13.7.2007 | 00:46
Föstudagur
Það er alltaf einhver sjarmi við föstudaga.
Ég man þegar maður var unglingur eða svona rúmlega unglingur og var að vinna í humrinum, þá voru föstudagarnir oft notaðir í það að fá frí eftir hádegi t.d og þá var farið með rútunni í bæinn og keypt sér föt. Ég man þegar var verið að borga út annan hvorn föstudag, þá komu Erla og Ella niður með launaumslögin, fyrst voru peningar í umslögunum en síðar var farið að nota tæknina og leggja launin inn og þá fengum við launaseðlana. Eftir hádegi var síðan einhver sem var orðinn 20 ára, sendur í ákveðna búð á selfossi og suma föstudaga var innkaupalistinn ansi langur. Síðan var stefnan tekin annað hvort í Aratungu, Árnes, Njálsbúð eða Borg á sveitarball, sumar helgar var farið á tvo staði jafnvel. Yfirleitt var farið með sætaferðum en stundum tók einhver að sér að vera "driver" Já það var fjör í den old days.
Í dag er ekkert við að vera. Á selfossi er ekki lengur neinn skemmtistaður, félagsheimilin eru hætt að hafa sveitarböll um helgar þannig að fyrir fólk hér í dag eru ansi fáir skemmtanakostir. Þannig að þar eru breyttir tímar. Það var oft mikið brallað á þessum árum og ýmsar hugmyndir sem komu upp og voru framkvæmdar, við vinkonurnar vorum oft ansi duglegar við að bralla eitt og annað. Vá ég er komin í einhverja nostalgígju hér
En í dag er kominn föstudagur og nú er rútínan öðruvísi, nú snúast föstudagar um helgarinnkaup, innkaupamiðarnir ganga núna í búðir sem allir geta verslað í, ég panta pizzu með krökkunum og við höfum kósý stund saman. Þetta gefur manni jafn mikið og meira ef eitthvða en hitt gaf manni hér áður. Skondið hvað tímarnir breytast og mennirnir með. Það er líka ótrúlegt hvað timinn er fljótur að líða án þess að maður taki nokkuð eftir því, það sem manni finns vera örstutt eru kannski 10-15 ár.
Tíminn fýgur svo sannalega áfram
knús Sædís
Athugasemdir
Sædís "kettlingur" varstu náðirðu virkilega ekki nema tveimur böllum um eina helgi í "den old days." Þrjú voru regluleg hjá mér fim, fös og lau. Annars er þetta orðin alger della að hafa ekkert fyrir unga jafnt sem gamla, Krakkagreyin yrðu kannski ekki jafn illa haldin af skemmdarfýsn fengju þau útrás í skemmtun og dansi eins og við í "den old days."
Eiríkur Harðarson, 13.7.2007 kl. 01:05
heheh nei Eiríkur ég er að tala um á sama kvöldinu, þ.e maður var kannski í Árnesi og brunaði þaðan í Njálsbúð En vissulega tók maður fimmtud, föstudag og laugardag sérstaklega eftir að Gjáin kom til sögunnar. En það er satthjá þér, það vantar sko eitthvð fyrir unga sem aldna.
Sædís Ósk Harðardóttir, 13.7.2007 kl. 08:32
Klukk Kíktu á mína síðu
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 13.7.2007 kl. 11:53
Damnit Elín... varðst á undan!!! iss segi bara KLUKK líka!!!
Saumakonan, 13.7.2007 kl. 12:44
Hæ Sædís. Vá ég fæ bara flashback hérna, hehe. Í þá gömlu góðu daga var já ýmislegt brallað og varla prenthæft sumt af því Say no more!
Hvernig set ég þig inn sem bloggvin þannig að þú komir upp á minni síðu? Ég kann bara ekkert á þetta litli sveitalubbinn tíhí.
Bestu kveðjur til þín og þinna
Rannveig
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 13.7.2007 kl. 13:48
Eigðu góðan dag í dag
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 13.7.2007 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.