Áfengi á ekki heima í frjálsri sölu

Ég er á móti þeirri tillögu sem nú liggur fyrir Alþingi um að gefa sölu á léttvíni og bjór frjálsa.  Ég er hissa á að heilbrigðisráðherra skuli lýsa stuðningi við þessa tillögu.  Ég tek undir orð umboðsmanns barna sem segir á www.ruv.is : Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir, hefur áhyggjur af frumvarpi sem heimilar sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum og segir slíka breytingu stórhættulega. Hún minnir á að áfengi sé vímuefni sem hafi skaðleg áhrif á heimilum og á börn í móðurkviði. Henni finnst varhugavert að heilbrigðisráðherra skuli styðja frumvarp sem heimilar sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum

Við ættum frekar að huga nánar að forvörnum og reyna að draga úr áfengisneyslu landans í stað þessa að stuðla að aukningu.  Auðvitað er það þannig að ef fólk ætlar að fá sér vín þá nær það sér í það, en að gera veikum einstaklingum það auðveldara er ekki rétt.  Mér finnst að núverandi fyrirkomulag eigi að halda sér.

Ég tel líka að það hljóti að vera mun fleiri þarfari þingmál sem háttvertir þinmenn ættu að vera að einbeita sér að heldur en að reyna að stuðla að aukinni neyslu.  Ég vona að meirihluti þingmanna verði ekki við þessari tillögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Af hverju þessar áhyggjur af aukinni neyslu áfengis.

Gerir fólk sér ekki grein fyrir því að um leið og áfengissala verður færð yfir í matvöruverslanir mun verðið hækka til muna. Sjá til dæmis verslanir úti á landi... þar mun áfengisverð verða hærra en í Reykjavík. Í dag er þó áfengisverð það sama alls staðar. Kannski mun það reynast forvarnargildi. 

Ég held að það sé þröngsýni að ætla fólki meiri drykkju þó hægt verði að fá rauðvínið í búðinni á leiðinni heim. Börnum okkar mun alltaf stafa sama hættan af þó svo vín fáist í Hagkaup eða Ríkinu við hliðina.

... Ekkert persónulegt Sædís mín... bara mín skoðun.  

Linda Lea Bogadóttir, 22.10.2007 kl. 20:01

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er alveg á hreinu að þegar þú getur keypt bjórinn og rauðvínið í lausasölu þá verður drukkið meira, það þarf ekki neitt séní til að sjá það. Staðreynd. Að ætla að minna sé keypt ef vínið er dýrara er rugl. Þeir sem ætla sér á annað borð að drekka spara þá bara í hlutum sem eru nauðsynlegri fyrir fjölskylduna. Þegar ég versla í Bónus versla ég minna heldur en þegar ég fer í Nóatún og sé allar freistingarnar fyrir framan mig, svo er manneskjan, fellur fyrir freistingum.  Ríkið selur vínið púnktum og basta.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.10.2007 kl. 23:10

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

nei Linda tek þessu ekkert persónulga bara er alveg á því að vín á ekki heima í matvörubúðum.

Svandís alveg sammála, já sjáumst vonandi á föstudaginn.

Hjartanlega sammála Ásdís, það er nefnilega málið að ef fólk vantar áfengi þá er allt annað látið sitja á hakanum fyrir það, þótt verðið hækkaði þá léti fólk það samt eftir sér.

Sædís Ósk Harðardóttir, 23.10.2007 kl. 07:15

4 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Ég er algjörlega sammála þér Sædís, og minni líka á það að mjög ungt starsfólk matvöruverslana ræður ekki einu sinni við að afgreiða tóbak einungis til 18 ára og eldri, hvað þá áfengi. aukið aðgengi = aukin neysla! það er heilbrigðisráðherra sem á að heita æðsti maður vímuvarna á Íslandi til háborinnar skammar að eiga aðild að þessari tillögu

Guðrún Sæmundsdóttir, 25.10.2007 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband