Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Ég er að hugsa um að nota villibráð

pastaEða kannski spaghetti, ætli það virki ekki rosalega vel, rómó að minnsta kosti, lagsana virkar voða illa, mæli ekki með þvi.
mbl.is París ætlar að næla í mann með „æðislegu lasagna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búin að borða af mér 3,4 kíló....

vigtYes yes yes, mín fór í vigtun og fund í danska í kvöld og viti menn fyrstu vikuna át ég af mér 3,4 kíló.LoL  Ég er búin að vera eins og kanína í heila viku, nagandi gulrætur og kálhausa. En þetta er bara frábært og næsta skref er að fara að hreyfa sigCool

granmetiAnnars á ég mest erfitt með mig þegar ég er einhverstaðar þar sem framboð af sælgæti er mikið.... um helgina var ég að vinna í sjoppunni og oj og boj.. hvað mín átti erfitt með sig, sem betur fer tók ég með mér fullan poka af gulrótum og nartaði þær eins og óð manneskja á milli þess sem ég fór með æðruleysisbæninaCool og í lok dags var ég svo hamingusöm að hafa staðist þessar miklu freistingar. 

Ég fór á Astrópíu um daginn og mikið rosalega er hún góð, húmorinn alveg meiriháttar, mæli með henni ef þið viljið hlæja.

jæja gott í bili

Sædís kálætaShocking


Mánudagur....

rigningYndisleg byrjun á vikunni, rigning og það ekkert smá mikil rigning.   Tjaldvagninn sem ég er búin að reyna að fá til að þorna í ansi marga daga nær bara ekkert að þorna.  Annars var helgin voða notaleg.  Komst því miður ekki á flokksráðsþing VG á Flúðum þar sem ég var að vinna, en þarna var greinilega margt rætt og góðar ályktanir sendar út. Til dæmis  þessi hér ályktun um lýðræði og umhverfi.

Lýðræði og umhverfi

Fundur flokksráðs VG haldinn að Flúðum 31. ágúst til 1. september krefst þess að grundvallar stefnumótun á borð við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma sé unnin áður en lengra er haldið. Heildstæð áætlun um auðlindanotkun, landnýtingu og landsskipulag byggir á því að lýðræðisleg vinnubrögð séu viðhöfð og íbúum sveitarfélaga sé gefið það svigrúm sem nauðsynlegt er til að ná farsælum niðurstöðum í umdeildum skipulagsmálum.

Stöðugt gætir aukinnar ásælni raforkufyrirtækja í að virkja straumvötn og jarðhita til stóriðju og  hafa þau notið til þess stuðnings og velvilja ríkisstjórnarinnar. Nærtækt dæmi er leynisamkomulag fjármálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og landbúnaðarráðuneytis frá maí sl. um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár.

Á sama tíma er þrengt að sveitarfélögum, og þau beitt þrýstingi við skipulagsgerð. Það er gert í krafti þess að stjórnvöld hafa ekki markað heildarstefnu um landnýtingu, náttúruvernd eða uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Almennar leikreglur eru óskýrar og takmarkaðar og mikið skortir á að lýðræðisleg vinnubrögð hafi verið stunduð við stefnumótun eða lagasetningu. Orkufyritækin eru notuð sem keyri og neytt er aflsmuna gegn náttúruverndarsamtökum, einstaklingum og fámennum sveitarfélögum til að knýja fram niðurstöðu sem er stóriðjusinnum þóknanleg. 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur ítrekað varað við því að haldið sé áfram á þessari braut. Þingflokkur Vinstri grænna  hefur fordæmt samkomulagið um yfirtöku vatnsréttinda Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár og telur gerð samkomulagsins, sem leynt var fyrir Alþingi, íbúum og sveitarstjórnum, vera siðleysi og afar ólíklegt að það fái staðist í lagalegu tilliti. Hefur þingflokkurinn óskað álits Ríkisendurskoðunar á þeim gjörningi.

busyAnnars er bara frábær vika framundan og nóg um að vera eins og vanalega. Fullt af fundum, vinna, læra því ég er víst í námi líka, mála og svo allt hitt sem maður þarf að gera,

kv. Sædís


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband