Sumarbros

summer

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda
maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól
En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og
um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
niður undir hné.
En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri
dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
þessum þremur hlutum
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum
við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama
og að skapa sér líf.
Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska
á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.
Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
ekki hvernig þú lætur því líða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Bjarnfinnsdóttir

Þú ert nú alveg frábær Sædís mín  

En í sambandi við færsluna á undan þá vildi ég nú frekar kúra með kallinum mínum uppi í sófa með hvítt eða rautt í glasi og jarðarber með súkkulaðidýfu eða humarspjót...   mmm ... en það er bara ég   Minn hefur sko EKKI áhuga á þessum stelpuþáttum og sit ég nú oftast ein yfir þeim og hlæ mig máttlausa.  T.d. D H í gær hahahaha.

Have a nice weekend babe

Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 27.6.2008 kl. 17:14

2 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Takk fyrir þessi skemmtilegu orð. Þess verð að hafa þau í huganum. Bestu kveðjur.

Rúna Guðfinnsdóttir, 29.6.2008 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband