Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Flækja, flækja, flækja

treStundum getur einhvern veginn allt verið ein flækja.   Bæði lífið og seríur..... ég hef náð að halda þau loforð sem ég gaf mér sl. jól um að nú myndi ég ekki skreyta svona mikiðTounge en samt er það nú þannig að alltaf þarf úr einhverjum flækjum að greiða hvort sem það er í privat lifinu eða einföldum jólaljósaseríum og ég er að glíma við bæðiErrm Ég í mínu bráðlæti á þrettánandum síðasta tók seríurnar af jólatrénu og hef bara skellt þeim ofan í jólatréskassann í þeirri einföldu von að um næstu jól væru þær sléttar og óflæktar bara sísvona,  ohh nei ekki alldeilissssShocking kvöldið er búið að fara að mestu í að leysa þessar 5 seríur sem fara á tréð, við ætlðum sumsé að skreyta tréð í kvöld því um helgina verða krakkarnir hjá pabba sínum.   Þannig að til að vera búin að eiga þá notalegu skreytingarstund saman áður en þau færu þangað því þorláksmessa er vist á sunnudaginn.  Þannig að kvöldið fór í flækjur af öllum stærðum og gerðum og á meðan bíða kúlurnar ofan i kassa til að verða settar upp, en það verður bara gert á morgun þegar mín hefur náð að losa þær allar af sinni alkunnu þolinmæðiShocking  Þannig að nú er bara privat flækjurnar sem þarf að leysa og ef ég þekki mig rétt, gerist það ekki á einni nóttu....Shocking  Hvenær skyldu hlutirnir fara að verða einfaldir hjá mérCrying  Ég er samt betur fer komin úr "aumingja ég um þessi jól" gírnum, því ég er búin að sjá það að ég er ekkert aumingja ég, ég get gert allt sem ég þarf að gera og meira til, fæ svo bara vini og vandamenn og verkstæði til að redda því sem ég get ekki sjálf....Tounge

Annars var ég á leikskólanefndarfundi í dag, þar sem við kvöddum hana Heiðdísi sem er að láta af störfum um áramót.  Á fundinum voru kynnt frumvarp til laga um leikskóla auk þess sem að móttaka nýbúa var rædd.   Á síðasta bæjarstjórnarfundi var fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2008 rædd og mikið í pípunum og margt að gerast í okkar yndæla sveitarfélagi.

santaWell well best að fara að sofa svo hurðaskellir gefi mér eitthvað fallegt í skóinn

góða nótt og Guð blessi ykkur

 


Manchester taka þetta vissulega.....

Já ég hef mikla trú á mínum mönnum og er þess fullviss að þetta verður sigur hjá þeim, þetta verður samt sem áður erfiður leikur en sætur sigur United að lokumTounge
mbl.is Man.Utd á toppnum eftir sigur á Anfield
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælum þessu sem flest

Ég er hjartanlega sammála henni Margréti Maríu umboðsmanni barna, ég á sjálf börn og er grunnskólakennari og sé að krakkar sækja mikið inn á Leikjanet.is  Mér finnst þar af leiðandi stór galli við vefinn og bara óðelilegt í alla staði að vera hafa myndir af fáklæddum konum á vefum tengdum leikjaneti.  Reyndar eru mjög margir leikir þarna inni engan vegnin barnvænir því þurfa foreldrar og forráðamenn að vera vel vakandi yfir því hvernig leik barnið þeirra er. 

 Ég skora á umsjónarmenn þessa vefs að sjá sóma sinn í því að halda ekki slíku efni þ.e nekt og jafnvel klámi að börnum og unglingum og skora á aðra að gera slíkt hið sama.


mbl.is Fáklæddar konur á vefjum tengdum Leikjaneti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasýning fimleikadeildarinnar

fimleikarÞað var mjög flott og vel upp sett jólasýning fimleikadeildarinnar á Selfossi í dag.  Ég fór á hana í fyrra líka og aftur núna og á ekki orð yfir hvað þetta er vel gert hjá þeim.  Þetta eru mjög margir iðkendur og að sjá skipulagið og utanumhaldið, ég dáist að þeim fyrir þetta.  Bara frábært í einu orði sagt hjá þeim.  Krakkarnir stóðu sig rosa vel, þau settu upp Konung ljónanna og var mjög skemmtilegt hvernig þau tóku söguna og settu hana í þetta form.

Fimleikadeildin hefur náð mjög góðum árangri á mótum.  Þau voru valin fyrirmyndrfélag hjá ÍSÍ, af því tilefni mætti Jón Hartarson bæjarfulltrúi VG á sýninguna í morgun og afhenti veglegan styrk frá Árborg.


Frábær jólafundur VG- frábærir dagar almennt

Fundurinn í kvöld hjá VG Árborg var virkilega góður, virkilega gaman að heyra þá Guðna, Einar Má og Ólaf Pál lesa úr verkum sínum.  Sé ég þarf að fá mér þessar bækur.  Jón og Atli góðir eins og þeirra von er vísa.  Við erum sko ekki svikin af því að vera með þá sem þingmann og bæjarfulltrúa.   það var mjög vel mætt á fundinn og jólaandinn sveif yfir vötnunum. 

Annars er ég bara nokkuð framtaksöm þessa dagana, þrátt fyrir að vera með fyrirmæli frá lækninum að halda mig heima því ég er vist komin með einhverja berkjubólguCrying  ÉG er búin að fara með bílinn í viðgerð og líka að sækja hannLoL  Ég var nú að hugsa um að vera ekkert að sækja hann því lánsbílinn sem ég fékk var alveg eins og minn bíll nema hvað hann var rosalega hreinn og ekkert drasl í honum þannig að ég sá mér þarna leik á borði til að geta verið á hreinum og fínum bílCool  En það kostar nú sitt að eiga bíl og þurfa að lenda með hann á verkstæði..... 55.þús átti dæmið að kosta, en það er ótrúlegt hvað allt samverkar oft til góðs, náunginn á verkstæðinu fann það út að eitthvað af þessu atti að vera í ábyrgð því bíllinn er víst ekkert svo gamall þannig að þetta lækkaði smá svonaSmile yndælis maður.  Nú ég virðist vera öll að koma til því ég dreif mig í því að fara með ofninn upp í Húsasmiðju til að kaupa nýjan alveg eins, mín arkaði inn til píparana og þóttist vera voða sleip í þessu og bað um ofn og hvort ég ætti a koma með þann gamla inn, þarna var þessi myndarlegi maður að afgreiða og hann gat auðvitað ekki hugsað sér að ég færi nú að burðast með hann út og kom því út í bíl og tók málin fyrir mig, voða næs Cool og ég meira að segja búin að fá yndælan vin minn til að setja hann upp fyrir mig því þessir píparar eru víst svo bussy alltaf þannig að þetta er bara allt í áttina hjá mér, hætt að tuða yfir vandræðum mínum og farin að framkvæma bara loksinsCool  Þetta gerist allt þegar maður sleppir tökunum á þessum málum og felur æðri mætti þauSmile  Maður ætti kannski bara að sleppa tökunum í fleiri málumTounge

Nú ég meira að segja skrapp í smástund í bæinn í dag áður en fundurinn byrjaði og verslaði jólagjafirnar eða þær sem voru eftirTounge  Síðan fór ég á smá frænku hitting á cafe bleu þar sem við Adda, Sigrún og Helena hittumst, það var voða gaman.  Eins í gærkvöldi þá vorum við systurnar með systrakvöld, þar sem við hittumst og föndruðum eða skreyttum kertiCool  Í skólanum í dag fórum við 2. og 1. bekkur i heimsókn á álfa og tröllasafnið sem allir höfðu voða gaman af. 

jæja best að fara að sofa

Guð blessi ykkur og gefi ykkur góða drauma

knús Sædís

jæja


Jólafundur VG Árborg

 vg_logo
Svæðisfélag VG Árborg heldur opinn jólafund miðvikudaginn 12. desember kl. 20.30 í Tryggvaskála á Selfossi. Fundurinn er öllum opinn og er ætlunin að eiga saman notalega stund á aðventunni. Kakó og smákökur á boðstólnum.

Dagskrá:
Eftirtaldir aðilar flytja ávörp eða lesa upp úr verkum sínum
Jón Hjartarson, bæjarfulltrúi
Sædís Ósk Harðardóttir formaður VG Árborg
Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur
Guðni Ágústsson alþingismaður
Atli Gíslason, alþingismaður,
Einar Már Guðmundsson, rithöfundur les úr bók sinni Rimlar hugans
og fleiri

Allir hjartanlega velkomnir

Stjórn Vinstri grænna í Árborg.

15 dagar til jóla

68OKOCAAG0XPFCAMGAPSPCAUNIJ95CATZW1CXCA1STYKHCADZRM5DCA8SS1ISCAEC6745CA1S2JTKCANE9HP8CAKPLLFWCAVJNMOTCAZAPYXGCAK30FEFCARZ0RXPCAZEZYS5CAXE8GBQCAUFBRFBCAW4YD0TAðventan er alltaf svo notalegur og kósý tími eins og ég er víst alltaf að tönglast á.  Jólatónleikar Fíladelfíu voru stórkostlegir og ég get ekki beðið eftir að horfa á þá á aðfangadagskvöld.

Einhvern veginn er ég alveg blessunarlega laus við allt jólastress, ég er búin að sjá það að sama hvað maður streðar við að gera fínt fyrir jólin og stundum allt í einu stress kasti þá koma bara þessi blessuð jólErrm Ég ákvað það í nóvember að nú skyldi ég njóta aðventunnar við að gera bara það sem mig og krökkunum langar til að geraLoL Ég ætla meira að segja að baka kannski eina tvær smákökutegundir, þar sem ég hef látið Frón um það sl. ár. 

Ég og krakkarnir erum að fara á jólahlaðborð á eftir í Skíðaskálanum eins og undanfarin jól með Brynhildi, Eggerti og Æsu og verður það efalaust rosa notalegt, reyndar förum við fyrst í 60 ára afmæli hjá Völu frænku þannig að vigtin á eftir að bregaðst harkalega við á morgun,  ég sem er búin að missa núna 13 kílóLoL Annars fór ég út að borða í gær líka og á kaffihúsarölt í ÁrborgTounge 

Á miðvikudaginn er svo jólafundur hjá VG í Árborg þar sem meðal annasr verður lesið úr nýjum bókum, ávörp og huggeleghedSmile  Allir velkomnir sjá nánar á www.vgarborg.is

jæja best að halda áfram því sem ég var að áður en ég gleymdi mér í tölvunni.

Guð blessi ykkurCool


Dear Lord

tweety%20funny%20prayer


Ályktanir frá aðalfundi VG Árborg

vg_logo
 

Svæðisfélag Vinstri grænna í Árborg hélt aðalfund sinn miðvikudaginn 29 nóvember. Sædís Ósk Harðardóttir var endurkjörin formaður en auk hennar sitja Jón Hjartarson, Margrét Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Andrésson og Valgeir Bjarnason í stjórn félagsins. Nokkrar ályktanir voru samþykktar; um eignarhald á Hitaveitu Selfoss, almenningssamgöngur, lækkun á leikskólagjöldum, umhverfissérfræðing og bitruvirkjun. Ályktanirnar í heild sinni fylgja hér:

Eignarhald Hitaveitu Selfoss

Aðalfundur Vg í Árborg haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2007 samþykkir eftirfarandi ályktun: Vg í Árborg leggur áherslu á að Hitaveita Selfoss sé í eigu sveitarfélagsins. Hitaveitan er öllum íbúum sveitarfélagsins mikilvæg þar sem hún annast grunnþjónustu varðandi orkuöflun og dreifingu í þágu allra íbúa sveitarfélagsins. Þessir mikilvægu hagsmunir verða ekki tryggðir nema eignarhaldið sé alfarið í höndum sveitarfélagsins. Fundurinn leggst alfarið gegn öllum hugmyndum sem kunna að fela í sér breytingu á eignarhaldi Hitaveitu Selfoss.

Almenningssamgöngur

Aðalfundur Vg í Árborg haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2007 fagnar ákvörðun bæjarstjórnar Árborgar um að hefja almenningssamgöngur milli þéttbýlisstaða sveitarfélagsins. Fundurinn leggur áherslu á að tíðni ferða og leiðakerfi verði með þeim hætti að nýtist fólki vel svo samgöngurnar verði raunverulegur valkostur. Hvatt er til þess að kanna afstöðu almennings til skipulagsins á árinu svo unnt sé að mæta óskum fólks með sem bestum hætti.

Lækkun á leikskólagjöldum

Aðalfundur Vg í Árborg haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2007 fagnar lækkun á leikskólagjöldum og telur þær góðan áfanga að gjaldfrjálsum leikskóla. Fundinum er ljóst að til að gjaldfrjáls leikskóli verði að veruleika, verða að koma til tekjustofnar frá ríkinu með sama hætti og við fjármögnun grunnskólans.

Umhverfissérfræðingur

Aðalfundur Vg í Árborg haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2007 fagnar þeirri mikilvægu ákvörðun bæjarstjórnar Árborgar að setja á fót stöðu umhverfissérfræðings á sviði skipulags og umhverfismála. Fundurinn fagnar sérstaklega að staða umhverfissérfræðings verði sett til jafns við byggingarfulltrúa og vinni á sama sviði og hann og heyri beint undir bæjarstjóra. Þessi staðreynd gefur mikilvægar vísbendingar um að meirihluti bæjarstjórnar setji umhverfismál sveitarfélagsins í efstu lög stjórnsýslunnar og ætli þeim að hafa mótunaráhrif á mikilvægar ákvarðanir stjórnsýslunnar og innan sveitarfélagsins alls

Bitruvirkjun

Aðalfundur Vg í Árborg haldinn fimmtudaginn 28. nóvember 2007 mótmælir harðlega áætlunum OR um Bitruvirkjun. Áætluð virkjun er á viðkvæmu svæði þar sem mikil ósnortin náttúruverðmæti eru í hættu. Fundurinn skorar því á sveitarstjórn Ölfus að veita ekki framkvæmdaleyfi fyrir virkjuninni, einnig skorar fundurinn á OR að hætta við fyrirhugaða virkjun og loks skorar fundurinn á borgarstjórn Reykjavíkur að beita sér fyrir því að fallið verði frá umræddum virkjunaráformum.


Bleikt og blátt

Ég ætla ekki að fara að fjalla um ákvðeðið tímarit hér heldur þessa merkilegu liti.  Umræðan hefur undanfarna daga snúist um kyngreiningu með litum.  Mér  persónulega hef alltaf fundist bleikt stelpulegt og blátt fyrir stráka og ekki fundið neitt að því.  Langar því að deila með ykkur skondinni sögu af dóttur minni er við fórum að versla úlpu á hana fyrir rúmu ári síðan þá hún rétt að verða fimm ára.  Ég á fyrir tvo stráka og þegar ég fékk stelpu fannst mér voða gaman að geta farið að dúllast með hana, greiða henni, klæða hana í kjóla og "stelpuföt"  En viti menn, þessi unga dama var með sinn smekk og sinn vilja.  Hún er með sítt hár en hún er ekki mikið fyrir pjátur og punt í hárið sitt, er frekar hársár og vill ekkert mikið láta greiða sér og oft fer hún eins og veðurbarin í skólann með hárið úfið í tagliLoL mér finnst það reyndar bara krúttulegt.  Hennar fatasmekkur einskorðast ekki bara við rautt og bleikt þrátt fyrir að það hafi verið eini litirnir sem hún átti þegar hún var ómálga. Hún er mjög litaglöð.   Úlpan sem við vorum að reyna finna fannst ekki við fyrstu leit, ég vildi rauða úlpu handa henni en hún vildi BLÁA úlpuCrying Ég reyndi að telja henni trú um að þar sem hún væri stelpa ætti hun að vera í rauðri úlpu... humm ekki mjög feminísk hugsun hjá mér sem er mjög feminísk.  Stelpan var þrjósk og ég var þrjósk, hun tók fram bláa úlpu og ég rauðaCool Allt í einu var eins og ég fengi svona smá bank á bakið og ég hugsaði með mér hvað ég væri eiginlea að spá, stelpan vildi bláa úlpu og þá ætti ég bara að leyfa henni það.  En svona getur maður verið fastur í einhverju fyrirfram ákveðnu munstri sem ég hef ekki hugmynd um hver ákvað í upphafi einu sinni.  En bláu kápuúlpuna fékk hún og er bara rosa fín í henni eins og öllu sem því sem hún er íTounge 

Þannig að þrátt fyrir að vera feministi er ég smá föst í þessu bleika og bláa.....

Guð blessi ykkur og gefi ykkur dýrðlega drauma í nótt

ég ætla að reyna að svífa um á bleiku skýi inn í draumaheiminn


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband