Ástin, lífið og Guð

Það er merkilegt hvað við eigum gott í Guði, þegar maður hefur kynnst því og fundið hvað maður á þar er ekkert aftur snúið.  Ég var að hlusta á svo frábært lag áðan sem Ragnheiður Gröndal syngur, lag sem flestir þekkja reyndar og fann textann til að lesa hann líka því hann er svo innihaldsríkur og segir einhvern veginn allt sem segja þar.  Lesið hann endilega því hann er mjög fallegur og enn fallegri þegar hann talar inn  í kringumstæður hjá manniCool.

heart

    Sólin brennir nóttina,
    og nóttin slökkvir dag;
    þú ert athvarf mitt fyrir
    og eftir sólarlag.

     

    Þú ert yndi mitt áður
    og eftir að dagur rís,
    svölun í sumarsins eldi
    og sólbráð á vetrarins ís.

    Svali á sumardögum
    og sólskin um vetrarnótt,
    þögn í seiðandi solli
    og söngur, ef allt er hljótt.

    Söngur í þöglum skógum
    og þögn í borganna dyn,
    þú gafst mér jörðina og grasið
    og guð á himnum að vin.

    Þú gafst mér skýin og fjöllin
    og guð til að styrkja mig.
    Eg fann ei, hvað lífið var fagurt,
    fyrr en eg elskaði þig.

    Eg fæddist til ljóssins og lífsins,
    er lærði eg að unna þér,
    og ást mín fær ekki fölnað
    fyrr en með sjálfum mér.

    Ást mín fær aldrei fölnað,
    því eilíft líf mér hún gaf.
    Aldirnar hrynja sem öldur
    um endalaust tímans haf.

    Aldir og andartök hrynja
    með undursamlegum nið;
    það er ekkert í heiminum öllum
    nema eilífðin, guð — og við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þetta er fallegt!

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 07:58

2 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Ó já þetta er fallegt. Einu sinni átti setningin ... "ég fann ei hvað lífið var fagurt fyrr en ég elskaði þig" svo heima í hjarta mínu. Skrítið hvað textar og lög geta skyndilega átt svo vel við. Jafnvel þó maður hafi heyrt lagið 1000 sinnum - þá bara allt í einu þarna á þessu andartaki er það sungið beint til manns.

Hafðu það gott frænka - er ekki komin tími á hitting eða hvað?

Linda Lea Bogadóttir, 1.7.2008 kl. 09:16

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Já þetta er sko fallegt

Jú Linda við verðum að fara að koma þessum hitting á, gengur ekki þessi lágdeyða

Sædís Ósk Harðardóttir, 1.7.2008 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband