Mögnuð helgi

alfaJá það má sko sannarlega segja að þessi helgi sé búin að vera frábær í alla staði.  Fór á skemmtilega samkomu í bænum á föstudaginn sem var í umsjón unga fólksins.  Flottur fyrirlestur hjá Tony Fitzgerald.  Á laugardaginn var yndisleg stund hjá Jesú konum á Selfossi þar sem við hittumst alltaf fysta laugardag í hverjum mánuði frá kl. 10-12.  fór svo að vinna eftir hádegi og svo á stórflotta tónleika um kvöldið með Shelu vinkonuTounge  í morgun var svo virkilega góður fundur í al-anon og var 11. sporið til umræðu, það er svo fráæbært viðhaldsspor, tekur á þvi hvernig maður stundar prógrammið áfram og viðheldur sambandi sínu við æðri mátt.   Síðan var samkoma þar sem ég tók skírnSmile ótrúlega magnað og ég á eiginlega ekki orð til að lýsa því.  www.selfossgospel.is  Alfahópurinn kom síðan upp, söng og vitnaði frá sl. helgiCool  Fór síðan í bæinn seinni partinn þar sem ég fór með krakkana í búðir og haldið þið að það sé ekki bara búið að skreyta Kringluna og allt orðið fullt af jóladóti í búðum.... svoldið snemmt finnst mér ég keypti samt jólakort, ætla ekki að föndra þau í árCrying baka kannski bara í staðinn fyrir jólinTounge.  Fórum svo á samkomu og svo á KFC þar sem ég hélt upp á daginn með uppáháldinu mínu kjúklingaborgara og meðlætiCool veit ekki alveg hvað Berglind segir við því í matardagbókinni minniShocking en ÉG ÁTTI það svo sannarlega skilið í dagLoL

Næturvaktin var frábær í kvöld, Jón Gnarr fór á kostum eins og alltaf.  ÉG lá í kasti með krökkunum yfir þessum þætti, þvílík týpa sem hannleikur svo og Pétur JóhannLoL

SVo bara vinnuvika framundan og afmæli hjá Herði mínum næstu helgi 12 ára gamall kallinn, þannig að það verður pizzupartý á föstudaginn fyrir vinina hans.

Jæja Guð blessi ykkur

knús Sædís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk Svana mín 

Sædís Ósk Harðardóttir, 4.11.2007 kl. 23:54

2 identicon

Enn of aftur til hamingju með skírnina í dag, það var yndislegt að hlusta á þig og fá að fylgjast með þér

Kveðja Stebba Þóra

Stebba Þóra (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 00:56

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Takk Stebba mín, já þetta var frábær stund

Sædís Ósk Harðardóttir, 5.11.2007 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband