Snjór og enn meiri snjór

jeppiMín datt í jeppafíling í morgun þegar ég sá snjóinn, skódadúllan mín snarbreyttist í þennan líka flotta jeppa á augabragði.  Mín tók innkeyrsluna með stæl, reykbakkaði út úr stæðinu og lá við að ég æki Steinda mág minn niður síðan var brunað út i skóla.

Þegar ég fór svo á Stokkseyri að kenna þar var ekki búið að moka almennilega við gatnamótin og mín brunaði upp í skafl þar og bang, skódinn gleymdi að hann var jeppi.  Þá kom þrjóskan upp og mín byrjaði að ýta sér fram og aftur, fram og aftur og auðvitað hafði ég þettaLoL  Ég held ég hafi notað daginn í að reyna að finna allar þær torfærur sem ég gat fundið, skrapp heim í mat og náði að parkera nógu vel í snjónum í stæðinu þar þannig að það þurfti smá átak til að losa sig þarCool

Þegar ég svo sótti Hörð á Selfoss áðan fékk ég enn meiri fíling, reyndar var mér skipað þar að fara og fá mér tjöruhreinsir á dekkin svo þau væru ekki svona sleip og það var meira að segja farið með mig svo ég gerði það nú örugglegaCool og halidð ekki að hann sé bara mun betri á eftir,

Já svei mér þá ef ég er ekki bara komin inn á bílasölusíður og skoða jeppaTounge þannig að hver veit nema næst þegar þið sjáið mig, verð ég komin á 40 tommu möddera á svaka jeppaTounge  Nú er bara að biðja um á láta mér opnast tækifæri til þessa

Knús og Guð blessi ykkur

Sædís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

þú ert flott Guð blessi þig

Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 15.1.2008 kl. 19:31

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Láttu skodann bara dugar, það hlánar bráðum. 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 23:07

3 Smámynd: ......................

...og ef Skodinn dugir ekki þá ætla ég að fara að selja jeppann minn fljótlega

......................, 16.1.2008 kl. 13:00

4 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Afsakaðu en ertu ekki á kennaralaunum?

Eiríkur Harðarson, 16.1.2008 kl. 13:18

5 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk Gulli og Guð blessi þig líka

Já vonandi fer að hlána, það væri samt gaman að eiga jeppa 

Gott að vita það Brynhildur

Jú það er málið Eiríkur og það er lika BARA það sem stoppar mig

Sædís Ósk Harðardóttir, 16.1.2008 kl. 14:27

6 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Pólóinn kemst þetta allt... langar samt hroðalega mikið í jeppa í svona færð

Linda Lea Bogadóttir, 16.1.2008 kl. 18:07

7 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Hæ Sædís. Ég er á jeppa og komst heldur betur í fílínginn í gær og í dag   Það er svo gaman þegar maður kemst allt.

Knús á þig skvís. 

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 17.1.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband