Réttlæti fyrir alla?

Gott mál að sparifjáreigendur myndi þrýstihóp til að reyna að fá sína peninga til baka.

En hvað með fólk sem ekki hefur haft pening til að leggja fyrir, heldur hefur sett allt sitt sparifé í húsnæði yfir höfuð sitt og fjölskyldu sinnar. Borgað síðan sífellt hærri og hærri afborganir af húsnæðisláni sem það þurfti að taka líka til að eignast sitt hús.  Verðbólgan hefur étið upp allt það sparifé sem fólkið lagði í húsið sitt, lánin hafa hækkað upp úr öllu valdi sem gerir það að verkum að þeir peningar sem fólk lagði í þetta eru gufaðir upp.

Hvar er réttlætið í þessu? Hvernig væri að berjast líka fyrir því að eignarhlutur fólks í sínum húsum verði réttur en gufi ekki upp.

Eitt er víst að sú ríkisstjórn sem nú er við völd er ekki líkleg til að huga að þessum málum, hún hefur haft tíma til þess en ekkert gert.


mbl.is Fjölmenni með réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Garðarsdóttir

Það er bankamálastefnan. Hún er númer eitt tvö og þrjú. Svo koma Sjávarútvegsgreifar, kaupahéðnar, osfrv svo reka heimilin restina og þá er allt búið í pottinum. Þá vantar fleiri aura til að útdeila í "aðgerðapakkana" og þá eru bara hækkaðir skattar og vextir á öllum lánum, svo afborganir verða enn þá meira óviðráðanlegri fyrir þær nokkru sálir sem hafa getað marið að halda í eignir sínar. Þegar eignahald fasteigna verður komið á fárra manna hendur þarf fasteignamarkaðurinn að taka við sér svo eignaverðmæti fasteignaeigenda rýrni ekki. Og fasteignaeigendur verða þeir kaupahéðnar sem stungu milljörðum undan á þessum örfáu árum sem kallast góðæri í íslandssögunni og hafa stundað peningaþvætti á höfuðstólnum og gróðanum í bönkum í útlendum skattaparadísareyjum.

Jóhanna Garðarsdóttir, 23.1.2009 kl. 01:22

2 Smámynd: Eygló

Satt er það Sædís.

Þetta eru svolítið ólíkir hópar og hvorugur á skilið þau högg sem á þeim lenda.

*  Annars vegar er það aðallega fólk í eldri kantinum. Það hefur kannski nurlað og sparað og lítil látið eftir sér

*  Hins vegar er það oftast yngra fólkið. Skuldsett vegna húsnæðiskaupa. Flest með börn. Og eins og þú segir hefur langt frá því haft eitthvað aflögu til að leggja í sparnað!!! Svo hækka lánin, fasteignin lækkar og loforð ´hefur fengist um að engum yrði gert að yfirgefa heimili sín.

** Undanfarið hafa svo hinir snjöllu peningamenn spilað með spariféð og með því komið á ástandi sem veldur hinum síðarnefndu ástæðum.

Ég tilheyri fyrri hópnum, en ef ég þyrfti að velja, veldi ég að seinni hópurinn yrði aðstoðaður í þessum hrikalegu kringumstæðum

Eygló, 23.1.2009 kl. 03:38

3 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

Vel mælt Eygló

Katrín Linda Óskarsdóttir, 23.1.2009 kl. 09:56

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég á eftir að sakna fundanna með þér, takk fyrir gott samstarf og góða helgi.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2009 kl. 12:58

5 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

þakka innlit

Takk sömuleiðis Ásdís, annars kom upp sú hugmynd hjá okkur Róberti að við myndum hittast í kveðjustund með Kristínu:)

Sædís Ósk Harðardóttir, 23.1.2009 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband