Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
27.2.2008 | 23:42
Karlamiðuð samkoma....
Smá sem stakk mig þegar ég sá þessa frétt og tengist innihaldi hennar ekki neitt, en það er að á þessari mynd eru eingöngu karlmenn. Reyndar sést smá í eina konu þarna aftast. Hvað er með jafnræði á milli kynja, þarna er fundur með forystumönnum Evrópusambandsins og þetta virðst bara vera karlar, skrýtið.
Geir: Einhliða upptaka evru gæti þýtt pólitíska erfiðleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.2.2008 | 17:27
Humm já kannski það bara...
Já ég hugsa að það sé kannski bara kominn tími á nýjan mann Að minnsta kosti talar þessi fyrirsögn beint til mín. Þannig að þá er kannski bara að fara og finna hann, en það aftur á móti getir verið þrautinni þyngri.....
Hitt er annað mál að ég veit svo sem ekkert með þennan forstjóra hvort það sé kominn tími á hann, en mér skilst hann hafi verið að gera ágætis hluti hjá Sterling. Alltaf gott þegar menn þekkja sinn vitjunartíma
Tími kominn á nýjan mann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2008 | 23:19
Hvernig er hægt að vera svona góðir:)
Man. Utd lék Newcastle grátt, 5:1 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.2.2008 | 22:48
Eurovision
Eurobandið fer til Serbíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2008 | 20:16
Nei ei ekki í þinni stærð....
Hafa ekki einhverjir fengið þetta framan í sig??? Ég lenti í þessu fyrir einu og hálfu ári síðan og þá 16 kílóum stærri Ég fór inn í eina ónefnda búð í Kjarnanum á Selfossi, mig vantaði pils (vantaði og ekki vantaði, getur maður ekki alltaf bætt í fataskápinn) ég var frekar svona ekki mikið tilhöfð, enda búin að vera að undirbúa veislu allan daginn. Ég gekk um búðina og var að skoða á rekkana, sú sem var að afgreiða var frekar upptekin við að vera í tölvunni og spjalla við einhverja vinkonu sína sem var að máta föt þarna lika. Ég næ loks athygli og spyr hana hvort hún eigi pils. Hún svara strax bara nei engin pils og heldur áfram í tölvunni. Ég læt ekki segjast og gái sjálf og finn loks eitt. Ég bendi henni á það að það séu til pils. Hún lítur á mig stórum augum og segir blákalt framan í mig: " nei sko ekki nein í þinni stærð" Þar sem ég var lika komin þarna með bol og eitthvað fl. ákvað ég að máta pilsið ásamt hinu og viti menn það passaði En þegar ég er inni í klefanum fer ég að hugsa um hvers konar framkoma þetta sé, hugsa sem svo að ég ætli nú ekki að versla í þessari búð með svona þjónstu og framkomu. Þegar ég kem fram segir stelpan svona hálfkæringslega: "Hvernig passaði þetta svo" Ég sagði henni að þetta hefði passað en ég hefði ekki áhuga á að versla hjá henni þar sem hún væri frekar dónaleg við viðskiptavininn, það væri ekki sama hvernig hann væri greinilega. Ég hef nefnilega líka komið inn í þessa búð nýlega, uppstríluð á leið í veislu og þá 16 kílóum minni og þá var viðhorfið allt annað, það var komið strax til mín og mér boðið aðstoð og hvað mig vantaði og hvað eina. ÉG hef reyndar komið inn í þessa búð eftir þetta og verslað því þarna eru margar góðar vörur og frábært glingur á boðstólnum.
Svona viðhorf hjá starfsfólki verslana er mjög leiðinlegt, að kona/maður geti ekki komið inn í búð án þess að vera voða uppstríluð til að fá aðstoð. Við erum ekki öll eins en öll eigum við rétt á að fá góða þjónustu, alveg sama í hvaða formi hún er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.2.2008 | 18:29
Góðar ályktanir
Landsmenn hrindi atlögu að almannaþjónustunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2008 | 12:04
Á ekki að eiga sér stað.
Það er hræðilegt til þess að hugsa að hér á okkar landi, þar sem við teljum okkur með ríkustu þjóð í heimi og ráðamenn vilja ekki viðurkenna það að það sé til fátætk á Íslandi, að hér skulu 111 manns búa á götunni. Grandaleysi stjórnvalda er til skammar og að það skuli vera bitbein, hver á að sjá um hvað er bara fáranlegt. Það þarf að huga að þessu fólki sem á hvergi í hús að vernda.
Ýmis samtök hafa upp á sitt einsdæmi tekið að sér að hugsa um útigangsfólk s.s. hjálpræðisherinn, Samhjálp og fl. Það er mjög gott og gilt en stjórnvöld verða að axla sína ábyrgð í þessum málum. Það er ekki hægt að stinga hausnum í sandinn og segja að hér sé ekki fátækt. Mikill hópur af þessu fólki er geðsjúkt og þar af leiðandi oft hættulegt sér sjálfum og öðrum.
Það er brýn þörf á að bretta upp ermarnar og taka á þessum málum strax.
111 manns á götunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.2.2008 | 11:50
Afmæli og ömmuhlutverk
Frumburðurinn er 14 ára í dag Til hamingju með daginn kallinn minn. Samt finnst mér þetta rosa skrýtið og alls ekki eins og það séu heil 14 ár síðan að hann fæddist.
Annars er frábært verkefni í skólanum hjá honum þessa helgi. Þau eru með "börn" að gæta um helgina. Þetta er forvarnarverkefni sem hefur verið í mörgum skólum á unglingastigi. Svo kallað "Hugsað um barn" verkefni. Hann kom heim í gær með "barn" sem er instllað á þann hátt að það vaknar reglulega og þarf þá á ummönnun að halda, ýmist fá að drekka, fá nýja bleyju eða huggun. Frábært verkefni og ég er alveg heilluð af þessu. Reyndar var frekar lítið sofið í nótt þar sem að "ömmubarnið" vaknaði reglulega og grét eins og alvöru barn. Í gær var síðan fundur fyrir foreldra barna í 8. 9.og 10. bekk þar sem var rætt um forvarnir hvað varðar áfengisdrykkju, fíkniefnanotkun, reykingar og kynlíf unglinga. Þetta var virkilega áhugaverður fyrirlestur og vakti mann til umhugsunar um marga þætti. Til dæmis kom þarna fram að um 500 stúlkur á aldrinum 14 til 19 ára verða þungaðar á ári hverju og af þeim fara um það bil 150 í fóstureyðingu (held ég sé að muna réttar tölur) Á heimasíðu ÓB ráðgjafar er að finna upplýsingar um þetta verkefni. Hér er grein um þetta verkefni sem birtist í skólavörðunni http://www.obradgjof.is/pdf/skolavardan.pdf
En þess ber að gæta að unglingurinn minn stóð sig afar vel í nótt, var samt afar þreyttur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2008 | 11:41
Holiday
Horfði á sígilda mynd í gær á stöð tvö bíó, Holyday með Cameron Diaz, Kate Winslet, Jack Black og Jude Law. Þetta er mynd sem ég get einhverra hluta vegna horft á aftur og aftur. Innihaldið er kannski ekki djúpt, heldur er um tvær konur sem búa í Englandi og USA. Báðar eiga það sameiginlegt að hafa verið sviknar af mönnum og eru því í ástarsorg. Þær hafa vistaskipti á húsnæði og kynnast þar síðan frábærum mönnum sem kannski afsanna það að allir menn séu aular og fífl. Jude Law er einstaklega flottur í þessari mynd, Jack Black er alltaf skemmtilegur leikari og gaman að horfa á myndir með honum. Mér finnst alltaf gaman að myndum með Cameron Diaz.
Fín afþreyging í flensu og kvefi að horfa á. Ég ætlaði ekkert að særa karlkynslesendur þessa bloggs með því að segja að menn væru allir aular, því margir hverjir eru jú bestu skinn og yndælis nágungar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2008 | 09:19
Frítt fyrir alla í strætó í Árborg
Í janúarmánuði hófust almenningssamgöngur innan Árborgar, meirihluti V, S og B lista í bæjarstjórn ákváðu að hafa frítt í strætó fyrir alla. Mjög flott framtak hjá meirihlutanum í Árborg.
Óljóst hvenær börn fá frítt í strætó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)