Baráttufundur VG í Árborg, í Selinu við Engjaveg 44 hefst kl. 16 Baráttudagskrá: Söngsmiðja Vinstri Grænna syngur baráttusöngva, Atli Gíslason flytur barátturæðu. Baráttufundur 1. maí á Sauðárkróki Vinstri græn bjóða til baráttufundar á kosningamiðstöðinni að Aðalgötu 21 þann 1. maí, kl. 15:30. Auk þess að fagna degi verkalýðsins, höldum við upp á 5 ára afmæli félags Vinstri grænna í Skagafirði. Ræðumaður verður Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur. VG í Kópavogi - Bætum kjörin - burt með fátækt Mikið líf og fjör verður þann 1. maí í kosningamiðstöð VG í Kópavogi, Hamraborg 1 - 3 frá kl. 15.00 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir flytur barátturæðu Hljómsveitin Bardukha leikur af alkunnri snilld. Við brún nýs dags. Þorleifur Friðrksson fjallar um verkalýðsbaráttuna. Aðalsteinn Ásberg rithöfundur les ljóð. Leikararnir Hjálmar Hjálmarsson og Valgeir Skagfjörð verða með leiklestur. Tryggvi Hubner og Guðrún Gunnarsdóttir flytja nokkur lög. VG í Reykjavík - Bætum kjörin - burt með fátækt NASA - kl: 15:00 Katrín Jakobsdóttir flytur barátturæðu Steinunn Þóra Árnadóttir flytur ávarp Sigríður Kristinsdóttir flytur ávarp Einar Már Guðmundsson rithöfundur les Kvartettinn Krummafótur með alþjóðlega tóna BARÁTTUTÓNLEIKAR Á NASA - kl: 21:00 Pörupiltarnir Hannes og Smári kynna af alkunnri snilld Guðrún Gunnars syngur Ellý Vilhjálms Einar Már flytur skáldskap Toggi - Puppy Dóri DNA Nýstirnin í Johnny and the Rest heiðra okkur með nærveru sinni Heiða í Unun með sig og heilann sinn Didda Jóns og Mina rakastan sinua Elvis, Didda elskar Elvis Baráttufundur og tónleikar í Kosningamiðstöð VG í Grófinni 7, Keflavík Boðið verður upp á kaffi í miðstöðinni kl. 16 í kjölfarið eða um klukkan 17 hefjast rokktónleikar. |
Athugasemdir
Til hamingju með daginn öll! Bestu baráttukveðjur,
Hlynur Hallsson, 1.5.2007 kl. 09:42
pffttt... engin 1.maí ganga hér á bæ... og ég sem dreif kall/grislinga/dóttur og barnabarn út að labba!! pfftttt segi ég bara! (ætla nú samt á verkamannakaffið á eftir)
Saumakonan, 1.5.2007 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.