6.3.2007 | 18:44
Fræðslufundur í Árborg
Evrópuvika gegn heimilisofbeldi 8. -15. mars 2007 fræðsluerindi í Ráðhúsi Árborgar
Vikan 8.-15. mars n.k. verður tileinkuð átaki gegn heimilisofbeldi. Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að taka þátt í þessari viku með ýmsum hætti. Meðal annars verður fræðslufundur í fundarsal á 3ju hæð Ráðhúss Árborgar þann 8. mars n.k. kl.17:15 -18:30 Framsögumenn verða:
- Ingólfur V. Gíslasson, félagsfræðingur, erindi hans nefnist ,,Hvað hefur breyst hann mun fjalla stuttlega um breytingar á stöðu og möguleikum karla og kvenna á Íslandi á síðustu áratugum, hvað sé helst athugunarvert og hver sé líkleg þróun á næstum árum.
- Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. Hún fjallar um kynbundið ofbeldi, þ.á.m. heimilisofbeldi og tengsl þess við jafnréttisbaráttuna.
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður Kvenréttindafélag Íslands, erindi hennar nefnist ,,Kraftur kvenna sem fjallar um kvenhreyfinguna og baráttu fyrir jafnrétti.
Þá verða send póstkort inn á öll heimili í Árborg til að minna á að heimilisofbeldi á ekki að líðast með upplýsingum um hvert einstaklingar geti leita sér aðstoðar vegna þess.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.