Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Hvernig hugsar fólk?

Mér er spurn, vill fólk virkilega halda óbreyttu stjórnarmynstri?  Ég vill að minnsta kosti fá breytingar.  Ég vildi að Vinstri grænir og Samfylking  næðu hreinum meirihluta.  Það er því ekki gott að sjá fylgi Sjálfstæðisflokksins haldast svona hátt, það mætti frekar síga eitthvað niður. Vonandi að fylgi VG hér í mínu kjördæmi nái sér á strik á ný.  Við erum með frábært fólk þar á lista.
mbl.is Samfylkingin aftur fram úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænir á uppleið

Það er gaman að sjá árangur VG út um allt land.  Nú eru einungis 9 dagar í kosningar og spennan eykst stöðugt.  Ég vona að þjóðin beri þess gæfu að fá hér góða, sterka vinstri stjórn
mbl.is Framsóknarflokkur tapar fylgi í Suðvesturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi blekkir kjósendur

Mig rak í rogastans þegar ég sá auglýsingu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þar sem hann segir að eini möguleikinn til að koma konu inn sé í gegnum þá.  Þessi flokkur er með konur í 4. og 5. sæti á listanum, ekki ofar.  VG hins vegar er með mjög öfluga og kraftmikla konu í 2. sæti.  Hún á mjög mikla möguleika á að komast á þing.  Samkvæmt mörgum skoðanakönnunum hefur okkar kona í VG verið inni.  Þannig að það er ekki rétta að Sjáflstæðisflokkurinn sé sá eini í stöðunni sem getur komið að konu.

Vinkonuraunir.

Ég hreinlega varð að setja þessa sögu sem ég fékk hjá vinkonu minni hingað inn, ég tek það fram að þetta er ekki ég.  Ég er heldur ekki að reyna að feta í fótspor Ellýar Ármanns, heldur fannst mér þetta svo fyndiðLoL

Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd.
Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki.
sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!!
Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

Úff aumingja vinkona mín.  Hún er enn að jafna sig á þessu.  Ég hef reyndar lent í vax veseni líka en það var bara með leggina og eftir það hef ég látið vax eiga sig, nota aðrar aðferðir við að fjarlæga óþarfa hár af fótum mínum.  Kannast enginn við slík vandamál???


Ætli hann geri mikið af því....

að hjóla nakinn þessi hjólasérfræðingurCool
mbl.is Næst því að hjóla nakinn ...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að breyta þessu.

Ég er á þeirri skoðun að það þarf að breyta þessari reglugerð.  Skólarnir eru farnir að vera fram í júní og það er allt of seint að börn séu að koma inn klukkan tiu.  Vissulega eru það foreldrar sem ráða síðan hversu lengi börnin eru úti, þ.e hvort þeir leyfi þeim að vera til tíu.  En börn þurfa góðan svefn og því er þetta of langur tími sem lög leyfa þeim að vera úti.  Einnig með 13 ára börn, mér finnst það of langur tími að þau megi vera úti til miðnættis.  Það væri nóg að láta þessar reglur taka gildi 1. júní.
mbl.is Útivistartími barna breyttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spila þeir á móti United?

Það verður spennandi ef þeir lenda á móti snillingunum í Manchester United.  Það kemur í ljós á morgun þegar United spilar við AC Milan.  Það er mjög mikilvægt að United vinni þann leik til að komast í úrslit.

Þessi leikur í kvöld var annars ansi fjörugur og spenna fram á síðustu mínútu.


mbl.is Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lámarks krafa

Auðvitað eiga allir að búa við velferð í okkar samfélagi.  Það á ekki að líðast að fátækt skuli vera eins algeng og raun ber vitni.  VG hefur á sinni stefnuskrá aðgerðaráætlun um að útrýma fátækt.  Með því að kjósa VG er verið að stuðla að bættara samfélagi hér. 


mbl.is „Velferð fyrir alla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngum til sigurs með VG

Göngum saman 1. maí

Vonandi sjáumst við sem flest í 1.maí göngunni á morgun!

1. maí - Baráttudagur verkalýðsins með VG um land allt

 

 

Baráttufundur VG í Árborg, í Selinu við Engjaveg 44
hefst kl. 16 – Baráttudagskrá: Söngsmiðja Vinstri Grænna syngur baráttusöngva, Atli Gíslason flytur barátturæðu.

Baráttufundur 1. maí á Sauðárkróki
Vinstri græn bjóða til baráttufundar á kosningamiðstöðinni að Aðalgötu 21 þann 1. maí, kl. 15:30. Auk þess að fagna degi verkalýðsins, höldum við upp á 5 ára afmæli félags Vinstri grænna í Skagafirði.
Ræðumaður verður Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur.

VG í Kópavogi - Bætum kjörin - burt með fátækt
Mikið líf og fjör verður þann 1. maí í kosningamiðstöð VG í Kópavogi, Hamraborg 1 - 3 frá kl. 15.00
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
flytur barátturæðu
Hljómsveitin Bardukha leikur af alkunnri snilld.
Við brún nýs dags. Þorleifur Friðrksson fjallar um verkalýðsbaráttuna.
Aðalsteinn Ásberg rithöfundur les ljóð.
Leikararnir Hjálmar Hjálmarsson og Valgeir Skagfjörð verða með leiklestur.
Tryggvi Hubner og Guðrún Gunnarsdóttir flytja nokkur lög.

VG í Reykjavík - Bætum kjörin - burt með fátækt
NASA - kl: 15:00
Katrín Jakobsdóttir
flytur barátturæðu
Steinunn Þóra Árnadóttir flytur ávarp
Sigríður Kristinsdóttir flytur ávarp
Einar Már Guðmundsson rithöfundur les
Kvartettinn Krummafótur með alþjóðlega tóna

BARÁTTUTÓNLEIKAR Á NASA - kl: 21:00
Pörupiltarnir Hannes
og Smári kynna af alkunnri snilld
Guðrún Gunnars syngur Ellý Vilhjálms
Einar Már flytur skáldskap
Toggi - Puppy
Dóri DNA
Nýstirnin í Johnny and the Rest heiðra okkur með nærveru sinni
Heiða í Unun með sig og heilann sinn
Didda Jóns og Mina rakastan sinua Elvis, Didda elskar Elvis

Baráttufundur og tónleikar í Kosningamiðstöð VG í Grófinni 7, Keflavík
Boðið verður upp á kaffi í miðstöðinni kl. 16 í kjölfarið eða um klukkan 17 hefjast rokktónleikar.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband