Hversu lengi eiga konur að vera annars flokks þegnar?

Hvenær í veröldinni lýkur þessu misrétti.  Hversu lengi eiga þessi mannréttindarbrot að ganga?  Það nær ekki nokkri átt að konur skuli sí og æ þurfa að sækja rétt sinn með lögum.  Þetta á að vera sjálfsagður hlutur að konur og karlar í sambærilegum störfum með sambærilega menntun eigi að hafa sömu laun. VG hefur verið með þetta mál á oddinum í mörg ár og nú er bara að koma þeim að svo að þetta geti orðið að raunveruleika.  Konur hafa beðið nógu lengi eftir fullum mannréttindum.  Ég vil að dóttir mín búi við sömu kjör og karlar, ég vil búa við sömu kjör og karlar, ég vil að móðir mín og systur mínar og vinkonur mínar búi við sömu kjör og karlar
mbl.is Sýslumaður talinn hafa brotið jafnréttislög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sæl Sædís Ósk. Við konur verðum alltaf annars flokks þegnar nema að við stöndum allar saman í að allar konur verði jafnt metnar á vinnumarkaðnum á borð við karlana...Það sem hefur alltaf skort á hjá okkur konum er að fáar hafa skotist undan merkjum, ráðið sig í stöður og skrifað undir launaleynd í ráðningarsamningum sínum....A meðan þessi ósamheldni kvenna er þá geta karlarnir ráðið örlögum okkar! Þannig er það bara

Guðrún Magnea Helgadóttir, 4.5.2007 kl. 20:53

2 identicon

Sæl Sædís Ósk. Ég skil ekki þetta tal um að þú sért annars flokks þegn, því flest bendir til að hinn svo kallaði "óútskýrði" launamunur kynjanna sé hjóm eitt; innantómar blekkingar og tölfræðibrellur.

Mig langar í því sambandi að benda þér á tvær greinar sem hafa birst í Þjóðmálum, aðra eftir Dr. Helga Tómasson, dósent við HÍ (1. árg, 2. hefti) og hinsvegar eftir Heiðrúnu Lind (3. árg, 1. hefti). Þar er farið í gegnum það skref fyrir skref hvernig snúið er út úr heimildum um launagreiðslu, og færð sannfærandi rök fyrir því að engar upplýsingar liggi fyrir sem réttlæti ítrekaðar staðhæfingar um kynbundinn launamun.

Mér þætti gaman að fá þitt álit á þeim.

Hvað varðar þessa frétt sem þú skrifaðir um sýnist mér ljóst á öllu að karlinn hafi gegnt veigameira starfi en konan, þ.e. starfað sem staðgengill sýslumanns, og þau því ekki unnið sambærileg störf. Um það verður tæpast deilt. Um annað skal ég ekki fullyrða, þar sem ég veit ekki hversu háar upphæðir um ræðir.

Góðar stundir. 

Hafsteinn Gunnar Hauksson (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 23:15

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

þegar misréttið er eins og raun ber vitni, launamismunur mikill þá er það að vissu leiti verið að gera minna úr konunni.

Takk fyrir ábendingar um lesefni, alltaf gott að lesa og fræðast.

kv. Sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 4.5.2007 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband