1.7.2008 | 00:44
Ástin, lífið og Guð
Það er merkilegt hvað við eigum gott í Guði, þegar maður hefur kynnst því og fundið hvað maður á þar er ekkert aftur snúið. Ég var að hlusta á svo frábært lag áðan sem Ragnheiður Gröndal syngur, lag sem flestir þekkja reyndar og fann textann til að lesa hann líka því hann er svo innihaldsríkur og segir einhvern veginn allt sem segja þar. Lesið hann endilega því hann er mjög fallegur og enn fallegri þegar hann talar inn í kringumstæður hjá manni.
Sólin brennir nóttina,
og nóttin slökkvir dag;
þú ert athvarf mitt fyrir
og eftir sólarlag.
Þú ert yndi mitt áður
og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi
og sólbráð á vetrarins ís.
Svali á sumardögum
og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli
og söngur, ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið
og guð á himnum að vin.
Þú gafst mér skýin og fjöllin
og guð til að styrkja mig.
Eg fann ei, hvað lífið var fagurt,
fyrr en eg elskaði þig.
Eg fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði eg að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað
fyrr en með sjálfum mér.
Ást mín fær aldrei fölnað,
því eilíft líf mér hún gaf.
Aldirnar hrynja sem öldur
um endalaust tímans haf.
Aldir og andartök hrynja
með undursamlegum nið;
það er ekkert í heiminum öllum
nema eilífðin, guð og við.
Athugasemdir
Já þetta er fallegt!
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 07:58
Ó já þetta er fallegt. Einu sinni átti setningin ... "ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig" svo heima í hjarta mínu. Skrítið hvað textar og lög geta skyndilega átt svo vel við. Jafnvel þó maður hafi heyrt lagið 1000 sinnum - þá bara allt í einu þarna á þessu andartaki er það sungið beint til manns.
Hafðu það gott frænka - er ekki komin tími á hitting eða hvað?
Linda Lea Bogadóttir, 1.7.2008 kl. 09:16
Já þetta er sko fallegt
Jú Linda við verðum að fara að koma þessum hitting á, gengur ekki þessi lágdeyða
Sædís Ósk Harðardóttir, 1.7.2008 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.