Hvernig mun ráðherra axla sína ábyrgð í þessu???

Það er athyglisvert að fylgjast með þessu máli, nú hefur dómarafélag Íslands sent frá sér ályktun vegna þessa máls.  Í ályktun þeirra segir að álit þeirra sé að ráðherra beri að hafa umsögn nefndar til hliðsjónar við skipun dómara eða færa fyrir því viðhlítandi rök en það hafi ráðherra ekki gert.

Erlendis tæki menn í sambærilegri stöðu pokann sinn og segðu af sér og viðurkenndu misstök sín.  Hér á landi hins vegar virðist allt viðgangast, það er sama hve langt menn seilast í valdagræðgi og baráttu, menn virðast komast upp með allt.

Ég tel það miður að valdafíkn og valdahroki sé orðinn slíkur hér á landi að hugsjónir og annað sé látið víkja oft á tíðum sbr. borgarstjórnarmálíð og svo þessi ráðning.  Það getur vel verið að Þorsteinn sé fínn starfsmaður og góður dómari en málið snýst ekki um það, málið snýst um að hann var ekki metinn hæfasti umsækjandinn.  Það voru lika fleiri en einn sem voru taldir hæfari en hann.


mbl.is Dómarafélag Íslands: Ráðherra færði ekki viðhlítandi rök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þarfagreinir

Hann verður látinn fara ... yfir í Landsvirkjun.

(Segja sumir)

Þarfagreinir, 24.1.2008 kl. 01:10

2 identicon

Þú ert áhugamanneskja um trú já.

Hvernig túlkarðu þá þetta?

Þrumur og eldingar á aðfangadag í þann mund sem að menn eru að graðga í sig jólasteikina, troðfullir af ánægju yfir veraldlegum jólum.

Refsingin fyrir græðgi kemur að ofan ekki satt?

Hvernig talar almættið til okkar?

Í gegnum þá náttúru sem að Guð staðsetti okkur í?

Eða er Guð kannski bara eitthvað þægilegt til að bera fyrir sig til þess að maður geti sýnst betri en náunginn?

G.Þ. (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 01:58

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já ég er áhugamanneskja um trú og er trúuð  manneskja og það er ekki bara eitthvað þægilegt til að bera fyrir mig.  Almættið talar til samvisku okkar og ef við fylgjum samvisku okkar og erum heiðarleg þá erum við í Guðs vilja. 

Ef við gerum rangt þá er hægt að biðjast afsökurnar og leiðrétta rangar gjörðir (sé þess kostur, að öðru leiti með iðrun)  Í þessu tilfelli er að vona að Guð bendi honum á ranga ákvörðun og hjálpi honum að leiðrétta hana eða taka afleiðingum gjörða sinna.  Guð vill að við séum heiðarleg og heil í okkar starfi.

Sædís Ósk Harðardóttir, 24.1.2008 kl. 09:20

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís,  þú ættir að breyta orðinu æxla í fyrirsögninni, það á að vera axla.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 13:39

5 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Haha - eftirmaður Friðriks Sophussonar  Ætli það? Spurning!

Linda Lea Bogadóttir, 24.1.2008 kl. 14:08

6 Smámynd: Lýður Pálsson

Flott fyrirsögn.  Ekki leiðrétta! Hún er beittari svona.

Lýður Pálsson, 24.1.2008 kl. 16:45

7 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

hahhaha já það er satt, ég og mín fljótfærni  já það er satt Lýður, hún er beittari svona held henni inni

Sædís Ósk Harðardóttir, 24.1.2008 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband