13.6.2007 | 14:57
Sumarfrí og málningarvinna
Well well well þá er ég formlega komin í sumarfrí
Ég byrjaði sumarfríið á að fara með Agnesi Höllu á sundnámskeið sem hún er á, síðan lá leiðin á fund með leikskólafulltrúa til að skipuleggja næsta fund leikskólanefndar. Þar á eftir skellti ég mér í blómaval og húsasmiðjuna því nú skyldi það gerast
Ég byrjaði á að fara í málningadeildina og bað um græna gluggamálningu, ákvað að leika algjöra ljósku til að fá meiri vorkun og þá kannski biðist afgreiðslumaðurinn bara til að koma og gera þetta fyrir mig ég spurði fáranlegra spurninga eins og hvernig væri best að gera þetta og hvort ég þyrfti að gera eitthvað áður og fl. En hann virtist ekki skilja neitt hintið mitt þannig að ég spurði bara hvort hann fylgdi ekki með til að sjá um að þetta færi rétt á gluggana en hann horfði bara á mig steinhissa og hafði ekki neinn húmor fyrir þessu jæja ég skyldi þá bara gera þetta sjálf.
Næst fór ég í blómaval og náði mér í nokkrar stjúpur og hekkhandvirkarklippur. Þegar ég kom svo heim lenti ég í miklum vanda. Á hverju átti ég að byrja? Ég vildi helst gera þetta allt strax, þ.e koma niður sjtúpunum, klippa trén og mála gluggana en það er hægara sagt en gert þannig að ég ákvað að beita skynseminni sem ég á nú stundum til og sá að þar sem það var þurkur skyldi ég byrja á að mála gluggana og þá tók við annað vandamál, hvaða glugga átti ég að byrja á???? ég vildi helst mála þá alla í einu til að sjá sem mest afköst STRAX ég þurfit því að beita mig hörku við að mála bara EINN glugga í einu, sagði við sjálfa mig í gríð og erg, bara einn í einu, bara einn í einu, bara einn í einu og viti menn það tókst í lok dags var ég búin með eina umerð á alla gluggana nema eldhúsgluggann, ætla í hann á morgun og byrja svo á seinni umferðinni og þá verð ég líklega enn pirraðari því þá sést minni munur og þá er það miklu erfiðara en ég verð bara að muna, bara einn í einu En á meðan ég var að mála gluggana var ég komin á flug með lagfæringar á þakskegginu, pallinum og miklu fleiru í í leiðinni.
Okkur Agnesi Höllu tókst að ná okkur í smá lit í dag, sólin var svoldið lúmsk og náði hún að brenna pínu á handleggnum, maður áttar sig ekki alltaf á sólinni hér á landi.
Annars var helgin alveg frabær ég og krakkarnir skelltum okkur í útilegu með Sunnulækjarstaffinu í þrastarskóg, ég var svo heppin að fá lánaðan tjaldvagn hjá Olgu og Daða sem reddaði öllu Reyndar lenti ég í smá veseni með að draga hann upp í skóginn, eða réttara sagt að þegar ég kom að beygjunni að þrastarskógi áttaði ég mig ekki að hún væri svona snemma keyrði því smá fram hjá henni. Þá voru góð ráð dýr Ég kann ekki að bakka með vagn eða kerru aftan í mér ég lagði því úti í kanti og hugsaði minn gang. Hvað átti ég að gera? Ég prófaði að bakka en lenti í sjálfheldu, vagninn beygði í ranga átt Ég fór því út úr bílnum bara og losaði hann af og notaði handaflið við að snúa honum já neyðin kennir naktri konu að spinna En ferðin var frábær og veðrið lék við okkur í alla staði
Í dag er ég búin að vera að reyna að gera eitthvað vitrænt ég er að verða búin að fara tvisvar yfir á nokkrum stöðum. Merkilegt hvað næsti gluggi virkar alltaf meira spennandi en sá sem maður er að mála í augnablikinu. Ég þarf að líma mig við gluggann til að fara ekki á næsta þannig að mér verði nú eitthað að verki.
Í fyrra þegar ég byrjaði á undirbúning á þessu öllu saman bar ég eitthvað glært undirlag á gluggna og rak í burtu alla köngulærnar. En ótrúlegt en satt þá eru þær komnar aftur og þvílíkir vefir. Ég tók því bara til þess ráðs að mála þær bara með nú hanga fallegir grænir köngulóarvefir niður úr gluggunum mínum Það er bara svoldið smart og á köntunum er ein og ein kramin græn könguló Hugsið ykkur kannski eftir 100 ár þegar húsið mitt verður orðið antik þá mun fók fylkjast hingað til að skoða þessi stökkbreyttu grænu kvikindi, líklega halda að þetta séu steingerfingar Annars sé ég að Hjálmar nágranni og málarameistari horfir fölur á mig mála gluggana. Líklega hefur hann aldrei á allri sinni málaraævi klínt eins miklu á gluggana og ég geri bara í einni umferð en mér finnst það svo smart með glugga að maður getur bara skafið af þeim það sem út af fer og þá þarf maður ekkert að setja teyp á þá
Annars var ég í gær orðin svoldið leið á einhæfri vinnu þannig að ég og krakkarnir brugðum okkur í Hveragerði í blómaleiðangur. Keypti rósir í garðinn og Dalíur sem nota bene eru uppáhaldsblómin mín Síðan skelltum við okkur í Eden og fengum okkur löðrandi hamborgara
Jæja mér er ekki til setunnar boðið, gluggarnir mála sig ekki sjálfir
knús Sædís
Athugasemdir
hva... maður fer nú bara að bjóða málarameistaranum hingað til langtíburtistan... vantar nefnilega að láta mála nokkur herbergi
Saumakonan, 13.6.2007 kl. 23:51
KVITT
Brynja Hjaltadóttir, 23.6.2007 kl. 01:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.