Mjög gott framtak VG

Eftir 17 daga rennur út frestur íslenskra stjórnvalda til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, þar sem íslenska fiskveiðistjórnarkerfið er gagnrýnt fyrir að brjóta gegn jafnræðis- og sanngirniskröfum alþjóðasamningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.

 Það er því afar mikilvægt að brugðist verði við og það á réttan hátt.  Í áraraðir hefur verið brotið á réttindum margra og því kominn tími til að leiðrétta þessi brot.  Því eru tillögur Vinstri grænna afar tímabærar og góðar og vonandi að tillaga VG nái í gegn.  Þessar tillögur eru ekki ólíkar þeim hugmyndum sem Samfylkingin hefur haft á sinni stefnuskrá og því ætti ekki að vera erfitt fyrir hana að samþykkja hana.  Hins vegar getur orðið erfitt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að samþykkja þetta og því spurning um hversu lengi þessi stjórn á að hanga saman, þar sem ósamstaða er í fleiri málum s.s. hrefnuveiðum.

Á heimasíðu Vg má finna ferkari upplýsingar um þessa tillögu:        

 http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/3389

.


mbl.is VG vilja breyta lögum um stjórn fiskveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú mikið rétt þetta er góð tillaga og tímabær. Ljóst var að ríkisstjórnin ætlaði að humma þetta fram af sér. Sjá til og tippla í kring um þetta eins og köttur í kringum heitan graut. Þó er ég hræddur um að þingheimur hlaupi nú ekkert upp til handa og fóta og samþykki þessa tillögu. Öðru nær, líklegast er að hinn ógnvekjandi stjórnarmeirihluti nýti vald sitt til hins ýtrasta og kæfi tillöguna með einhverjum hætti, án þess að koma með eitthvað betra í hennar stað. Samfylkingin hefur leikið tveim skjöldum í kvótamálum og skilgreiningunni á því að auðlindin sé sameign þjóðarinnar - altént seldi hún þær hugsjónir allar, sem hún hafði haldið á lofti fyrrum, fyrir ráðherrastóla fyrir réttu ári.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband