Góður flokkráðsfundur VG að baki

Var að koma úr Reykholti í Borgarfirði af mjög góðum og málefnalegaum flokksráðsfundi VG.  Miklar og góðar umræður fóru þar fram og margar góðar ályktanir samþykktar.  Á síðu www.vg.is má sjá ræðu Steingríms.

Hér fara nokkrar af þeim ályktunum sem voru samþykktar:

30.8.2008 : Forgangsröðum í þágu barna, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Á tímum efnahagsþrenginga er sérstaklega mikilvægt að létta byrðar barnafjölskyldna. Menntun barna og þátttaka þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi má ekki vera háð efnahag foreldra eða tímabundnum þrengingum í samfélaginu. Flokksráð Vinstri grænna hvetur því sveitarfélögin í landinu til að forgangsraða í þágu barnafjölskyldna.

30.8.2008 : Samvinna á forsendum sveitarfélaganna sjálfra, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

Flokksráð Vinstri grænna hafnar hugmyndum um lögbindingu lágmarksstærðar sveitarfélaga. Íbúar eiga að hafa svigrúm og sjálfræði til að meta kosti og galla sameiningar við önnur sveitarfélög og ákveða með hvaða hætti samstarfi þeirra á milli skuli háttað. Flokksráðið telur brýnt að úttekt verði framkvæmd á efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum þeirra sameininga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum.

30.8.2008 : Frítt í strætó óháð lögheimili, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

 

Flokksráð Vinstri grænna beinir því til sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu að gæta jafnræðis og veita öllum námsmönnum frítt í strætó óháð lögheimili.

30.8.2008 : Ríkið taki þátt í kostnaði vegna almenningssamgangna, ályktun flokksráðs 30. ágúst 2008

 

Almenningssamgöngur eru ekki einkamál sveitarfélaga. Þau varða umhverfi og efnahag allra landsmanna. Ríkið verður að axla ábyrgð og taka þátt í kostnaði vegna þeirra. Lagasetning í þá veru á að vera forgangsmál á komandi vetri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Fín ályktunarefni, var að hitta einn sem var nýkominn af fundinum og alsæll með hann.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.8.2008 kl. 22:32

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís. Hefði sko alveg viljað koma með bara til að hlusta á Steingrím, hann er snillingur.  Gott að heyra að þú naust fundarins.  Sjáumst og eigðu ljúfa viku

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 20:33

3 identicon

Góð mál og þörf! Og mörg af þeim eru einmitt þau sem skilja VG frá öðrum flokkum.

Knús,

Gummi (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband