ég sá þessa mynd er það að það er engin kona fulltrúi þessa hóps. Konur er samt eflaust um 30.000 af þeim sem skrifuðu undir þessa áskorun.....

Veit einhver hvers vegna það er?

 Burt séð frá því, (sem ég er reyndar mjög skúffuð yfir) þá vona ég svo sannarlega að forsetinn skrifi ekki undir þessi lög


mbl.is Skriða eftir afgreiðslu Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Væntanlega vegna þess að þessir karlmenn stofnuðu Indefence!

skiptir það einhverju máli þó að það sé ekki nein kona þarna?

kristján Arnarson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 15:10

2 identicon

Smá leiðrétting, það hafa rúmlega 60.000 manns skrifað undir.

Konur eða ekki konur í hópnum, skiptir ekki máli í mínum huga. Aðalatriðið er málefnið og aðhald Indefence við stjórnvöld í málinu.

Karl Guðmundsson (IP-tala skráð) 2.1.2010 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband