Er þetta þá bara allt okkur að kenna Björgólfur?????

Var þá peningamálastefna stjórnvalda ekki "röng"þegar þú fékkst Landsbankann á silfurfati?

Krónan var rangt skráð og alltof sterk og þess vegna rann kaupæði á þjóðina,“ segir Björgólfur.

Á hverja rann mesta kaupæðið??  Hverjir voru það sem æddu út um allt og fjárfestu og fjárfestu hérlendis og erlendis?  Hverjir keyptu flugfélög, skipafélög og hvað eina? ´

Ef krónan var rangt skráð, því gerðuð því aldrei athugasemd við það?  Nei í staðinn var hin ranga staða hennar nýtt til að sölsa undir sig milljarða í erlendum gjaldeyri.

 


mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

rann kaupæði á þjóðina...segir hann.

Þvílíkur hroki ...á bara ekki orð.

Halla Rut , 25.10.2008 kl. 14:14

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Halla mín, skoðaðu "góðærið" undanfarin ár og segðu mér svo að það hafi ekki runnið kaupæði á þjóðina. Það er sárt fyrir Sjálfstæðisfólk að kyngja því, en flokkurinn smíðaði þetta umhverfi og eðlilega er engum öðrum hægt að kenna um nema þeim. Ef ég hefði haft tækifæri á að græða pening á klúðri Seðlabankans með Sjálfstæðisflokkinn í forystu hefði ég ekki hugsað mig tvisvar um.

Sævar Einarsson, 25.10.2008 kl. 15:16

3 Smámynd: Halla Rut

Sævarinn: Hrokinn sem ég er að tala um er að það var hann og hans fyrirtæki sem stóð fyrir þessu kaupæði og hvatti til þess.  Það var hans banki sem bauð erlend lán sem kostaði okkur svona mikinn gjaldeyrir úr landi. Það var hann meðal annarra sem stóð fyrir okur vöxtum og verðtryggingu. Hann er einn að þeim sem kom þessu öllu af stað.

Ég veit það sko afar vel að við höfum öll hagað okkur eins of fífl en það er hroki að þeir sem hvöttu til þess og græddu á því séu nú að segja þetta allt öðrum að kenna.

Halla Rut , 25.10.2008 kl. 19:51

4 identicon

Eins og Sædís bendir á í upphafi var kaupæðið hvergi meira en hjá þessum "auðjöfrum" sjálfum. Þeir fóru fremstir og keyptu og keyptu - með peningum sem alla tíð hefur verið:

A) Óljóst hvaðan komu

B) Óljóst hvort að voru til

En, það er dæmigert að hin meðvirka þjóð fari að finna til með þeim sem keyptu einkaflugvélar og snekkjur, flugfélög og símafélög, banka og fótboltalið, og líti svo hastarlega í eigin barm að brjóstin brenni við og bendi ásakandi á einhvern karl í Grundarfirði eða kerlingu Grafarvogi sem dirfðist að kaupa sér tjaldvagn, notaðan.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband