Ótrúlegt rugl

Ég á nú varla til orð yfir þessari frétt.  Hver ákveður það hvort að einstaklingur sem átt hefur við áfengisvanda að stríða komi til með að kosta tryggingarfélögin meira en aðrir? eða fá yfir höfuð ekki að tryggja sig?  Hvers vegna að leita í fortíðina þegar fólk hefur snúið við blaðinu.  Langflestir sem ég þekki og hafa farið í áfengismeðferð lifa mjög heilsusamlegu lifi bæði hvað varðar líkamlega og andlega uppbyggingu.  Þannig að margir sem ekki hafa þurft að leita sér lækningar mættu taka margt í þeirra daglega fari til fyrirmyndar. 

 Og hvað verður svo næst, reyna þau ekki að komast í skýrslur hjá ísl.erfðfargreiningu og finna tengsl á milli alkahólista og aðstandenda og þar með hækka þeirra tryggingar, reyna að finna fleiri sjúkdóma s.s þunglyndi og fl. til ða geta hækkað enn meira iðgjöld sem flestra.  Þetta er ótrúlegt í einu orði sagt.


mbl.is Óvirkir alkar fá ekki tryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Þar sem alkóhólismi er viðurkenndur sjúkdómur, og það hefur verið baráttumál margra að koma því sjónarmiði á framfæri, finnst mér eðlilegt að stofnanir og fyrirtæki taki á málum honum tengdum eins og öðrm sjúkdómum. Þess vegna finnst mér eðlilegt að Tryggingafyrirtæki setju sjúklingum einhverjar tíma- eða iðgjaldaskorður, þó 3 ár sé kannski einu ári of mikið.

Þrátt fyrir góðan vilja er heilavirkni flestra áfengis- og vímuefnasjúklings ekki fær um að leiðréttast á aðeins nokkrum mánuðum. Þess vegna miða meðferðarstofnanir við að takmarkið í upphafi sé 2 ár og  að þeim loknum sé "hættan á falli" miklum mun minni. Þetta er ekkert skoðun út í bláinn hjá mér því tölfræðilegar og líffræðilegar rannsóknir sanna þetta.

Það að alkóhólisti sem hefur verið eðrú í 3 mánuði, unnið sporin og fengið andlega vakningu ætlist til þess að stíga úr hlutverki sjúklings finnst mér óábyrgt og í raun hrokafullt.

Hitt er annað mál að tryggingafyrirtækin eru oft ósanngjörn og ill viðureignar. Þar vinnur misvel upplýst og mis varkárt fólk. 

Páll Geir Bjarnason, 3.11.2007 kl. 14:22

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Fáránlegt system ARGH

Jóna Á. Gísladóttir, 3.11.2007 kl. 16:08

3 Smámynd: Linda

Þetta er skandall og í raun óhugganalegt hversu lítið hefur farið fyrir þessari frétt, mig grunar að víða sé rotta grafin í þessu máli og þá á ég við að Tryggingastofnanir séu rottan og margir fá ekki tryggingu vegna fortíðar drauga..bara ljótt mál og ekkert annað.

Linda, 4.11.2007 kl. 20:33

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

já nákvæmlega og maður er svo reiður eitthvað vegna þessa

Sædís Ósk Harðardóttir, 4.11.2007 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband