Vonbrigði

Þegar ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann sá ég að sólin skein hátt á lofti og smá andvari hreyfði við laufblöðunum á trjánum.

Ég hlakkaði til að fara á fætur og njóta dagsins. Ég fór fram fékk mér morgunmat og kveikti á tölvunni, til að lesa helstu fréttir landsins.

Ég verð að segja að um mig fór trega tilfinning þegar ég sá að samkomulag hefði náðst um Icesave, samkomulag um að láta kúga okkur til að greiða það sem okkur ber ekki til að greiða.

Ég er leið og döpur, sár yfir því að sá flokkur sem ég tilheyri og hafði treyst til að leiða okkur út úr þessum ógöngum, treyst til að efla hér velferðakerfið og menntakerfið, hafi undir ógnarvaldi Samfylkingarinnar látið snúa sér svona.

Nú fyrst getum við sagt eins og Geir Haarde orðaði það GUÐ BLESSI ÍSLAND og hjálpi okkur öllum


mbl.is Samkomulag í fjárlaganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brosveitan - Pétur Reynisson

Já, ég er sammála þér.  Málin hefðu verið svolítið öðruvísi ef Guð hefði fengið að stýra hjörtum bankamanna, útrásarvíkinga og stjórnmálamann.  Ég hef það einnig á tilfinningunni að svo kallað nýtt Ísland verði byggt upp á nákvæmlega sömu siðferðisbrestum sem hefur einkennt íslenskt samfélag síðustu áratugi.  Ekkert mun breytast ef hjörtun breytast ekki.

Ég er líka vonsvikinn og ég er sammála þér að Guð þarf að hjálpa okkur.  En spurningin er viljum við leyfa honum það?

Ég vona að sá dagur komi, þegar Íslendingar átti sig á því Að við verðum að hleypa Guði inn í þetta reikningsdæmi svo það gangi upp.

Drottinn blessi þig Sædís.

Brosveitan - Pétur Reynisson, 15.8.2009 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband