Hjartanlega sammála honum.

Þetta eru orð að sönnu á hjá biskup okkar Íslendinga.  Við verðum að standa vörð um þjóðararfinn okkar.  Við höfum verið mikil bókmenntaþjóð í gegnum árin en það er að breytast, lestrarvenjur eru að breytast til muna og það er ekki bara skólans að halda uppi lestri,  heldur þurfa heimilin einnig að taka þátt í þessu líka.  Lesskilningur skv. PISA er ábótavant hjá okkur Íslendingum og það þarf að bæta það.  Það gerist ekki nema með auknum lestri á margvíslegu efni og bókmenntum.

 


mbl.is Alvarlegt ef börn rofna úr tengslum við þjóðararfinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

"Oft ratast kjöftugum satt orð um munn"  Það heppnaðist hjá honum í þessu tilviki.

Sigurður Þórðarson, 1.1.2008 kl. 13:35

2 identicon

Yea... fix it with the bible.. tröðkum á öðrum.. þjóðkirkjan lýsir veginn .. þið eruð ekki normal

DoctorE (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 14:10

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Doctorinn ósofinn eða hvað?  jú það þarf sko að passa upp á þjóðararfinn. Lestur góðra bóka og gamalla bóka er nauðsynlegur. Það á að fræða börn eins mikið og hægt er og þá ekki bara í skóla, foreldrar verða að passa sitt hlutverk.  Nýárskveðja til ykkar.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 16:00

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Já kannski áramótin hafi farið eitthvað illa í hann.

Nýjárskveðja til þín líka Ásdís

Sædís Ósk Harðardóttir, 1.1.2008 kl. 17:33

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Það er umhugsunarefni ef fólk vill ekki leifa börnunum að alast upp með opin huga fyrir þekkingu, til að geta tekið upplýstar sjálfstæðar ákvarðanir um trú sýna, þegar þau hafa þroska til.

Finnst sorglegt að ungabörn sæti heilaþvætti á leikskólum, til að tryggja hinn kristilega kærleik.

Er málstaðurinn svona tæpur.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 1.1.2008 kl. 19:09

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Harra Karls verður helst minnst fyrir það að hafa rústað þjóðkirkjunni.

Þegar Karl tók við embættinu voru um 93% í þjóðkirkjunni. Fyrsta des 2006 var hlutfallið  82,9%  og enn eykst fallhraðinn því samkvæmt óopinberum en áreiðanlegum heimildum var hlutfallið komið niður í 80,8% 1. des 2007. 

Því oftar og meira sem maðurinn tjáir sig því meira dafna önnur trúfélög. 

Sigurður Þórðarson, 1.1.2008 kl. 19:26

7 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Í hvaða leikskólum fer þessi eiginlegi heilaþvottur fram?  Ég hef átt börn í leikskolumog ekki orðið vör við það.  Einnig er ég grunnskólakennari og ekki verð ég vör við heilaþvott í mínu starfi.  Aðalnámskrá kveður á um 1 tíma á viku í krisintfræði og síðar á námsleiðinni breytist það nafn í trúarbragðafræði.

Málstaðurinn er svo sannarlega ekki tæpur, Biblían er okkar málstaður og orð Guðs.

Ég veit ekki með Hr. Karl, finnst hann ágætis maður þótt ég sé í Hvítasunnukirkjunni en ekki þjóðkirkinnu og kemur ekkert honum við að ég sé ekki í þjóðkirkjunni heldur var að eingöngu mín ákvörðun að færa mig þar yfir.

Sædís Ósk Harðardóttir, 1.1.2008 kl. 19:44

8 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég veit ekki um heilaþvott en það tíðkast fyrir víst í allavega einum leikskóla borgarinnar að sóknarpresturinn kemur reglulega í heimsókn og segir börnunum sögur og spjallar við þau. Þarna er fyrir víst verið að koma fræinu fyrir.

Sporðdrekinn, 1.1.2008 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband