Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Tenerife were back......

sunJá það er bara að bresta á að ég og börnin séum að fara á ný til Tenerife. 

 já Tenerife sælla minninga frá því fyrir tveimur árum, þá fór ég með krakkana þangað líka.  Frábær staður til að vera á og nú fer ég reynslunni ríkar.... eins og fram kom á gamla bloggi mínu í þeirri ferðasögu þá "lentum" við til dæmis í svikahröppum, indverskum sölumönnumShocking, http://soh.blogcentral.is/blog/2006/6/16/naes-lif-og-loddarar/ ég hef sjaldan verið eins reið og þarna á þessu augnabliki og Guð hjálp þeim ef þeir ætla að reyna slíkt við mig aftur Devil en nú hef ég reyndar öðlsast svo mikið æðruleysi og Guðs náð þannig að kannski bítur ekkert á míg núnaWink 

Svo má ekki gleyma elsku KAKKALÖKKUMSick (eða einum kakkalakka) sem ég reyndi að drekkja á svölunum með því að hella nokkrum lítrum af vatni yfir hann, sem bara vægast sagt lítinn árangur þ.e endaði með að hann FLAUG í burtu... arrrggg vá hvað mér er illa við þessi kvikindi.... og svo síðast en ekki síst.... engispretturnar sem ég var búin að telja sjálfri mér trú um að væru líklega bara komnar undir rúmið mittShocking sjá færslu hér: http://soh.blogcentral.is/blog/2006/6/13/engisprettur-og-elvis-presley/

En nú fer ég sem sagt reynslunni ríkari.... en ég get sagt ykkur að við erum orðin nokkuð spennt.  Og þetta er frábær staður, evran mætti kannski lækka smá svona svo ég gæti verslað smá með betri samvisku...

Það verður líka enn skemmtilegra þar sem að systur mínar þ.e 3/4 ætla að koma líka. 

Þannig að næstu tvær vikurnar mun ég og systur mínar  flatmaga í sólinni og hafa það næsTounge vantar bara að það kæmust allir með sem ég vildi hafa meðCool 

adios amigos

Sædís


Frábært.

Ég er bara nokkuð sátt við þessi úrslit, hefði reyndar viljað að England hefði verið á mótinu en þar sem það gekk ekki og Ítalía var dottin út, þá er þetta barasta hið besta málCool
mbl.is Spánn Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Standið með ykkar ákvörðun..

Gott að heyra þessa yfirlýsingu frá Þórunni, vonandi er hún manneskja í það að standa við sín orð og vonandi kemur Samfylkingin til með að standa við sín orð.  Það er samt ljóst að talsverð óeining er orðin innan ríkisstjórnarinnar um framgang mála í umhverfismálum.

Það er slæmt að sjá svona stóran og sterkan og oft málefnalegan flokk verða svona undir í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.


mbl.is Umhverfisráðherra vill ekki fleiri álver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka

Þessa helgi er árleg hátíð á Eyrarbakka, Jónsmessuhátíð.  skemmtileg hefð sem hefur myndast hérna i litla þorpinu við sjóinn http://www.eyrarbakki.is/Vefsidan/data/MediaArchive/files/jonsmessa_2008.pdf

Mjög margt skemmtilegt í boði. 


Hvernig væri að fullgera gsm samband í Þrengslum og hellisheiði

phoneMér finnst það ótrúlegt að innan við 50 km radíus frá Reykjavík skuli enn vera dauðir blettir, þegar maður er að keyra til eða frá höfuðborginni hingað heim eða á Selfoss eru enn svæði þar sem sending rofnar.  En þetta er kannski smá eigingirni því það á auðvitað að vera allstaðar á landinu gsm samband.  Þess vegna er það mjög gott og algjörlega þarft að það skuli vera farið í það að fjölga sendum um landið enda er þettta spurning um jafnrétti vegna búsetu fólks og einnig vegna öryggis. 

Það eiga allir að sitja við sama borð þegar kemur að fjarskiptaþjónustu líkt og annarri þjónustu.  Það á ekki að mismuna fólki, hvorki eftir búsetu né neinu öðru.....


mbl.is Síminn setur upp GSM senda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarbros

summer

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda
maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól
En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og
um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
niður undir hné.
En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri
dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
þessum þremur hlutum
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum
við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama
og að skapa sér líf.
Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska
á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.
Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
ekki hvernig þú lætur því líða.

Notaleg kvöldstund með.....

girlstalkjá þetta er svolitið skondið, oft höfum við ógiftu eða fráskildu vinkonurnar verið að spá í því og vorkenna okkur heil ósköp að eiga ekki mann eða kærasta til að kúra með þegar við erum að horfa á svona stelpumyndir, hjúra okkur saman í sófanum samt ekki með ristað brauð með bökuðum baunum áShocking  Öfunda hinar giftu vinkonur okkar sem við erum virkilega að ímynda okkur að kúri með sínum heittelskaða fyrir framan kassann og horfi saman á sex in the city eða aðrar rómansaSideways

Nei þannig er þessu ekki á háttað á flestum þeim bæjum sem ég hef fengið vitneskju frá.  Það er afar sjaldgæft að MENN yfir höfuð hafi áhuga á að sitja fyrir framan kassann og spá í hvernig þessi og þessi sé klædd (nema hún sé þeim mun fáklæddari) og jafnvel gráta með kvinnunni yfir einhverjum rómansdrama. Ó nei, þeir hnussa og sveia yfir þeirri hugmynd konunnar að halda það virkilega að þeir ætli að setjast niður og horfa á slík efni.

þess vegna er ómetanlegt að eiga góðar vinkonur sem hægt er að fara með í bíó eða hafa svokölluð stelpukvöld þar sem við horfum saman á skemmtilega "stelpumynd" og eigum svo "girlstalk" á eftirCool  Hins vegar er svo hægt að eiga annars konar notalega stund með sínum heittelskaða og þá bara án sjónvarps, fótbolta og stelpumynda. (það er að segja þær sem þá hafaWhistling)

 

 


mbl.is Vill helst horfa á Beðmálin með kærastanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skrýtið..

en það sem er samt skrýtnara er að þeir skulu ekki hrapa meira niður, en það hlýtur að gerast.  Miðað við ástandið í þjóðfélaginu hlýtur að koma að því að fólk vakni og sjái að sér í næstu kosningum.

En það er því miður oft þannig að fólk er fljótt að gleyma og eflaust á Sjálfstæðisflokkurinn eftir að koma með einhver fögur loforð fyrir næstu kosningar sem reddar þeim fyrir horn.

það er greinilegt að það er Samfylkingin sem er að gera eitthvað rétt í þessu samstarfi, en best væri ef þeir snéru sér að minnihlutanum og mynduðu stjórn með þeim.

Maður má alltaf vona er það ekkiCool


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar í könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinkonuraunir enn og aftur

girlfreind Jæja ástkær vinkona mín ein sem ég hef áður fjallað um hér á þessari siðu er enn komin af stað.  Hún hefur eins og áður hefur komið fram verið nokkuð óheppin með menn sem hún hefur kynnst.  En alltaf er hún jafn ötul að leita ráða hjá mér, sem einnig hef verið nokkuð seig að veðja á rangan hestShocking  Mér dettur oft myndin 28 days með Söndru Bullock í hug þegar ég hugsa um mín eigin vandkvæði í þessum málum  þetta með plöntuna, gæludýr og mann.....

En þessi kæra vinkona mín er nú búin að kynnast einum enn manninum (ekki það að þeir séu orðinir svona margir) en að þessu sinni telur hún sig hafa kynnst bara nokkuð góðum manni, heilsteyptum, myndarlegum og duglegum.  Þá á ég að segja henni hvað hún á að gera.  Hún er líklega búin að gleyma því að í al-anon segjum við ekki öðrum hvað þeir eiga að gera heldum bendum á leiðir fyrir fólk að finna það út sjálft.  Eins flókið og það getur oft orðið (kannast við það sjálf)  Hún spyr mig hvort hún eigi að senda sms, hvort hún eigi að sýna frumkvæði. Ef hún sendir sms, er hún þá of fljótfær og ágeng?  Ef hún gerir ekkert sýnist hún þá áhugalaus?  Þarna er loksins einhver sem ekki lítur út fyrir að verða 3 barnið hennar, einhver sem er á henni samboðinn, einhver sem hún virkilega er spennt fyrir og málið er það að hún á svo sannarlega allt það besta skilið og ekkert minna en þaðHeart

 Vá hvað það er flókið að vera singel í dagShocking

En hún er voða spennt og langar að kynnast honum frekar, finnst að hann sem kk aðilinn eigi að sýna frumkvæði.  Við lifum á árinu 2008, konur eiga alveg eins að geta sýnt frumkvæði er það ekki?  Ég benti henni á að biðja Guð um að sýna sér rétta svarið og hún tók  því nokkuð vel, en fór svo að hafa áhyggjur af því að ef Hann hefði rétta svarið ekki rétt að hennar matiErrm  Já það er oft þannig að við erum með ákveðnar skoðanir á einhverju og viljum fá einhverju framgengt sem kannski er ekki Guðs vilji heldur eingöngu okkar vilji og oft erum við að knýja fram úrlausnir á einhverju sem betur mætti láta ógert, ég þekki það nú mjög vel á eigin skinni.  Ég benti henni á að hraði og fljótfærni hefðu yfirleitt ekki gert mér gott og væri ég samt enn að brenna mig á þeim kvilla mínum þ.e strax, helst í gær syndruminuCrying En með hjlálp sporanna 12 og æðri mætti er mér að takast að vinna bug á því.

En málið er hvernig á ég að svara elskulegri vinkonu minni???

Ég veit svarið, en hvort hún fari eftir því er annað mál.  Hvað finnst þér?

knús og Guð blessi ykkur


Birthday girl:)

birthdaygirlHaldið að það séu ekki bara 36 ár í dag frá því að ég leit fyrst dagsins ljós,  hver gæti barasta trúað þvíCool Finnst einhvern veginn ég vera mun yngri í dag en fyrir ári síðanTounge

Annars er ég búin að eiga frábæran dag eða frábæra helgi reyndar.  Ætlaði vísu að fara í sumarferð VG en varð að hætta við það vegna óviðráðanlegra aðstæðna.

Hér var haldin mikil garðveisla (sem endaði í stofu vegna rigningu sem kom óvænt)  Fékk fullt af góðum og skemmtilegum gestum í heimsóknSmile  

Svo er það mamma sem á afmæli á morgun, til hamingju með það mammaHeart

Þannig að bara notalegt hér á bæHeart

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband