Mikilvægt að vanda til verka

Skerðing þorskkvótans er reiðarslag fyrir byggðir landsins, vissulega eru þetta þarfar aðgerðir en nú reynir á ríkið að standa að baki sjávarbyggðum landsins.  Mótvægisaðgerðir verða að verða til góðs og gagns og styrkja þarf vel hin smáu byggðarlög. 
mbl.is Árni M. Mathiesen: „Enginn verðmiði á mótvægisaðgerðum ríkisins"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl, Sædís !

Í hvaða veröld lifir þú ? ''vissulega eru þetta þarfar aðgerðir''; það er augljóst, af skrifum þínum, að þú ert meðlimur annarrar menntamanna klíkunnar, á vinstri vængnum; og slétt sama um, hvað sjávarbyggðunum tekst til, með úrlausn mála. Enda ekki nema von;; hræsnarinn og lýðskrumarinn Steingrímur J. Sigfússon gefur ykkur auðsveipum undirsátunum tóninn, hverju sinni.

Líkast til, er bara allt í lagi, hversu komið er; á Eyrarbakka og Stokkseyri, gamalgrónum verstöðvum, það vill svo til; Sædís, að ég ólst upp á þessum stöðum báðum, hér fyrrmeir, og hefði kunnað því betur, að þeir hefðu fengið, að vaxa og dafna; á eigin forsendum, ekki sem einhverjar tilraunastöðvar; í svo  kallaðri ferðaþjónustu, og það, í einhverjum galgopahætti Selfyssinga og  fólks, frá miðbiki Faxaflóans; að uppistöðu lista- og menntamenn;; það var þá helzt. Á ég einnig stóran frændgarð, í plássunum báðum.

Ætli Vinstri hreyfingin - Grænt framboð; myndi ekki flaðra viðlíka, upp um Einar Kr. Guðfinnsson, þá hann þættist ''hagræða'' í landbúnaðinum líka ?

Hvaðan, úr fjandanum eru alltof margir Íslendinga, hverjir fylgja þessu ráðslagi sprottnir ? Á kannski að murka niður allan þrótt þjóðarinnar, sem eftir lifir ?

Með blendnum kveðjum, úr Efra- Ölfusi / Óskar Helgi Helgason      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 00:18

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

sæll Óskar Helgi

Mér þykir þú fara mikinn í grein þinni sem er gott.  eins og ég sagði að þar sem þessar aðgerðir eru settar á þá verður ríkið að styðja við bakið á sjávarbyggðunum.  Ég er ekki fylgjandi kvótakerfinu, hef reyndar ekki lausnina hvað sé best en ég veit það sem íbúi þessa litla þorps sem ég bý í að hér fór allt niður á við við skerðingar, kvóta og allt sem því fylgir. Hér var mikil fiskvinnsla og vann ég heilu sumrin frá morgni til kvölds og oft þar á milli í frystihúsinu sem hér var.  Einnig voru nokkrar minni fiskvinnslur hér og allt í blóma.  Ég tel að með komu kvótans hafi þetta hrunið.  Hér vantar vissulega atvinnu og hefur það haft það að verkum að hér er litil sem engin þjónusta.

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.7.2007 kl. 09:03

3 identicon

Heil og sæl, Sædís !

Jú, jú....... auðvitað fer ég mikinn, enda niðri fyrir, sökum andstyggilegra kringumstæðna ykkar, á Eyrarbakka; sem víðar.

Þarna sjáum við, í hnotskurn, hversu illa er komið víða; og á eftir að versna enn, fari sem horfir. Félagar mínir;; þungavigtarmennirnir, í Frjálslynda flokknum hafa verið, eins og hrópandinn í eyðimörkinni; hvað þessi mál öll varðar. Vona, að Íslendingar taki nú, að rumska, að nokkru.

Þakka þér skörulegt, og kurteislega orðað svar. Hafir þú; og þitt fólk það, sem allra bezt.

Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband