Ég var einu sinni ein af þeim......

Ég held ég sé að verða smá stressuðShocking nú eru rétt þrír dagar í stóra daginn. Ég er komin núna reyndar upp í rúm og ligg með tölvuna í fanginu og skrifa bréf og les blogg, fréttir og blogga.  Segi það nú ekki að það væri nú hlýlegra að hafa annað í fanginu en tölvuCool

Ég trúi því ekki að 40 % þjóðarinnar ætli virkilega að kjósa flokk auðvaldsins áfram.  Ég trúi því ekki að allar þessar einstæðu mæður, allir þessir öryrkjar, allir þessir láglaunamenn/konur, allir þessir ellilífeyrisþegar og allt þetta unga fólk sem er með börn og er að koma yfir sig þakinu skuli ætla að kjósa óbreytt ástand Gasp Ég get orðið svo svekkt þegar ég hugsa þetta.  Margir bera fyrir sig að þeir hafi alltaf kosið flokkinn og geri það bara áfram.  Hvers vegna hugsar fólk ekki rökrétt og sjáfstætt

 Ég var einu sinni ein af þeim Whistling ég skil ekki í dag hvað það var sem dró mig að þessu, jú ég veit það reyndar en skammast mín fyrir að viðurkenna það.  En ég var rétt 16 ára unglingur, það þótti mjög kúl í fjölbraut að vera í ungum sjálfstæðimönnum.  Stuðið var mest þar, boðið upp á bjór og bús og enginn maður með mönnum nema að vera einn af þeim,  vissulega voru þarna fínir einstaklingar inn á milli alveg sem síðar urðu vinir mínir og eru enn.  Ég tók virkan þátt í starfinu, pældi lítið í málefnunum, fylgdi straumnum. Pressan á krakkana er gríðarleg, þeim er ekki gefinn kostur á að hugsa sjálfstætt.   Árin liðu og ég var þarna enn.  Þarna var stuðið, þing ungra SUSara og slíkt, farið víða um landið og skemmt sér.  Árin liðu enn og á mig fóru að renna tvær grímur, mér fór að hætta að lítast á ástandið, ég fór að lesa mér til um stefnur ólíkra flokka.  Í síðustu sveitarstjórnarkosningum fyrir sameiningu í Árborg kaus ég í fyrsta skiptið vinstri flokk, það var ekki vel séð af þeim sem það vissu en ég var þarna að fylgja minni sannfæringu í fyrsta skipti ein og óháðWink rosa leið mér vel með það, fann ég var að gera rétt.  Síðan í prófkjöri því fyrsta eftir sameiningu bauð ég mig fram að gamni í prófkjöri míns gamla flokks.  Fólk spurði mig þegar það sá áherslupunktana mína hvort ég væri nú ekki í röngum flokki.  Það fóru sífellt að koma meiri og meiri efasemdir hjá mér, ég fann ég var á vitlausum stað.   var þetta það sem ég vildi sjá í þjóðfélaginu.  Vildi ég að auðmenn fengu bankana gefins, sægreifar fengu fiskinn okkar gefins, bilið milli ríkra og fátækra breikka, náttúru okkar gefna erlendu orkufyrirtækjum, náttúruauðlindum sökkt,  misrétti og kynbundið ofbeldi, mismun á búsetu, fátækt hjá börnum, yfirvöld sem samþykkja stríð og blóðbað????  Nei þetta var ekki það sem ég vildi hafa í mínu landi, ég vil ekki ala börnin mín upp við slíkt misrétti. Ég sagði mig því úr flokknum.  Ég var og er vinstri sinni og fann það alltaf betur og betur.  Ég fór að hugsa, taka sjálfstæðar ákvarðanir.  Hætti að láta blekkja mig.

Ég fór því að skoða í kringum mig, hvaða flokkur uppfyllir mínar þarfir, hver sinnir þessum málum best?  Málið var mjög einfalt, þegar ég skoðaði stefnuskrá VG fyrir síðustu kosningar sá ég að þarna var kominn flokkur sem uppfyllti mín skilyrði.  Þarna var kominn flokkur sem ég var tilbúin að vinna með og starfa í.  Þess vegna vona ég að fleiri eigi eftir að opna augun, sjá villuna í þessu öllu saman, sjá að það er til ljós og ljósið er VG

Á laugardaginn kýs ég með góðri samvisku, ég veit að mer mínu atkvæði er ég að leggja mitt að mörkunum til þess að stuðla að bættara þjóðfélagi, þjóðfélagi sem ekki mismunar fólki eftir kyni, búsetu, aldri, heilsu og launum.  Kjósið vinstri græna og þið munuð öðlast allt annað lifSmile

Jæja nú ætti ég að geta sofnað værum svefni.

vona að þetta veki einhverja til umhugsunar, umhugsunar um að kjósa samkvæmt eigin sannfæringu og láti ekki blekkjast af gylliboðum, partýum og candyflossi

knús Sædís


Til umhugsunar

8

Ég tók þessa fínu færslu af blogginu hennar Jennýar og birti hana óbreytta fyrir þá sem vilja veg kvenfrelsis sem mestan (konur og karlar auðvitað).

Gjörið svo vel!

"Ef þú ert femínisti og veltir fyrir þér hvað skuli kjósa á laugardaginn, lestu þá þetta um Vinstrihreyfinguna grænt framboð:

  • VG er eini flokkurinn sem hefur gripið til sértækra aðgerða til að jafna kynjahlutföll á framboðslistum, enda teljum við mikilvægt að auka hlut kvenna á Alþingi og í sveitarstjórnum. Niðurstöður kannana undanfarinna vikna benda til þess að VG verði eini flokkurinn með tiltölulega jafnt kynjahlutfall í þingflokkum. Hinir flokkarnir nálgast það ekki.
  • VG hefur barist ötullega fyrir málfrelsi fólks um kaup og kjör og mun halda því áfram. Með afnámi launaleyndar mun samningsstaða kvenna varðandi laun batna til muna.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um að Jafnréttisstofa fái aukið vægi, svipað Samkeppnisstofnun, að hún hafi möguleika á að afla upplýsinga og grípa til aðgerða þegar nauðsyn krefur, sem og að álit hennar verði bindandi.
  • VG kynnti sænsku leiðina fyrst til sögunnar árið 1999 og hefur aflað henni fylgis fram til dagsins í dag. Nú er svo komið að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur telja ráðlegt að gera kaup á vændi refsiverð.
  • VG hefur barist ötullega gegn klámvæðingunni - bannaði einkadans og útgáfu leyfa fyrir nýjum nektardansstöðum í borginni í tíð R-listans og vakti máls á klámráðstefnunni sem flæmd var úr landi í mars á þessu ári.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um að konur af erlendum uppruna sem búa við heimilisofbeldi verði ekki háðar maka um dvalarleyfi hérlendis.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um fórnarlamba- og vitnavernd til hagsbóta fyrir konur sem hingað eru seldar mansali.
  • VG hefur lagt fram frumvarp um austurrísku leiðina - að ofbeldismenn verði fjarlægðir af heimilum í stað þolendanna.
  • VG mun vinna að auknu kynfrelsi kvenna - m.a. með því að fjarlægja ofbeldistenginguna í nauðgunarákvæði hegningarlaga. Að nauðgun verði refsiverð, hvort sem hótun um annars konar ofbeldi fylgir glæpnum eða ekki.
  • VG vill auka jöfnuð í samfélaginu - öllum til góða."

Við þetta er engu að bæta nema merkið X við V á laugardaginn elskurnar mínar.Heart


Ekki góð þróun

Þetta er eitthvað sem mér líst ekki á.  Hvert verður svo framhaldið?  Þetta segir manni það að það er enn mikilvægara að kjósa VG til að vernda okkar náttúru svo hún fari ekki öll í virkjanir.
mbl.is Alcoa leggur fram yfirtökutilboð í Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hluti af mannréttindum

Samkynhneigðir eru fólk eins og ég og þú.  Þeirra réttur á að vera sá sami og minn er kemur að því hvort þeir megi gifta sig.  Að vera gagnkynhneigður er ekki ávísun á það að vera æðri öðrum.  Því tel ég þetta skýlausan rétt að allir fái að gifta sig hvort sem þeir eru samkynhneigðir eða gagnkynhneigðir.
mbl.is Flestir vilja að samkynhneigðir fái að giftast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

yes yes yes

Frábært í einu orði sagt.  Manchester United eru MEISTARARTounge  Til hamigju allir united aðdáendur.
mbl.is Manchester United enskur meistari 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG, besti kosturinn fyrir landsmenn.

Þess vegna er mikilvægt að VG fái góða kosningu á laugardaginn.  það stefnir nú allt í það að við verðum sigurvegarar kosninganna þar sem við erum að minnsta kosti að tvöfalda fylgi okkar frá því í síðustu kosningum. 

Annars eru þessar kannanir orðnar ansi margar og fólk hlýtur að vera orðið hálf þreytt á þeim.  Mér finnst oft á tíðum málefnin hverfa í umfjöllun um kannanir og niðurstöður þeirra.  Þær eru líka mismarktækar og áreiðanleikastuðull þeirra mis mikill.  Það er alltaf lokatölur sem ráða úrslitum og þess vegna er mikilvægt að VG fái góða kosningu til þess að hér verði einhverjar breytingar, breytingar til batnaðar.


mbl.is VG eykur við fylgi sitt í Suðvesturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sniðugt próf

 

 

Ég slengdi mér í próf sem ég rakst á hjá bloggara, sem bloggar hér á Moggablogginu. ÉG ákvað að prófa og sjá hvort mínar skoðanir væru örugglega ekki pottþéttar.  En niðurstaðan tók af allan vafa, atkvæðið  fer á réttan stað, en prófið sagði mér eftirfarandi:

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 93.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 19%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs! Sem sagt ég kýs VG og vona að sem flestir geri það líka.

Verið að reyna að redda nokkrum atkvæðum

Þótt málefnið sé sannarlega gott og mjög þarft.  Hefði ekki átt að vera búið að gera eitthvað í þessa átt fyrir langa löngu.  Hvers vegna viku fyrir kosningar??? svoldið mikil kosningarlykt af þessu.
mbl.is Samið um tannlæknaþjónustu og forvarnarskoðanir 3 og 12 ára barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagur

Ég elska föstudagaHeart notalegt að vera komin í helgarfrí og geta gert það sem maður vill.  ÉG reyndar get aldrei sofið út þannig að það er ekki það sem maður sækir í.  Heldur þetta frjálsræði sem helgarnar bjóða uppá, vera spontant gera það sem manni langar til að gera og krökkunum langar Enginn til að ráðskast með mannCool

Ég hóf vinnu í garðinum í dag og varð að beita mig hörku að halda mig að einu verki í einu, djö... hvað það var erfitt, fór reyndar af og til inn i tölvuna, bar á stóla og borð á pallinum á milli þess sem ég mokaði upp hólnum á lóðinniCrying þannig að kannski var mér ekkert að takast nógu vel að gera eitt í einuCrying En hóllinn er farinn og nú er bara að fá túnþökur einhverstaðar til að setja ofan á moldarflagið. En mikið rosalega væri ég til í að geta tekið pallinn í gegn og fengið mér pott en það verður seinni tíma vandamál, verð bara að passa að hlaupa ekki á mig og setja það á visa rað

Viti menn ég á 21 árs fermingar afmæli í dagShocking oh my god hvað tíminn líður hratt og mér finnst ég ekki hafa elst neittTounge man þetta eins og það hafi gerst í gær. Við Elín Katrín vildum báðar fá að labba með Barða heitinum inn gólfið, man samt ekki hvor gekk með honum vorum öll       álíka smáShocking ég man að ég var í skærgrænni skyrtu í hvítri pilsdrakt (reyndar hún orðin aðeins of lítil á migWhistling )  Fötin með miklum herðapúðum sem var svo mikið í tísku þarna.  Ísland tók í fyrsta skipti þátt í eurovision deginum áður. Man þegar við fermingarbörnin vorum að deyja úr spenningi inni í skrúðhúsi áður en við áttum að ganga inn kirkjugólfið, man eftri ritnignunni sem ég fór með.  Man eftir veislunni, öllum kökunum sem mamma og amma bökuðu, sat inni í herbergi allan tímann með vinkonur mínar hjá mér, hlustuðum á Duran Duran.  Man eftir plötuspilaranum sem ég fékk frá mömmu og pabba, man eftir því þegar við gengum í spurningar fyrir ferminguna þegar Úlfar þurfti alltaf að vera skamma Barða og Gísla fyrir prakkaratrik.  Man þegar ég fór svo til Elínar katrínar um kvöldið og við fórum að bera saman bækur okkar.  Ég held ég hafi fengið 11.000 krónur í fermignargjöf í peningum, fékk fullt af hálsmenum, skartgripaskrín og margt fl. Man hvað þetta var yndisslegur dagur. Man hvað mér fannst ég vera orðin rosalega fullorðin, tilbúin í að fanga heiminn.  Í dag þegar ég horfi á krakka sem eru að fermast trúi ég því varla að ég hafi verið svona mikið barnWhistling  Svona er tíminn fljótur að líða og á sunnudaginn eftir viku fermist litli frændi minn og svo fermist frumburður minn að áriCool

Jæja best að fara að taka til eftir föstudags pizzuna og fara svo að halda áfram í garðinum, loksins þegar maður byrjarTounge

Knús knús

Sædís garðálfur


Hversu lengi eiga konur að vera annars flokks þegnar?

Hvenær í veröldinni lýkur þessu misrétti.  Hversu lengi eiga þessi mannréttindarbrot að ganga?  Það nær ekki nokkri átt að konur skuli sí og æ þurfa að sækja rétt sinn með lögum.  Þetta á að vera sjálfsagður hlutur að konur og karlar í sambærilegum störfum með sambærilega menntun eigi að hafa sömu laun. VG hefur verið með þetta mál á oddinum í mörg ár og nú er bara að koma þeim að svo að þetta geti orðið að raunveruleika.  Konur hafa beðið nógu lengi eftir fullum mannréttindum.  Ég vil að dóttir mín búi við sömu kjör og karlar, ég vil búa við sömu kjör og karlar, ég vil að móðir mín og systur mínar og vinkonur mínar búi við sömu kjör og karlar
mbl.is Sýslumaður talinn hafa brotið jafnréttislög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband