Vill fólk óbreytt ástand

Ég bara spyr.

Er fólk búið að gleyma öryrkjadómnum?

Vill fólk að ástand hjá öryrkjum, öldruðum og láglaunafólki verði óbreytt næstu 4 árin að minnsta kosti?  Þriðjungur aldraða býr við fátæktarkjör og allt of mörg börn búa við fátækt

Vill fólk að stefnan sé áfram að hygla fjarmagnstekjufólkinu enn frekar á kostnað láglaunafólks? Það bera að hafa i huga að  að margir hafa til að mynda ekki efni á að fara með börnin sín til tannlæknis.

 Þetta er að minnsta kosti ekki það ástand sem ég vil búa við og ég vil ekki að börnin mín búi við eða foreldrar mínir.  Með því að kjósa VG þann 12. maí þá erum við að kjósa jöfnuð og jafnrétti.

Hér má finna http://www.vg.is/stefna/fataekt/ stefnu VG gegn fátækt.

Við verðum að koma að sterkri vinstri stjórn til að rétta af þennan mismun sem orðið hefur.

HUGSAÐU ÞAÐ PIRRAR RÍKISSTJÓRNINA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Komdu sæl Sædís Ósk. Manstu textann með laginu ,,Streets of London"? Kanski það lag verði næsti þjóðsöngur okkar textinn er farinn að passa við fátæka fólkið hérna ekki síður enn í London og svo er það auðveldara í flutningi en sá gamli.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 24.4.2007 kl. 14:19

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála þér bloggvinkona.  Ráðandi öflum er meinilla við sk langtímaminni, þe að við munum lengra en tvo daga aftur í tímann.  Vona að fólk fari að muna.  Það ríður nefnilega baggamuninn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.4.2007 kl. 16:03

3 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Sæl

Já.  Fólk vill óbreytt ástand svo skrýtið sem það kann að virðast.

Fólkið kýs að öllum líkindum á þann veginn ef marka má skoðannakannanir.

Það verður að teljast lýðræðisleg niðurstaða.

kv.

Eyjólfur

Eyjólfur Sturlaugsson, 24.4.2007 kl. 22:00

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Úff eigum við ekki að vona að þessar skoannakannanir séu ekki alveg marktækar þessa dagana.  Fólk hlýtur að vilja breytingar og bættari kaup og kjör og jafnrétti.

Sædís Ósk Harðardóttir, 24.4.2007 kl. 22:21

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Það er alltaf hægt að reikna sig niður í skemmtilegar niðurstöður, ef Sjálfstæðisflokkurinn er 5% ofmetinn og Framsóknarflokkurinn 5% vanmetinn í skoðanakönnunum, eins og algengt er, ætli það dugi ekki bara til að fella stjórnina? Því 5% af næstum ekki neinu er ekkert og 5% af ofsafylgi bara slatti. Fer eftir því hvaða könnun maður skoðar hvort þetta dugar, en það þarf alla vega að koma þessari stjórn frá og VG að!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 24.4.2007 kl. 22:27

6 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Úff eigum við ekki að vona að þessar skoannakannanir séu ekki alveg marktækar þessa dagana.  Fólk hlýtur að vilja breytingar og bættari kaup og kjör og jafnrétti.

Sædís Ósk Harðardóttir, 24.4.2007 kl. 22:29

7 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Ég þekki engann sem ætla að kjósa sömu ríkisstjórn og efast stórlega að skoðanakannanir hafi verið framkvæmdar með eðlilegu móti. Það er að segja, eru allar upplýsingar í skoðanakönnunum birtar? Eða eru skoðanakannarnirnar hannaðar að vilja þeirra sem láta framkvæma könnunina? Ég minni á falsaða skýrslu Láru V. Júlíusdóttir hrl. sem hún gerði fyrir dómsmálaráðuneytið 2002 og fjallaði um Geirfinnsmálið sem dæmt var í Hæstarétti 22. 02. 1980

Guðrún Magnea Helgadóttir, 26.4.2007 kl. 15:19

8 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sannleikurinn í Geirfinnsmálinu. Sjá á: http://mal214.googlepages.com, bréf skrifað til allra alþingismanna dagsett 4. nóvember 2003

Guðrún Magnea Helgadóttir, 26.4.2007 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband