Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Skólaþing sveitarfélaga

Var á Hilton hóteli í dag á skólaþingi sambandi ísl. sveitarfélaga fyrir leikskólanefnd.  Mjög áhugavert þing þar sem farið var t.d yfir breytingarnar sem eiga að fara að verða á lögum um leikskóla og grunnksóla. http://www.althingi.is/altext/135/s/0321.html og http://www.althingi.is/altext/135/s/0319.html  Það er margt mjög gott í þessum frumvörpum sem svo sannarlega á eftir að hafa góð áhrif á skóla- og leikskólastarf í landinu.  En það er líka mjög mikilvægt að gæta þess að fé fylgi.  Það að ríkið sé að færa frekari verkefni og auka kröfur á sveitarfélögin hlýtur að fela í sér breytingar á tekjustofnum.  Mikilvægt er að færa til tekjustofna til sveitarfélaganna svo þau geti staðið undir auknum kostnaði.

Þetta var mjög gott þing, farið var yfir komandi kjarsamninga, pallborðsumræður og umræður á borðum.

 

 


Stjörnuspá.......

KrabbiKrabbi: Lærðu að þekkja keppinautinn og byggðu herkænsku á þeirri þekkingu. Í kvöld gætir þú misst af mjög varfærinni ástarjátningu ef þú ekki hlustar vel
Já það er líklega best að vera velvakandi í kvöldTounge

Flensa

veikFlensan hefur bankað á dyrnar hér, ég er búin að vera hálf drusluleg þessa viku, byrjaði í foreldraviðtölum á mánudaginn.  Ég varð að sitja í úlpu meðan ég var að tala við forelda nemanda minna þar sem ég fann hvernig kuldi, beinverkir og hiti helltist yfir migWoundering  Ég var síðan heima þriðjudag  og var greinilega veik því ég gat sofið og sofið, eitthvað sem gerist afar sjaldan hjá mér.  Fór að vinna greinilega of snemma því ég var orðin drulluslöpp aftur í dagGetLost fúlt en þetta er bara svona.  Gat ekki einu sinni notað sénsinn þar sem ég var heima til að ráðast að þvottafjallinu ógurlega.  Þetta er ótrúlegt með þennan þvot, hann virðist bara aukast þrátt fyrir mikinn vilja við að halda honum í skefjumShocking  þetta er eitthvað með mig og þvott og mig og skipulag yfir höfuð..... arrrgggg, þarf að fá svona skipulagssérfræðing hér á heimilið til að leiðbeina mérCrying  Annars má mamma nú eiga það að hún er svo skipulögð og stundum þegar henni blöskrar orðið staðan kemur hún og aðstoðar elskulega dóttur sínaCrying

Annars náði ég að horfa á stelpurnar áðan, ekkert smá fyndnar alltaf, eitt atriði var samt ansi skondið en það var þegar ein þeirra kom að borðinu hjá honum Kjartani og var að biðja hann að byrja með einni sem var að vinna með þeim.  Þetta minnti mig á okkur vinkonurnar í den, þegar við vorum í barnaskólanum þá vorum við alltaf að þessu, fara til einhverja stráka og spyrja fyrir hvor aðra hvort hann vildi byrja með þessari vinkonunniCool yndislegt alveg.  Bara að þetta væri svona auðvelt í dagLoL  Elín sérðu það ekki fyrir þér að þú farir og spyrjir .... hahahahhaTounge

Jæja föstudagskvöld og ég með þvottakvíða og flensu

Guð blessi ykkur og þvottinn minn

knús Sædís


10,3 kg.............

grennastJamm þá eru það nýjustu tölur, mín skellti sér í höfuðborgina áðan og á fund í danska, búin að vanrækja þá fundi svolítið síðustu vikur, kannski lagt meiri áherslu á bootcampið.  Ákvað að drífa mig í bæinn og nota ferðina bara í leiðinni til annarra hluta.  Noh þá eru farin í heildina 10.3 kíló, sem ég er bara nokkuð sátt viðLoL Þannig að þá var annað hvort að halda upp á það með djúsí hamborgara eða bara að kaupa sér eitthvað sættCool  og vissulega valdi ég eitthvað sætt og það var sko úr nógu að velja trúið mér.  Fór í Smáralind og keypti nokkrar jólagjafir og smá dúllerí handa mérTounge  Ég meira að segja gerðist svo fræg að koma inn í söluhæstu búð heimsins um tíma, sjálfa Toy R us.  Já ég hefði nú ekki haft neitt á móti því að þessi búð hefði verið til þegar ég var barn, missti mig smá í að skoða allt þetta flotta dót þarna inni, náði samt að kaupa bæði afmælisgjöf og jólagjöf handa prinsessunni minniCool

Bíllinn var nú eitthvað að stríða mér á leiðinni í bæinn og til baka, úff ég bíð bara efitir að það komi "game over" í mælaborðið, ljósasjóvið er orðið to much fyrir mig þannig að ég verð líklega að fara að láta tékka á þessu.  Nýlegur bíll og það bara getur ekki verið mikið að 2-3 ára gömlum bil. Stundum held ég að ég sé orginal blonde þegar kemur að bílamálumBlush En heim komst ég og það er nú fyrir mestu ekki sattLoL  En þá er það bæði ofnavandamál og bílavandamál sem bíða mín, hvers á kona að gjaldaShocking

Ég meira að segja kíkti í heimsókn til Öddu frænku sem var að setjast að í höfðuborginni með Jóni sínum.  Hann var reyndar ekki heima, var eitthvað að projecta eins og það kallast.  Flott hús hjá þeim skötuhjúum.

Þá er bara að fara að skríða í háttinn eftir skemmtilegan dag, reyndar einhver smá pest enn að stríða mér en það lagast.

Guð blessi ykkur

Sædís bílasnillingur.......


Hættum við Bitruvirkjun strax.....

minibild_19Það er mikið í húfi verði þessi virkjun að veruleika.  Gríðarlega fallegt landsvæði í túnfótinum við Hveragerði bíður þess nú að verða virkjunum að bráð.  Þeir sem hafa gengið þarna Reykjadalinn, farið í náttúrulega pottinn sem þarna er vita hversu fallegt þetta svæði er.  Ég verð svo sorgmædd að hugsa til þess að taka eigi enn eitt fallega landsvæðið okkar undir virkjun.

Ung vinstri græn á Suðurlandi hafa sent frá sér eftirfarandi áskorun. 

Hættum við Bitruvirkjun

Ung Vinstri græn á Suðurlandi, skora á Orkuveitu Reykjavíkur og borgarstjórn Reykjavíkur að hætta við áform um Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi.

Þetta svæði er mikil náttúruperla og verðmætt útivistarsvæði. Má um margt líkja því að náttúrufegurð við Landmannalaugar, sem engum heilvita manni dettur í hug að virkja.

Við minnum á að ekki er síst mikilvægt að vernda náttúru í nágrenni þéttbýlis. Það er hluti af lífsgæðum að geta notið ósnortinnar náttúru og gæta þess sem næst okkur er.

Nóg er af jarðvarmaorku sem hægt er að sækja án mikilla náttúrspjalla og nær að snú sér þangað fyrst.

Sjá einnig heimasíðuna: http://www.hengill.nu/

Vörumst vítin við Ingólfsfjall

Ung Vinstri græn á Suðurlandi skora á bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfus, að læra af mistökum sínum við afgreiðslu á efnistöku úr Ingólfsfjalli, en festast ekki í forherðingu, eins og óttast má af orðum bæjarstjóra þeirra, Ólafs Áka Ragnarssonar, á forsíðu Fréttablaðsins 9. nóvember: "Svo hefur sveitarfélagið úrslitavald að lokum og getur tekið aðra ákvörðun en Skipulagsstofnun, eins og við gerðum með námuna í Ingólfsfjalli," segir Ólafur.


Handlaginn heimilisfaðir óskast.........

hadnymanJá stundum væri gott að hafa einn slíkan hér á heimilinu.   Þrátt fyrir að lífið sé ljómandi gott og fínt eins og það er þá fara sumir hlutir úrskeiðis og bila eins og gengur og gerist með hluti....Crying   Eins fær og ég get verið á sumum sviðum þá eru nokkrir hlutir sem ég er bara ENGAN veginn fær umShocking   Eins og til dæmis þarf ég að setja upp nokkur ljós og það kann ég bara alls ekki, ég fengi líklega straum um hæl....laga bíla, pípulagnir því nú um daginn byrjaði að leka ofn inni hjá Jóhannesi syni mínum, fyrst þrætti ég við hann og sagði að hann hefði nú bara líklega hellt niður (herbergið hans er nota bene frekar svona í líkingu við herbergi 13 ára unglingspilta)  Eftir nokkrar ferðir með handklæði til að þurka upp bleytuna fór ég nú að átta mig á því að þetta væri nú líklega eitthvað annað en niðurhelling hjá drengnumWoundering  þreyfaði á ofninum, sem reyndar er búinn að vera ansi leiðinlegur allt þetta ár.  Humm jú það lak þarna úr ofninum.. humm þá voru góð ráð dýr.  Ég komin með handklæðabunkann undir ofninn en það dugði ekki til, farið að sjá á parketinu og lekinn stöðugur.  Ég fékk því minn yndæla mág hingað yfir til mín til að tékka á þessu og hann barasta tók ofninn af og aftengdi.  Þetta þýðir það að ég þarf víst að fá mér annan ofn og pípara til að setja hann upp, nema ég biðji mága mína um það.  Það er á svona stundum sem maður hugsar hversu gott það væri að hafa til staðar svona handyman á heimilinu til að dytta að hinu og þessu sem þarf að lagaCool   En eins og staðan er núna er ég nú bara voða heppin að eiga þá tvo yndæla mága sem gera þetta fyrir migSmile   svo fara synirnir nú að eldast og verða því færir í að hjálpa mömmu sinni með þessa hluti, þannig að ég þarf bara ekkert að vera að kvarta neittLoL

Skjálftar

Það má segja að það hristist nokkuð undir manni jörðin í kvöld.  Ég sat í makindum mínum við eldhúsborðið þegar ég fann smá titring, hélt reyndar að þetta væri bara þvottavélin að hamast en þegar ég sá síðan á netinu í kvöld að þetta hafi verið skjálfti tengdi ég þetta saman.

Annars falla svona minni skjálftar í skuggann af skjálftunum hér um árið 2000.  Ég man 17. júni þegar stóri kom þá, þá var ég og minn fyrrverandi að fara í brúðkaup hjá vinafólki.  Við vorum að ganga í næsta hús til vina okkar þegar jörðin skyndilega byrjaði öll að ganga til, upp  og niður.  Ég hélt svei mér að ég væri að fá eitthvað svimakast eða þar af verra.  Þangað til að vinur okkar kom hlaupandi út úr húsinu og spurði hvort við hefðum fundið skjáltann?  Mér létti stórum þar sem ég vissi að ég væri þá nokkuð heil heilsuTounge  Brúðkaupið var ansi titrandi eins og gefur að skilja þar sem nokkuð margir eftirskálftar urðu þennan dag, þessi dagur rennur víst vinum mínum seint úr minni. Þann 21. kom síðan annar svona stór skjálfti, þá var ég komin upp í rúm og ætlaði að fara að sofa þegar allt fór skyndilega að hristast á fullu, ég var í timburhúsi og veggirnir dúuðu til hægri og vinstri, frekar skrýtin tilfinning.  Þannig að nú er bara að sjá hvort þessir litlu skjálftar verið að einhverjum stærri og meiri skjálftumShocking


mbl.is Skjálftahrinan á Selfossi ekki talin fyrirboði um stærri skjálfta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólaauglýsingaflóð

jolJá það er nokkuð ljóst að nú fer að styttast í jólin, byrjað er að setja upp jólaljós hér í bæ, búðargluggar farnir að taka á sig breytta mynd og í verslunum er hið hefðbundna útlit að taka jólalegribúning.  Er þetta ekki of snemmt? Kannski ekki ljósin í bænum, þau lýsa upp skammdegið en þessi stressandi auglýsingapakki, bæklingar eru farnir að streyma inn um lúgurnar.  Gerviþarfir fólks eru auknar til muna.  Þú verður að fá þér þetta, þú kemst ekki af jólanna án þess að hafa þetta, þetta gefur lífinu gildi... og svo framvegis.  Hamingja jólanna á ekki að felast í því magni sem þú kaupir fyrir þau.  Vissulega er gaman að gleðja aðra og gefa gjafir.  En þegar tilgangur jólanna gleymist í þessari kaupmannahátíð þarf fólk að líta í eiginn barm.  Hvar er andi jólanna?  Vissulega hef ég eins og svo margir verið í þessari stöðu, gleymt mér í hátíð kaupmannsins, haldið að gleði jólanna myndi felast í því hversu mikið væri hægt að kaupa.  Það er ekki hægt að kaupa haminguna, ég reyndi það í nokkur ár en þannig virkar það bara ekki.  Gefðu þér tíma til að stalda við, hugsa, hugleiða, biðja, gefa af þér, eyða tíma með fólkiu þínu, setjast niður kveikja á kerti, hlusta á ljúfa tónlist.  Hugleiða hvers vegna við höldum jól, þakka fyrir þá gjöf sem okkur var gefin á jólunum.  Ét ætla að minnsta kosti að einsetja mér það, undanfarin ár hefur öll mín orka farið í að gera svo margt fyrir jólin, skreyta og skreyta að ég hef ekki hugsað nógu mikið um tilganginn og innihald boðskapsins.  Nú finn ég aðra köllun, mun mikilvægari og meira gefandi.  Eyða tíma með krökkunum við að t.d föndra saman, hlusta saman á jólatónlist og fl.

Jólin eru hátíð ljóss og friðar.  Njótum þeirra á réttum forsendum.  Jesús var boðberi friðar minnumst þess.  Hér er ljóð sem ég fann sem minnir á þetta allt.

Jólafriður

Friður, friður frelsarans,
finni leið til sérhvers manns.
Yfir höf og yfir lönd
almáttug nær drottins hönd.
Hans er lífið, hans er sól,
hann á okkar björtu jól.
:,:Börn við erum börnin smá,
börn, sem Drottinn vakir hjá. :,:
Friður, friður fögur jól,
frelsarinn er vörn og skjól.
Verum örugg, verum trú,
verum glöð á jólum nú.
Veitum öðrum von og yl
vermum allt sem finnur til.
:,:Börn við erum börnin smá,
börn, sem Drottinn vakir hjá. :,:
Friður sé um fold og haf
friðarboðskap Jesús gaf.
Fátækur hann fæddur var,
faðir ljóssins þó hann var.
Ljóssins faðir, ljós þín skær
lýsi öllum nær og fjær.
:,:Börn við erum börnin smá,
börn, sem Drottinn vakir hjá. :,:


Höfundur lags: Mendelssohn

Kraftaverkahelgi

Já ef þetta var ekki ein af merkilegustu helgum sem ég hef upplifað þá veit ég ekki hvaðSmile  Þetta mót í Kotinu var þvílikt að orð fá því varla lýst. Þarna voru um 300 manns saman komin á námskeið með frábærum predikurum frá Toronto í Kananda.  Þær lækningar og þau kraftaverk sem áttu sér stað þarna eru engu lík.  Ég get vitnað um það.  Hendin á mér er orðin sem ný, auk þess sem annað læknaðist sem búið er að vera að hjá mér í meira ein hálft ár. Þarna er ég bara að tala fyrir mig og þá er allt annað ótalið sem þarna gerðist.  N'u er bara að bíða spennt eftir næsta móti.

Þá er bara vinnuvika framundan, foreldraviðtöl á morgun, fundir í nefndum og fl.

jæja best að ganga frá ferðadótinu

knús og blessun

Sædís


Spáin í dag.......

mikið að geraKrabbi: Miðað við ruglið í kringum þig undanfarið, ertu óvenju skýr í hausnum. Gáfulegt væri af öðrum að bjóða þér í sitt lið, í boð eða biðja þína

Já það  er nú gott að vita að ég sé nú nokkuð skýr í kollinum, enda veitir ekki afLoL  Humm rugl í kringum mig.... kannast ekki við neitt rugl þannig ekki nema að það sé smá rugl að ætla sér að komast yfir allt sem ég þarf að komast yfir.  En þegar krakkarnir eru hjá pabba sínum þá ætla ég mér yfirleitt hundrað hluti sem oftast komast ekki öll fyrir.  Í dag er t.d þetta á dagskrá: vakna, lesa smá í lesefninu góða, spajlla við Guð um daginn,  kíkja á fréttir, vekja krakkana, koma þeim í skólann,  ég að vinna, foreldraviðtöl, keyra í tómstundir, bootCamp, heimsókn, skutla krökkum, vinnufundur hjá ÍTÁ, svo byrjar mótið í kvöld í Kotinu og heim aftur að sofaSmile  en það skemmtielega við þetta allt að þetta er bara svo skemmtilegt allt sem ég er að gera, hvort sem það er að kúra heima með krökkunum mínum, fara á fundi þá bæði pólitíska eða al-anon fundi, sækja kirkjuna mína og samfélagið þar, vinnan, leikfimin og að rækta vininaSmile  Þannig að ég verð að leiðrétta stjörnuspána í dag og segja þetta er ekkert rugl, ekki nema að sé verið að meina annars konar rugl og ég veit alveg upp á mig sökina þarCrying en það fer ekki hér á skjáinn.... En ég tek nú alveg undir þetta með að bjóða mér í boð eða eitthvað, það hljómar voða velCool

Jæja best að hætta þessu bulli og fara að gera eitthvað, bootcamp á eftir, ekki veitir af eftir frekar mikla sukkdaga. Bæði búið að vera afmæli, saumaklúbbur og bakkelsi í vinnunniCrying svei mér þá ef matardagbókin mín er ekki bara týndWhistling

knus og kram og blessun í dag

Sædís


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband