Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Svona á að gera þetta....

Frábær sigur hjá frábæru liðiCool


mbl.is Man. Utd með 6 stiga forystu eftir 3:0 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega páska

Vá hvað þetta eru búnir að vera notalegir dagar, slökun og át og dúllast eitthvað.

Ég byrjaði daginn á að skreppa á rosa góðan fund kl. 9 í morgun með Elínu Katrínu vinkonu sem er hér í orlofiSmile, fór síðan aftur á bakkann og sótti Hörð sem reyndar hafði verið með ælupest í nótt, við sóttum síðan Hallgrím og Einar Hall og skelltum okkur á samkomu sem var yndisleg á páskadag, þar sem var verið að lofa Guð og fagna uprrisu JesúsSmile  Eftir samkomuna var mér gefið risa Nóa páskaegg sem er mitt uppáhaldsLoL svo sættCool, mín sem ætlaði ekki að borða neitt súkkulaði þessa páskanaCrying, og nú er staðan þannig að það vellur súkkulaði út úr eyrum og fleiri stöðum svo tilShocking En þá er bara að fara að hreyfa sig á morgun, ganga eða skella sér í ræktina þegar hún opnarWhistling  Skondið annars með þessa hátíðardaga, þeir snúast svo mikið um að borða mat og vera að stússast í mat og kræsingumCrying svolítið erfiðir dagar fyrir sumaShocking en þá er bara að biðja um styrk og æðruleysi til að takast á við hverja stund fyrir sig, allt byggist þetta á prógramminu.  Á meðan sumir geta átt eðlilegt samband við mat þá eru margir sem engan veginn geta það.

Annars held ég svei mér þá að það sé að koma vor, það styttist óðum i London með skvísunum í klúbbnum mínum og svo er bústaður næstu helgiCool þannig að það er svo sem nóg um að vera auk þess sem ég þarf nú að fara að halda áfram að undirbúa ferminguna frumburðarins, ég er nú að verða svolítið spennt, boðskortin að verða tilbúin og þá er bara að senda þau eftir helgi.

Vá hvað lífið er skemmtilegt og hefur upp á margt að bjóðaSmile Já Guð er bara góður

Knús knús og Guð blessi ykkur

luv Sædís


Læknar...

Þeir eru mismunandi eins og þeir eru margirErrm Þeir eru okkur samt sem áður nauðsynlegir, líka stundum til að staðfesta fyrir okkur að við höfum rétt fyrir okkurShocking Eða það var ég að minnsta kosti búin að ákveða.  Málið er það að ég er enn og aftur komin með einhverja flensu (gott að vera þá í fríi) Mín skellti sér til doksa í gær, alveg með á hreinu hvað amaði að mér, ætlaði bara að fá lyf við þessu til að klára þetta og málið því bara dauttWoundering Oh nei, því var ekki viðkomið, eftir rúmlega 2 KLUKKUTÍMA bið á biðstofunni, ég búin að skoða sömu gömlu blöðin nokkrum sinnum, lesa fréttir úr Nýju lífi um tísku og strauma árið 1986, skoða bæklinga um getnaðarvarnir, þunglyndi og fleiri áhugaverða bæklinga, fara nokkrum sinnum á WC, heilsa fullt af fólki, reyna að sofna, ræskja mig og fl. til að sína pirring minn og senda nokkur sæt sms til ástarinnar minnar,  þá komst ég loks aðWoundering 

Ég sagði þessum unga lækni (nokkuð myndarlegur samt) hvað amaði að mér þ.e að ég væri með hita og mikinn verk undir vinstar herðablaðinu og yfir brjóstkassanum og ferlega vont að anda en ég kæmist víst ekki hjá því og sagði honum greininguna í leiðinni sem var að mínu mati hreinlega bara lugnabólga og spurði hvort ég fengi ekki bara pensilin og svona.  Þá vildi hann nú skoða mig eitthvað nánar, hlustaði mig og svona.  Komst svo að því að þetta væri ekki lugnabólga eins og ég var búin að ákveða heldur brjósthimnubólga..... ok, hvað er nú það? Ekki voru brjóstin neitt bólgnari en þau eiga að vera (hann tékkaði nú ekki á því einu sinniTounge) segi svona, nei þetta er innvortis, himna í kringum lungun víst.  En ég fékk ekki réttu lyfin að mínu mati, heldur bara bólgueyðandi.  Hann sagði mér sem betur fer ekki að ég ætti að taka því rólega eða vera inni við þannig að ég get svo sem gert það sem mig langar, er með grillveislu núna á eftir þannig að mér er eiginlega ekki til setunnar boðið að fara að undirbúa það.  Annars hef ég svo góðan hjálparkokk í því með mer að ég get kannski leyft mér að liggja og horfa á hann grilla fyrir okkur og reyna að láta mér batna í leiðinniCool 

Knús knús og GUð blessi ykkur


Bara flottastur

og ekkert meira um það að segja,  Ronaldo er hreinlega sá besti í dagCool
mbl.is Botna ekkert í aukaspyrnum Ronaldos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða oliufélögin jafn snögg að lækka og að hækka?????

Það verður fróðlegt að sjá hvort olíufélögin verða jafn snögg að lækka verðið hjá sér og þau hafa verið að hækka það við minnstu hækkun á heimsmarkaði.
mbl.is Olíuverð á niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír karlmenn....

Ætli það hafi ekki verið nein kona til í að koma til starfa í stjórn Eimskipafélgasins????? Eða ætli það hafi kannski ekkert verið athugað????
mbl.is Þrír nýir í stjórn Eimskipafélags Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páskar framundan...

Þá eru blessuðu páskarnir framundan.  Mín búin að kaupa egg handa krökkunum og viti menn ég keypti mér EKKERT sjálfLoL Nú skal standast freistingarnar, eða svona að reyna það, humm, reyndar er ég samt búin að borða svona "mini" eggShocking en þau eru  nú svo litil að það tekur því nú ekki að tala um þauWhistling  Það er svo gaman alltaf af þessum málsháttum oft.

Það er nú voða skrýtið að vera ekki komin í páskafrí eins og undanfarin ár í kennslunni, en það er bara svo rosalega gaman í nýju vinnunni að mér finnst það bara ekkert mál að vera að vinnaSmile Guð er sko að mæta mér á öllum sviðum þessa dagana, vinnan frábær, frábært í einkalífinu, ég hef enn náð að halda þessum 17.5 kílóum í burtu og ætla mér það áfram, tekist að halda þvottaskýmslinu niðri, tók til í skúrnum í dag, búin að grilla einu sinni á þessu vori og bara rosa dugleg í prógramminuCool Allt að gerast bara, sweet  live ef svo má að orði komast.

Annars eru tvær fermingar á skírdag sem við erum að fara í, ein í Borgarnesi og ein á Selfossi.  Fermingarundirbúningur á þessu heimili gengur bara nokkuð vel, búin að skipuleggja þetta allt í huganum, ýmsir smáhlutir komnir og svo kemur hitt bara smátt og smáttSmile

Jæja best að fara að svæfa skvísuna mína

knús knús og Guð blessi ykkurHeart


Mishár draslþröskuldur...

Það er frábært að eiga börn, börn breytast síðan í unglinga sem er líka frábært.  Þetta er skemmtilegur aldur og ég man nú bara sjálf þegar ég var unglingur hvað margt var skemmtilegtCool.  En það var líka ýmislegt sem var ekki eins skemmtilegt en það var tiltekt.  Núna er ég sem foreldri í þessum vandamálum, sonum mínum finnst hreint ekkert gaman að taka tilShocking  Það er líka svolítið misjafnt hvað við köllum "drasl"  minn draslstuðull er mun mun lægri en þeirra stuðull, það getur gert hlutina frekar flókna eins og gefur að skiljaFrown Ég kom heim úr vinnunni í dag, eftir langan dag þar sem ég var á fundi ég félagsmálanefnd eftir minn vinnudag.  Leit inn í herbergið hjá yngri stráknum og fannst það nú ansi eitthvað ekki eins og það ætti að vera og benti þessari elsku á að nú væri kominn tími til að taka til þarna inniWoundering  Það stóð ekki á svar hjá mínum, hann benti mér ansi einlægur á það að þetta væri ekki drasl, það bara sýndist vera þaðHalo Sagði við mig: "Mamma þetta er ekki drasl, það litur bara út fyrir að vera drasl því herbergið er ekki svo stórt" Humm herbergið ekki svo stórt, ég held það sé einir já nokkrir fermetrar, nokkuð hefðbundn stærð á barnaherbergiShocking 

En mín varð skák og mát, það rifjaðist upp fyrir mér orð Hugó Þórissonar sálfræðings á námskeiði sem ég var á hjá honum um árið um að við ættum ekki að kalla það sem er á gólfi barna okkar drasl því þau kæmu alltaf með skotheld svör, bentu á að þetta væru fötin þeirra en ekki drasl og svo framvegisLoL

Ég hugsa að ég verði annað hvort að hækka minn stuðul eða loka bara alltaf augunum þegar ég geng fram hjá herbergjum þeirra. 

Jæja best að fara að gera eitthvað að viti hér

Guð blessi ykkur


Hræðilegur sjúkdómur

Það er líkt og segir í fréttinni að þá er þetta hættulegur sjúkdómur.  Þessi sjúkdómur er af sama meiði og alkahólsimi.  Hér á landi höfum við OA samtökin sem eru samtök þeirra sem eiga við þennan sjúkdóm að etja.  OA samtökin byggjast á 12 spora kerfi aa samtakana og hafa bjargað fjölda manns.  Þessi sjúkdómur er andlegt mein og hefur gríðarlega mikil áhrif á líf fólks hvort sem er andlega eða líkamlega.  Átröskun spyr ekki frekar en alkahólismi um aldur, kyn eða stöðu og getur hver sem er svo til lent í að fá þessa sjúkdóma. 

Það er því frábært að fá hingað þennan fyrirlesara, því það er aldrei of mikið gert til að hjálpa fólki að leita sér hjálpar.  Ég tel að þessi sjúkdómur sé enn "tabú" hjá mörgum og margir sem telja það "aumingjaskap" að fólk geti ekki hamið átfíkn sína eða lotugræðgi. Þess vegna er mikilvægt að opna þessa umræðu, hvetja fólk sem á við þessa fíkn að stríða og vill losna, hvetja það til að leita sér aðstoðar þá meðal annars í OA, á vefsíðu OA samtakana www.oa.is er að finna lesefni, fundarskrá og fl.  Þetta er sjúkdómur sem hefur og getur dregið fólk til dauða.  Anorexiu sjúklingar og búlomiu sjúklingar eiga líka fullt erindi á þessa fundi.


mbl.is Átröskun yfirbuguð eins og fíkn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laugardagur....

Það var frekar erfitt í gær að kveðja nemendur og starfsfólk BES, en nú eru nýjir tímar framundan og spennandi tímar.

Það er einhver fiðringur í mér í dag, laugardagur, bjart og fagurt úti og ég í einhverju stemningsstuði, væri til í að fara og dansa ærlega og komast í stuð.  Núna sit ég við tölvuna og hlusta á frábært lag sem kemur mér alltaf í gott skap og stuð, lag með Brian Johnson og heitir taste and see, alveg þvílíkt stuðlag sem ekki annað er hægt en að hoppa og dansa þegar maður hlustar á þaðCool http://www.youtube.com/watch?v=s5yrIQNko30  Kannski maður ætti að nota þessa orku í að fara og þrífa aðeins eða taka bílinn i gegnWhistling  Samt er ég búin að komast að því að ég er ekki þessi bílasnyrtipinni, það sem á það til að fara inn í bílinn kemur ekkert alltaf strax þaðan út aftur nema þá bara ég og börnin mínShocking Þannig að ef einhver bráðþráir að komast í að taka til í bíl þá er það í boði hérnaWhistling

Annars vorum við í afmæli áðan hjá snúðnum honum Gísla Rúnari og þar var tekið vel á því í tertum og öðru góðgæti sem þórdís og Gísli höfðu snarað fram og þar smakkaði ég þessa frábærlega góðu frönsku súkkulaði tertu vá hvað hún var góðSmile 

Jæja best að fara að gera eitthvað vitrænt á heimilinu og bíða og sjá hvað kvöldið ber í skauti sérCool

knus og kram

Sædís


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband