Vinkonuraunir.

Ég hreinlega varð að setja þessa sögu sem ég fékk hjá vinkonu minni hingað inn, ég tek það fram að þetta er ekki ég.  Ég er heldur ekki að reyna að feta í fótspor Ellýar Ármanns, heldur fannst mér þetta svo fyndiðLoL

Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd.
Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki.
sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!!
Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

Úff aumingja vinkona mín.  Hún er enn að jafna sig á þessu.  Ég hef reyndar lent í vax veseni líka en það var bara með leggina og eftir það hef ég látið vax eiga sig, nota aðrar aðferðir við að fjarlæga óþarfa hár af fótum mínum.  Kannast enginn við slík vandamál???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband