Á ekki að eiga sér stað.

Það er hræðilegt til þess að hugsa að hér á okkar landi, þar sem við teljum okkur með ríkustu þjóð í heimi og ráðamenn vilja ekki viðurkenna það að það sé til fátætk á Íslandi, að hér skulu 111 manns búa á götunni.  Grandaleysi stjórnvalda er til skammar og að það skuli vera bitbein, hver á að sjá um hvað er bara fáranlegt.  Það þarf að huga að þessu fólki sem á hvergi í hús að vernda.

Ýmis samtök hafa upp á sitt einsdæmi tekið að sér að hugsa um útigangsfólk s.s. hjálpræðisherinn, Samhjálp og fl.  Það er mjög gott og gilt en stjórnvöld verða að axla sína ábyrgð í þessum málum.  Það er ekki hægt að stinga hausnum í sandinn og segja að hér sé ekki fátækt.  Mikill hópur af þessu fólki er geðsjúkt og þar af leiðandi oft hættulegt sér sjálfum og öðrum.

Það er brýn þörf á að bretta upp ermarnar og taka á þessum málum strax.


mbl.is 111 manns á götunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svona tala bara kommúnistar. Við erum ríkasta þjóð í heimi og við erum með besta velferðarkerfi í heimi. Það öfunda okkur allir af allri þessari velsæld.

Ríkisstjórnin hefur áhyggjur af þessu geðfatlaða og heimilislausa fólki og það er fallegt af henni. Borgarstjórn og sveitarfélög hafa líka áhyggjur og eru staðráðin í að reyna að finna á þessu lausn svona þegar tími vinnst til. Ríkisstjórnin er með áætlanir um að lækka skatta enn á auðmönnum og þá verður gott að lifa á Íslandi.

Árni Gunnarsson, 23.2.2008 kl. 12:24

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Árni ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu, en ég ætla  að taka þessu hjá þér sem háði á ríkisstjórn auðmanna. Það er vissulega gott að þeir hafi "áhyggjur" en það er ekki nóg, það verður að láta verkin tala og það STRAX

Sædís Ósk Harðardóttir, 23.2.2008 kl. 13:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta eru óhreinu börnin hennar Evu, sem enginn vill sjá eða heyra, því miður. Hefur ekkert með vinstri/hægri stjórnmálamenn, það þarf bara gott fólk með stórt hjarta til að laga svona mál.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband