21.3.2008 | 12:46
Læknar...
Þeir eru mismunandi eins og þeir eru margir Þeir eru okkur samt sem áður nauðsynlegir, líka stundum til að staðfesta fyrir okkur að við höfum rétt fyrir okkur Eða það var ég að minnsta kosti búin að ákveða. Málið er það að ég er enn og aftur komin með einhverja flensu (gott að vera þá í fríi) Mín skellti sér til doksa í gær, alveg með á hreinu hvað amaði að mér, ætlaði bara að fá lyf við þessu til að klára þetta og málið því bara dautt Oh nei, því var ekki viðkomið, eftir rúmlega 2 KLUKKUTÍMA bið á biðstofunni, ég búin að skoða sömu gömlu blöðin nokkrum sinnum, lesa fréttir úr Nýju lífi um tísku og strauma árið 1986, skoða bæklinga um getnaðarvarnir, þunglyndi og fleiri áhugaverða bæklinga, fara nokkrum sinnum á WC, heilsa fullt af fólki, reyna að sofna, ræskja mig og fl. til að sína pirring minn og senda nokkur sæt sms til ástarinnar minnar, þá komst ég loks að
Ég sagði þessum unga lækni (nokkuð myndarlegur samt) hvað amaði að mér þ.e að ég væri með hita og mikinn verk undir vinstar herðablaðinu og yfir brjóstkassanum og ferlega vont að anda en ég kæmist víst ekki hjá því og sagði honum greininguna í leiðinni sem var að mínu mati hreinlega bara lugnabólga og spurði hvort ég fengi ekki bara pensilin og svona. Þá vildi hann nú skoða mig eitthvað nánar, hlustaði mig og svona. Komst svo að því að þetta væri ekki lugnabólga eins og ég var búin að ákveða heldur brjósthimnubólga..... ok, hvað er nú það? Ekki voru brjóstin neitt bólgnari en þau eiga að vera (hann tékkaði nú ekki á því einu sinni) segi svona, nei þetta er innvortis, himna í kringum lungun víst. En ég fékk ekki réttu lyfin að mínu mati, heldur bara bólgueyðandi. Hann sagði mér sem betur fer ekki að ég ætti að taka því rólega eða vera inni við þannig að ég get svo sem gert það sem mig langar, er með grillveislu núna á eftir þannig að mér er eiginlega ekki til setunnar boðið að fara að undirbúa það. Annars hef ég svo góðan hjálparkokk í því með mer að ég get kannski leyft mér að liggja og horfa á hann grilla fyrir okkur og reyna að láta mér batna í leiðinni
Knús knús og GUð blessi ykkur
Athugasemdir
Spurning hvort við höfum verið saman í læknisfræðinni - ég er líka svona mikill doktor í mér. Samt minnir mig að við höfum fengið læknaleyfið í Barnaboxi á McDonald´s, var það ekki annars?
Ömurlegt að heyra með brjósthimnubólguna, alltaf eitthvað nýtt sem tekur við þegar maður vill það síst. Ég skal senda á þig ljós og kærleika ef þú vilt
Já og láttu endilega aðstoðarkokkinn sjá um grilleríið! "Njóttu" þess að vera veik og taktu því rólega...úti í góða veðrinu
Hafið það gott yfir páskahátíðina.
......................, 21.3.2008 kl. 13:20
Ja hérna hér. Allt er nú til
Láttu þér batna ljúfan og hafðu það gott um páskana
Knús í kotið
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 21.3.2008 kl. 14:40
Takk fyrir það Brynhildur mín
Takk Rannveig og hafðu það gott sömuleiðis
Sædís Ósk Harðardóttir, 21.3.2008 kl. 20:41
Jú mikið rétt Brynhildur og masterinn fengum við í kókopuffsi var það ekki
Sædís Ósk Harðardóttir, 21.3.2008 kl. 20:42
Um að gera að nota páskana bara í að slappa af og ná heilsu Hér er nóg að gera við að búa til boðskort fyrir fermingu frumburðsins og undirbúa afmælið hjá þeim gamla Gleðilega páska og farðu nú að láta þér batna.
Kveðja, Eggert
Eggert (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 22:34
Frábær setning ""Komst svo að því að þetta væri ekki lugnabólga eins og ég var búin að ákveða heldur brjósthimnubólga..... ok, hvað er nú það? Ekki voru brjóstin neitt bólgnari en þau eiga að vera (hann tékkaði nú ekki á því einu sinni) segi svona,"" vona bara að þér batni sem fyrst mín kæra. Gleðilega páska Komst svo að því að þetta væri ekki lugnabólga eins og ég var búin að ákveða heldur brjósthimnubólga..... ok, hvað er nú það? Ekki voru brjóstin neitt bólgnari en þau eiga að vera (hann tékkaði nú ekki á því einu sinni) segi svona,
Ásdís Sigurðardóttir, 22.3.2008 kl. 00:24
Sorry að þetta fór tvisvar ennn og aftur gleðilega páska
Ásdís Sigurðardóttir, 22.3.2008 kl. 00:25
Hæ hæ :)
Vona að þér batni sem fyrst,láttu gæjann stjana við þig hehe ;)
Knús Elín Birna..
Elín Birna (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 08:51
Takk fyri það Ásdís Gleiðilega páska sömuleiðs:)
Takk Elín, geri það
Sædís Ósk Harðardóttir, 22.3.2008 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.