Rétt hjá Ólafi- hann er að gera það sem stjórnvöld ættu að vera að gera...

og fyrri ríkisstjórn líka.  Ólafur Ragnar segir það sem við vitum en stjórnvöld þora ekki að segja.

Samfylkingin er á tánum í kringum þetta til að þess að styggja ekki Evrópuríkin því þeirra stefna er eins og allir ættu að vita- Að komast í ESB.

Það þarf að tala máli Íslands erlendis, gera öðrum þjóðum grein fyrir stöðunni og í fyrsta lagi, láta ekki kúga okkur.


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þrefalt húrra fyrir forseta vorum húrra húrra húrra!

Sigurður Haraldsson, 30.1.2010 kl. 09:47

2 identicon

Mig undrar líka aumingjaskapur núv. og fyrrv. ríkisstjórna!

ÓRG er að gera góða hluti núna.  Hann hefur gert iðrun og fylkir nú með þjóðinni.  Af hverju fylkja flokkarnir ekki með forsetanum og þjóðinni?  Hvað veldur? 

Við höfnum því að borga óreiðu-skuldir íslenskra einka-vina-væddra fjár-glæpamanna, sem enn fá að valsa óáreittir um allt valdakerfið og stofnanir ríkisins.

Hvers konar þingmenn vilja ganga erinda fjár-glæpamanna, en gegn forseta og þjóðinni?

Við segjum auðvitað NEI, þingmenn allir hljóta líka að gera það...að lokum.  Eða vilja einhverjir þingmenn beinlínis ganga gegn forsetanum og þjóðinni?

Við segjum öll NEI!

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 30.1.2010 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband