15.1.2008 | 16:48
Snjór og enn meiri snjór
Mín datt í jeppafíling í morgun þegar ég sá snjóinn, skódadúllan mín snarbreyttist í þennan líka flotta jeppa á augabragði. Mín tók innkeyrsluna með stæl, reykbakkaði út úr stæðinu og lá við að ég æki Steinda mág minn niður síðan var brunað út i skóla.
Þegar ég fór svo á Stokkseyri að kenna þar var ekki búið að moka almennilega við gatnamótin og mín brunaði upp í skafl þar og bang, skódinn gleymdi að hann var jeppi. Þá kom þrjóskan upp og mín byrjaði að ýta sér fram og aftur, fram og aftur og auðvitað hafði ég þetta Ég held ég hafi notað daginn í að reyna að finna allar þær torfærur sem ég gat fundið, skrapp heim í mat og náði að parkera nógu vel í snjónum í stæðinu þar þannig að það þurfti smá átak til að losa sig þar
Þegar ég svo sótti Hörð á Selfoss áðan fékk ég enn meiri fíling, reyndar var mér skipað þar að fara og fá mér tjöruhreinsir á dekkin svo þau væru ekki svona sleip og það var meira að segja farið með mig svo ég gerði það nú örugglega og halidð ekki að hann sé bara mun betri á eftir,
Já svei mér þá ef ég er ekki bara komin inn á bílasölusíður og skoða jeppa þannig að hver veit nema næst þegar þið sjáið mig, verð ég komin á 40 tommu möddera á svaka jeppa Nú er bara að biðja um á láta mér opnast tækifæri til þessa
Knús og Guð blessi ykkur
Sædís
Athugasemdir
þú ert flott Guð blessi þig
Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 15.1.2008 kl. 19:31
Láttu skodann bara dugar, það hlánar bráðum.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.1.2008 kl. 23:07
...og ef Skodinn dugir ekki þá ætla ég að fara að selja jeppann minn fljótlega
......................, 16.1.2008 kl. 13:00
Afsakaðu en ertu ekki á kennaralaunum?
Eiríkur Harðarson, 16.1.2008 kl. 13:18
Takk Gulli og Guð blessi þig líka
Já vonandi fer að hlána, það væri samt gaman að eiga jeppa
Gott að vita það Brynhildur
Jú það er málið Eiríkur og það er lika BARA það sem stoppar mig
Sædís Ósk Harðardóttir, 16.1.2008 kl. 14:27
Pólóinn kemst þetta allt... langar samt hroðalega mikið í jeppa í svona færð
Linda Lea Bogadóttir, 16.1.2008 kl. 18:07
Hæ Sædís. Ég er á jeppa og komst heldur betur í fílínginn í gær og í dag Það er svo gaman þegar maður kemst allt.
Knús á þig skvís.
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 17.1.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.