13.5.2008 | 23:31
Facebook og bloggleti
Það er ekki hægt að segja að ég sé búin að vera eitthvað stórtæk á blogginu sl. vikur. Það er eitthvað svo mikið búið að vera að gera líka, s.s fermingin, Londonferðin, vinnan og félagsmálin. Allt er þetta bara gaman. Ég á nú eftir að setja myndir inn frá London, fyrst þurfa þær að fara í ritskoðun hjá þeim Sigrúnu og Guðbjörgu Helgu áður en ég fæ leyfi til að setja þær hér inn
Ein er sú síða sem er hinn mesti tíma- og svefnþjófur en að er facebook.com, hún er frekar vinsæl þessa dagana hjá ungum sem öldnum. þar er hægt að taka hin margbreytilegustu próf, allt frá persónuleikaprófum, prófum í hver og þessi karakter úr þáttum og tónlistarheiminum þú ert og hvers konar karlmönnum þú heillast af. Mínar niðurstöður koma mér sífellt á óvart
Annars er lífið bara sweet and nice þessa dagana, ég er svona að spá í sumarið, hvert eigi að fara í útilegur og göngur, langar að fara Fimmvörðuháls og svo margt fleira. Einhver sem er til í að koma með . Svo verður maður nú að taka fram tjaldvagninn og fara nokkrar ferðir á honum Spurning um að taka smá tíma í að æfa sig að bakka með hann, svo ég þurfi ekki að handsnúa honum líkt og í fyrrasumar Það er bara vonandi að við fáum gott sumar.
Jæja Guð gefi ykkur fagra drauma og góða nótt.
Athugasemdir
Já, vá, facebook, tímaþjófur dauðans :)
en ykt skemmtilegur vettvangur til að kynnast fólki og skoða sjálfan sig.
Lýst vel á fimmvörðuháls hjá þér.
Irma Þöll, 14.5.2008 kl. 08:43
Sjáumst á fundinum í næstu viku. Hafðu það gott mín kæra.
Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 20:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.