Hvaða voða viðkvæmni er þetta í fólkinu....

Þolir það kannski ekki að heyra staðreyndir eða lesa staðreyndir. 

Ræðan hennar Katrínar var virkilega góð og svo sönn.

 


mbl.is Óánægð með ræðu á heimasíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jónsson

Tja... umkvörtunarefnið var að þessi lagarök eru ekki endilega rétt. En þú veist það kannski betur.

Páll Jónsson, 27.11.2008 kl. 00:40

2 identicon

Er ekki meiri áskorun í því að skoða lagaruglið sem er í gangi í stórnsýslunni og í hruni þjóðarbúsins en innanbúðar karp í skólanum ?

Þetta minnir á öfundsjúka krakka að ráðast á þann sem skaraði frammúr.

Það er rit og málfrelsi í þessu landi. Þó að fólk noti sterk orð og myndlíkingar þá er það ekki ólöglegt.

Gaman að þessum kjánaprikum :)

Þröstur Heiðar (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 01:04

3 identicon

Tek undir það sem Páll sagði.

Þröstur, ég held að öfund komi þessu lítið við. Skömm er orðið sem ég myndi nota. HR-ingar skammast sín fyrir að nemi úr þeirra röðum skuli ekki sýna af sér betri þekkingu á lögum og lögfræði þegar hann kemur fram opinberleg.

Þetta kemur ekkert skoðunum hennar við, heldur því að þau lagarök sem hún notaði hafa gert hana að aðhlátursefni í lagadeildum bæði HÍ og HR.

Auðvitað má fólk hafa skoðanir og er það vel, en að blanda því saman við lögfræði getur aldrei hljómað mjög gáfulega.

Gummi (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 01:41

4 identicon

Ekki hefði ég stórar áhyggjur af því að verða aðhlátursefni í lagadeildum háskólanna! Ég hef stærri áhyggjur af því að margir sem þar nema telja sig hafa fengið masterlykil að sannleikanum um leið og þeir opnuðu fyrstu bók í fyrsta tíma.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 09:20

5 Smámynd: Ólafur Tryggvason Þorsteinsson

Það fer um mig þegar fólk veifar einhverjum "titlum" eða stöðu til að gefa máli sínu aukið vægi og fer síðan fram með múgæsingar eins og þessi Katrín gerði. Umfram allt að ýta undir og efla tjáskipti og treysta tjáningarfrelsi í landinu en þegar tilgangurinn er valdarán og hann er látinn helga meðalið er verr af stað farið en heima setið. Það vona ég að hennar skammarlega innlegg í þetta ástand gleymist ekki og fylgi henni lengi. Svona níðingsleg framkoma fyrir framan fólk sem á um sárt að binda á að bitna á henni sjálfri með fullum þunga.

Ólafur Tryggvason Þorsteinsson, 27.11.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 27.11.2008 kl. 11:38

7 identicon

Sæl Sædís,

Það má vera að ræðan hennar Katrínar hafi verið góð, hver verður að dæma um það fyrir sig. Hinsvegar var hún ekki sönn og það get ég og aðrir fullyrt ásamt öðrum.

Ef þér langar að kynna þér málið, sem ég innilega vona, þá hefur Máni Atlason skrifað grein þar sem hann fer yfir lið fyrir lið hvað var lögfræðilega ósatt í ræðunni. http://mwezi.blogspot.com/2008/11/stolt-og-glei-sklans-mns.html

Þú hlýtur sem mótmælandi sem mætir á Austurvöllur og hvetur þar ræðuhaldara sem telja ríkisstjórnina og aðra vera ljúga að þeir sem standi í pontunni segi satt frá öllum stundum. Annað mundi teljast hræsni væri það ekki?

Steinar Þór Ólafsson (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband