9.1.2008 | 12:21
Almenningssamgöngur í Árborg.
Föstudaginn 4. janúar s.l. var undirritaður samningur milli Sveitarfélagsins Árborgar og Þingvallaleiðar um almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins. Um er að ræða tímamóta ákvörðun sem vænta má að gjörbreyti búsetuskilyrðum í Árborg.
Þarna er um flott framtak að ræða. Í stefnuskrá VG fyrir kosningarnar 2006 kom fram áætlun um að koma á samgöngum innan Árborgar.
Á síðu Árborgar kemur þetta fram: Gera má ráð fyrir að þessi þjónusta hafi í för með sér miklar breytingar fyrir íbúa utan Selfoss. T.d. fyrir börn og ungmenni sem sækja fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf á Selfoss og fyrir þá íbúa sem ekki hafa sjálfir bíl til umráða en sækja ýmsa þjónustu á Selfoss. Þá eru almenningssamgöngur mikilvægur þáttur í því að draga úr umferð bifreiða og leiða þannig til minni mengunar og slits á vegum auk þess sem rekstrarkostnaður bifreiða getur lækkað nokkuð hjá þeim sem nýtt geta strætisvagninn. Þetta er mikilvægt skref í þá átt að íbúar Árborgar njóti jafnræðis hvar sem þeir búa í sveitarfélaginu og er til þess fallið að styrkja enn frekar samkennd og samstöðu innan þessa unga sveitarfélags (www.arborg.is)
Vonandi að sem flestir nýti sér þessa þjónustu.
Athugasemdir
Þetta er frábært!
......................, 9.1.2008 kl. 14:19
Þarf ekki líka örari ferðir til borgarinnar?? kveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2008 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.