Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

En þú færð nú örugglega alveg samt þína jólagjöf......

Ef þetta er ekki hroki í manninum þá veit ég ekki hvað.  En þessi orð lét seðlabankastjóri falla í svari sínu við fréttamenn í útvarpinu fyrr í morgun, það verða nú örugglega margir Davíð sem eiga erfitt með að kaupa jólagjafir handa börnum sínum þessi jól.

En mikið tala þeir á skjön við hvorn annan seðlabankastjóri og fjármálaráðherra.  Davíð veit sem er að þetta mun  koma sér illa við fólk og fyrirtæki á meðan ráðherra fjármála telur þetta ekki áfall fyrir fyrirtækin í landinu.

Þetta er víst áfall fyrir fyrirtækin í landinu og heimilin.  Fjármálaráðherra verður að fara að láta af hroka sínum í garð fólksins og viðurkenna vanmátt sinn í þessu öllu saman. 

 


mbl.is Erfitt fyrir fólk og fyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna sat hann þá í stjórn Glitnis sjóða hf?????'

það  er alveg með ólíkindum hvað stjórnarþingmenn og fleiri eru duglegir að koma fram á sjónarsviðið núna með hinar ýmsu yfirlýsingar um hvað hefði verið betra að gera og þetta og hitt hefði nú verið heppilegra. 

Hvers vegna sá Illugi ekki sóma sinn í  því að stíga út úr þessari stjórn áður en hann fór á þing.  Eða var það heppilegt að hann sæti í þessari stjórn sem aðstoðamaður Davíðs Oddsonar?


mbl.is Óheppilegt að þingmenn stýri sjóðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta þá bara allt okkur að kenna Björgólfur?????

Var þá peningamálastefna stjórnvalda ekki "röng"þegar þú fékkst Landsbankann á silfurfati?

Krónan var rangt skráð og alltof sterk og þess vegna rann kaupæði á þjóðina,“ segir Björgólfur.

Á hverja rann mesta kaupæðið??  Hverjir voru það sem æddu út um allt og fjárfestu og fjárfestu hérlendis og erlendis?  Hverjir keyptu flugfélög, skipafélög og hvað eina? ´

Ef krónan var rangt skráð, því gerðuð því aldrei athugasemd við það?  Nei í staðinn var hin ranga staða hennar nýtt til að sölsa undir sig milljarða í erlendum gjaldeyri.

 


mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

101 ár

Hún amma hefði orðið 101 í dag væri hún á lífi, blessuð sé minning hennar.  Fyrir ári heiðruðum við afkomendur hennar hana með þvi að halda upp á aldarafmæli hennar (http://www.saedis.blog.is/blog/saedis/month/2007/10/?offset=10).  Það er merkilegt hvað tíminn líður og það sýnir manni líka hvað það er sem er mikilvægast í lífinu.  Þegar ástandið í þjóðfélaginu er eins og það er í dag þá finnur maður hvað það er mikilvægt að eiga ættinga og fjölskyldu.

Það að standa saman og styðja hvort annað í stöðu eins og þessari er afar mikilvægt, vera til staðar fyrir börn okkar og aðra.  Ég er sannfærð um að þó þessi staða sé erfið fyrir marga þá mun hún verða til góðs að mörgu leiti. Eins og segir í orðinu "allt samverkar til góðs"  Vonandi munum við öll láta af græðgi og eigingirni sem hefur einkennt allt of marga í þessu þjóðfélagi, vonandi verður þetta til að fólk muni fara að forgangsraða rétt, vonandi verður þetta til að við förum að meta það sme skiptir máli i lífinu.  Amma var kona sem vissi hvað það var sem skipti máli í lífinu, hún hafði alltaf tíma fyrir börn, barnabörn og barnabarnabörnin sín.  Hún lifði tímana tvenna og kynntist mörgu á sinni lífsleið.  Það sem einkenndi hana og hún hafði að leiðarljósi að mínu mati var gleði og trúfesta. 

Við lifum bara einu sinni, þess vegna er synd að eyða lífinu í græðgi, kapphlaup og ófrið. 


Algjörlega sammála.

Mikið hjartanlega er ég sammála Femínistafélaginu með þá kröfu að valdhafar landsins dragi hlutaðeigandi til ábyrgðar núverandi stöðu efnahagsmála.

Það er algjörlega óviðunandi að örfáir menn eigi að komast upp með að fá eigur okkar landsmanna upp í hendurnar svo til gefins á sínum tíma, sólunda þeim og svona líka miklu meira með án þess að þurfa að taka á því sjálfir og láta bara ríkisvaldið taka á sig skellinn.

  það að örfáir menn skuli komast upp með að veðsetja landið því það er svo sannarlega það sem þeir eru búnir að gera og láta svo almenning í landinu þrífa eftir þá ósómann á meðan þeir eru búnir að koma sér vel fyrir erlendis með fleiri milljarða margir hverjir ætti ekki að koma til greina. 

Það á að draga þessa menn til ábyrgðar og það STRAX því nógu mikil var "ábyrgðin" þeirra þegar var verið að úthluta þeim laun á sínum tíma.

Þetta er kapitalisminn í hnotskurn svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Krefjast þess að menn verði dregnir til ábyrgðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenfyrirlitning á 800 bar í kvöld

Mig rak í rogastans þegar ég kom heim í gær og sá héraðsblöðin, þar voru mjög grófar auglýsingar frá 800 bar á Selfossi þar sem auglýst var "dirty nigth" eða sóðakvöld.  þar á að fara fram sýning á klámi, ungar stúlkur ganga um beina hálf naktar og dansarar í búri.   þetta er hlutgerving á kvenlikamanum, hann gerður að söluvöru sem nota bene varðar við 210 gr. hegningarlaganna, auk þess sem þarna á að sýna klámmynd sem varðar við sömu lög þ.e dreifing á klámi.

Það að eigendur þessa staðar skuli ætla sér að græða fé á kostnað fáklæddra kvenna, kvenna í búri og klámi tel ég afar léglegt og finnst þeir leggjast á virkilega lágt plan.

Það að fólk skuli kaupa sig inn á slikan gjörning finnst mér lýsa kvenfyrirlitningu og siðferðisblindu.

Það má setja þetta upp á annan hátt:

Vilt þú borga þig inn til að sjá systur þína þjóna þér berbjósta eða sjá hana dansandi  í búri???

 Vilt þú borga þig inn á stað þar sem að kannski mamma þín eða dóttir er dansandi í búri?

Veistu að stelpan eða konan sem er að afgreiða berbrjósta eða afar fáklædd  eða er dansandi í búri var einu sinni lítil saklaus stúlka, stúlka sem gæti verið systir þín eða dóttir.......

Til að skilgreina klám þá hefur Diana Russel komið með eftirfarandi skilgreiningu en hún hefur ötullega barist á móti klámi um margra ára skeið. Hún hefur skrifað og ritstýrt fjölda bóka um efnið Diana skilgreinir klám á eftirfarandi hátt: Klám er efni sem sýnir kynlíf og/eða afhjúpuð kynfæri í tengslum við misnotkun og niðurlægingu þannig að slík hegðun sé studd, látin óátalin eða jafnvel hvatt til hennar. Með öðrum orðum þá leitast klám við að gera ofbeldi, misnotkun og niðurlægjandi kynlífshegðun „sexý”. Það er kyndir eðli máls samkvæmt undir ranghugmyndum og er þar af leiðandi skaðlegt, jafnt körlum sem konum að ekki sé talað um börnum. Um það hefur verið deilt hvort klám hvetji til nauðgana eða annars refsiverðs athæfis. Ótal frásagnir barna, sem hafa þurft að þola kynferðislega misnotkun, staðfesta að svo sé. Oft greina frásagnir þeirra af reynslu sinni frá því að þeim sé sýnt klámefni og þau síðan neydd af ofbeldismanninum til að gera eitthvað af því sem klámmyndirnar sýna. Varðandi siðferðislega skyldu okkar til að koma í veg fyrir vændi ætla ég ekki að fjölyrða, en það er löngu vitað að konur og karlar sem stunda vændi gera það ekki síst til að fjármagna fíkniefnaneyslu. Hitt er líka vitað að vændiskonur eiga oft að baki fortíð sem hlaðin er kynferðislegri misnotkun frá barnsaldri http://www.althingi.is/kolbrunh/greinar/safn/000843.html

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband